Eimreiðin - 01.05.1915, Page 65
I41
leikinn, hafa Rússar orðið að auka her sinn að miklum mun, og
mun því óhætt að aætla dagleg útgjöld þeirra 34 milj. kr., eða
1020 milj. kr. um mánuðinn, og 51OO milj. kr. fyrstu 5 mán-
uðina.
Samkvæmt þessu verður þá hinn daglegi herkostnaður Eng-
lendinga, Frakka og Rússa 85 milj. kr. samtals. En þar sem svo
telst til, að þeir hafi samtals um 11 miljónir hermanna á vígvelli,
kemur þó ekki nema tæplega 7a/i kr. á mann á dag, og virðist
það ekki geta öllu minna verið, þegar á alt er litið.
Setji maður nú svipuð útgjöld á mann í herliði Þjóðverja og
Austurríkismanna, sem talið er, að muni hafa um 10 miljónir her-
manna á vígvelli, þá verður herkostnaður þeirra á dag samtals
771/* rnilj. kr., eða 2325 milj. kr. á manuði, og 11625 rnilj- kr.
fyrstu 5 manuðina.
Um herkostnað Serba, Belgja, Tyrkja og Japana vita menn
ekki glögt, en varla mun of mikið í lagt, að telja hann um 8
milj. kr. á dag, eða 240 milj. kr. á mánuði, og 1200 milj. kr.
fyrstu 5 mánuðina.
Samkvæmt þessu verða þá bein stríðsútgjöld sjálfra bardaga-
þjóðanna á dag rúmlega 170 milj. kr.
En hér við bætast þau útgjöld, sem stríðið hefir bakað
hlutlausu þjóðunum, og þau eru heldur ekki neitt smáræði.
Bannig hafa Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Holland, Sviss, Ítalía,
Grikkland og Búlgaría orðið að taka mjög dýr lán vegna stríðs-
ins, og á þann hátt aukið ríkisskuldir sínar um meira en 700
milj. kr. En auk þess hafa öll þessi ríki brúkað fyrirliggjandi fé,
sem ætlað hefir verið til annarra útgjalda, og þó enn ótaldar all-
ar þær upphæðir, sem mörg önnur ríki og lýðlendur Englend-
inga hafa orðið að eyða í þágu ófriðarins. Pykir því ekki of
mikið í lagt, að ætla fyrir útgjöldum allra þessara þjóða, hlut-
lausra og annarra, er lúta Bretum, vegna stríðsins, og ennfrem-
ur fyrir vanhöldum, fyrstu 5 mánuðina samtals alt að 1425 milj.
kr., svo að allur stríðskostnaðurinn, beinn og óbeinn, nemi fram
að áramótum 27 miljörðum (27000 milj.) kr.
Samkvæmt því, sem hér hefir verið talið, ætti þá yfirlit yfir
þann kostnað, sem þetta heljarstríð hefir bakað þjóðunum í bein
útgjöld fyrstu 5 mánuðina, talin í krónum. að líta þannig út:
IO