Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987. 13 Veitingahús Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús Gæðin eru ekki gefin í Mandarín Dýrir Kínastaðir á Islandi Mandarín í Tryggvagötu er bezta kínverska veitingahúsið í landinu og jafnframt hið langdýrasta. Við lá, að ég svitnaði, þegar ég sá verð- lag staðarins í fyrsta skipti. Að horða þar kostar jafnmikið og í hin- um dýru veitingasölum landsins. Svo dýrir eru sjaldan kínverskir veitingastaðir í öðrum löndum. Þeir hlaða sér venjulega í neðri enda verðsviðsins. Hér á landi eru slík matsöluhús hins vegar frá miðjum verðflokki og uppúr. Það er eins og þau séu ekki rekin fyrir kunnuga, heldur fyrir fólk, sem klæðir sig upp til að borða kín- verskan mat til spari einu sinni á ári eða sjaldnar. Meðan innlendir öndvegisstaðir á borð við Úlfar og Ljón, Laugaás og Pottinn og pönnuna eru í lægsta verðflokki, eru Kínahofið og Sjang- hæ í miðflokki og Mandarín í hæsta verðflokki. Þrátt fyrir útbreiðslu Kínastaða hér á landi, vantar enn af því tagi fjölskyldustað, sem fólk hefur efni á að sækja án sérstaks tilefnis. Þannig er kínverski akur- inn að mestu ósáinn enn í veitinga- mennsku íslands. Miðjuverð súpu og aðalréttar í hádeginu í Mandarín er 1.051 króna. Að kvöldlagi kostar þriggja rétta málsverður með tei, en án víns, 2.008 krónur. Síðarnefnda tal- an er þröskuldurinn, sem við- skiptavinir að kvöldlagi verða að ákveða, hvort þeir vilji stíga yflr. Stuðlabergið stúkað frá Mandarín er flutt í salarkynnin, þar sem áður var til húsa veitinga- staðurinn Hellirinn. Hinar miklu og lítt smekkvísu stuðlabergs- skreytingar í anddyri, veggjum og súlum hafa verið mildaðar með stórum, kínverskum skermum, er skyggja á útsýni og hluta salinn niður í þægileg skot, þar á meðal bar í einu horninu. Ymislegu, en ekki ofhlöðnu Kínaskrauti hefur verið komið fyrir, svo sem papp- írslugtum í lofti, veggplöttum, gluggaspjöldum og renningi yfir bar. Rautt áklæði er á stólum og rauð- ir undirdúkar á borðum, svo og rauðar tauþurrkur og kertaljós á kvöldin. í hádeginu eru notaðar hvítar pappirsþurrkur. Borðbún- aður er austurlenzkur, þar á meðal prjónar fyrir þá, sem vilja. Þjónustan er austræn að gæðum, þótt hún sé vestræn. Starfsliðið er klætt í kínverskt silki, flytur gest- um strax vatn í glös, sér um, að hitaplötur komi á horð eftir þörf- um, og ber yflrleitt-af því, sem ég hef séð í austrænum veitingahús- um á Reykjavíkursvæðinu. í eitt skiptið kom hinn austurlenzki mat- sveinn meira að segja að borðinu til að kynna sér óskir um bragð- styrk. Víða leitað fanga Matseðilhnn í Mandarín er lang- ur eins og algengt er hjá slíkum stöðum. Hann er einnig óvenju fjöl- breyttur, enda er staðurinn ekki kallaður „kínverskur", heldur „austurlenzkur". Boðið er upp á matreiðsluaðferðir frá Sikkúan og Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Mongólíu, Beijing og Sjanghæ, en ekki aðallega frá Kanton og Hong Kong, sem algengast er. Eggjadropasúpan, sem var súpa dagsins í hádeginu einn daginn, reyndist vera