Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 62

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 62
138 með öðrum augum, og játað, að »karlinn var ekki svo blár«. Því þó að svo hafi nú atvikast, að vér höfum hér að framan aðeins tilfært ummæli eftir þýzkan prest, þá mega menn ekki ætla, að Pjóðverjar og klerkalið þeirra sé einsdæmi í þessum efnum. Nei, það er víðar pottur brotinn, og óvíst, að ýmsir klerkar hinna hernaðarþjóðanna reyndust hóti betri, ef hægt væri að skoða þá með röntgensgeislum innanrifja. Og ekki hefir t. d. neitt heyrst um það, að enskir prestar hafi hafið nein mótmæli gegn tilraun- um Englendinga til að svelta alla þýzku þjóðina (um 70 miljónir), börn, konur og gamalmenni, með því að banna þeim alla að- iiutninga, heldur muni una því allvel, »er ekkert fæst á borðið brauð og börnin þeirra gráta«. V. G. Skriftamál þingmannsefnisins.1) Ég býð mig fram, því býst ég við, betri mann fá þeir ekki, ég kann að vinna kjördæmið, karlana hér ég þekki; hinir byrja í blöðunum að bríxla ... — á þeim helvítum ég kannske síðan klekki. Mín þekking um svo ósköp margt er ekki’ á marga fiska, eitt stunda ég, því það er þarft, þetta: að kunna að gizka hvoru megin er múgurinn — þeim megin verð ég, góði minn það er sú æðri vizka. Alþýðu skjalla’ eg mest sem má — ég meina svo þeir heyri — og læt þá á mér sjálfum sjá ég sé þeim ekki meiri, að geðjast aðeins gáfuðum það gengur ekki á kjörfundum, því flónin eru fleiri. ') Má syngja á kjörfundum og víðar með laginu: »Ef land jui sérð í legi blám«. —

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.