Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Side 61

Eimreiðin - 01.05.1915, Side 61
137 eins og menn kannist við sumt úr kvæðum þýzka prestsins í hinu kröftuga ádeilukvæði Porsteins »Bæn faríseans*< t. d. lýs- ing faríseans á sjálfum sér, samanborið við geip prestsins um þýzku þjóðina og yfirburði hennar yfir allar aðrar þjóðir: »Hví gerðir þú mig geisla þann á götum fósturslóðar, og slíkan garp og gæðamann og gimstein minnar þjóðar? Hví varð ég fólksins fyrirmynd, hví fékk ég slíka vizkulind og allar gjafir góðar ? Hví leyfir þú þá landi og þjóð að lúta nokkrum öðrum? Hví drotna ei mín hvellu hljóð að heimsins yztu jöðrum? Hvað hjálpar það, að hátt ég fer? því hærri jafnan Satan er og tekur flug úr fjöðrum.« Og er ekki eins Og maður kannist við rödd þýzka prestsins, óbænir hans og ummæli um Breta og aðra mótstöðumenn Pjóð- verja, í þessum vísum Porsteins: »Mig mundi litlu muna þó, að mæta Satan einum; en hann á vin í hverri kró og her af lærisveinum; og örvar senda árar þeir, sem eitri hverju brenna meir í mínum merg og beinum. Hví viltu þola þessa menn og þeim svo áfram hleypa? Og hví má jörðin ekki enn þá alla saman gleypa? Hve styrkti það ei þjóðartrú! og þörf er aldrei meiri en nú þeim árum strax að steypa. Mun sú þeim ekki sárust nauð, að sjá oss feita og káta, er ekkert fæst á borðið brauð og börnin þeirra grátar Og við að sjá þá sultar raun, sem Satans þjónar fá í laun, mun eittlivað undan láta. Og enn þá til að erja á lýð með öllum Vítis pínum ég held í þetta heiftarstríð úr helgidómi þínum. En héðan af ég hamra þá með hverju, sem að bítur á. — Nú hjálpi Satan sínum! En, drottinn, hvar sem heims um lönd þú hittir þessa varga: þá loka hverri líknarhönd og lát þeim ekkert bjarga; þá mun ei æfin ýkja löng, unz önnur verri sultarföng þeim voðaföntum farga. En seinna þér ég sit við hlið og sé þá fótum tapa, og lít þeim eilíf ósköp við og opið Víti gapa, ég heyri grimman hefndardóm, ég heyri þeirra voðaróm og sé þá sjálfur hrapa.« Ef þeir íslenzkir prestar, sem mest hneyksluðust á þessu kvæði þorsteins og öðrum árásarkvæðum hans á kirkjuna, hefðu þekt eins vel og hann skoðanir ýmsra stéttarbræðra sinna í öðr- um löndum og hugmyndir þeirra um guð og afstöðu hans til manna og þjóða, þá mundu þeir máske hafa litið á kvæði hans

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.