góð súpa, mikil að magni og fela í sér mikið af smásax- aðri svínapöru og dálítið af blönd- uöu grænmeti úr frysti. Rækjusúpa með skemmtilega stökkum, kín- verskum sveppum, sem brustu undir tönn, var enn betri og bjó yfir miklu af rækjum, tær og bragð- mikil. Smokkfisksúpa var einnig góð, mátulega sterk, dálítið sæt, með hæfilega stinnum smokkfisk- lengjum, eggjum og sveppum. Konan frá Sjanghæ er nafn á óvenjulegum, en bragðlitlum for- rétti, þar sem eggjadeigi var vafið í fimm fingra formi yfir smásaxað svínakjöt. Lumpia er nafn á litlum vorrúllum, sem reyndust svipaöar öðrum, sem hér hafa verið á boð- stólum. Þessar voru bornar fram með kryddlegnu hrásalati og súr- sætri sósu, er var ekki of sæt. Steiktur fiskur með ananas og framandlegu grænmeti hafði htið fiskbragð, en var góður sem réttur, snarpheitur og í fylgd meö mildri sósu. Súrsætur kjúkhngur var mjög góður, þótt kjötið væri mjög kryddlegið og bragðhtið, næstbezti rétturinn, sem prófaður var. Sósa keisaraynjunnar Lambakjöt að hætti Sikkúan-búa var afar meyrt og gott, hæfilega kryddað. Gengis Khan lambakjöt á teini var einnig meyrt og alls ekki bragðsterkt, þótt varað væri við slíku á matseðh, viöarkolalegt á bragðið. Snöggsteikt nautakjöt var sagt borið fram með sójabaunum, en kom með grænni og rauðri pa- priku, snarpheitt, en hálfseigt og var sízti rétturinn. Bezti rétturinn Hádegisseðillinn 360 Súpa dagsins 495 Peking vorrúha með salati, sveppum og hrísgijónum 450 Steikt hrísgijón með eggjum, kjúkhngi og rækjum 420 Gufusoðiö, hlandað grænmeti með ostrusósu 510 Steikt rauðspretta í himneskri sósu 525 Fiskur með bambusskotum og sveppum 510 Snöggsteiktur smokkfiskur með grænmeti 585 Súrsætar rækjur 650 Gengis Khan kjúkhngur á teini með fersku grænmeti 690 Snöggsteikt svínakjöt með sveppum og eggi 780 Steikt svínakjöt í raspi með fersku grænmeti 750 Lambakjöt að hætti Sikkúan-búa 780 Súrsætt svínakjöt 810 Snöggsteikt nautakjöt meö tómötum Mandarín i Tryggvagötu er bezta kínverska veitingahúsið i landinu og jafnframt hið langdýrasta. var hins vegar steikt önd í svokall- Grænt jasmin-te er drukkið með ur, en býður þó Chateau Fontarec- aðri sósu keisaraynjunnar frá matnum, innifahð í verðinu í há- he, Marqués de Riscal, Gewurztr- Kína, áberandi bragðsterk og afar deginu og á heilar 110 krónur að aminer og Rosenhang. meyr. kvöldlagi. Vínhstinn er ómerkileg- Jónas Kristjánsson Landssamband íslenskra vélsleðamanna efnír tíl útílífssýníngar VETRARLÍF ’87“ W F°rdh!gs?™^e- - laugardag °g Svieðió vérðuv opió frá kl. 10.00 til kl. 21.00 báða dai’ana. Meðal þess sem sýnt verður má nefna: Vélarogtaeki: Vélsleðar Fjórhjól Snjóblásarar Rafstöðvaro.fl. Skíðabúnaður Allskonarvörur sem tilheyra skíða- íþróttum Fylgihlutir: Varahlutiir: Aftanísleðar Aflskonarvarahlutir og marskonar annar Olíur o. fl. aukabúnaður Öryggistaekí: Bílasímar - Talstöðvar Lorantæki Attavitaro.fi. Hlífðarbúnaður Mskonar hlífðarfatnaður Tjöldo.fl. LANDSSAMBAND ISLENSKRA VÉLSLEÐAMANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.