Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 46
58
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987.
Israel:
Jól í
Landinu
helga
í ísrael búa um fjórar milljónir
manna, gyöingar eru rúmar þrjár
milljónir, múslímar um sex hundruð
og fjörutíu þúsund og kristnir um
áttatíu þúsund. Þarna búa einnig um
fimrntíu þúsund drúsar .
Ísraelsríkið var stofnað árið 1948
og er fjörutíu ára afmælisáriö aö
ganga í garð. Fyrsti forseti landsins
var Chaim Weizmann en fyrsti for-
sætisráðherrann Ben Gurion. Saga
landsins hefst fyrir fjögur þúsund
árum er Abraham var falið að leiða
þjóð sína til fyrirheitna landsins. í
þessu landi mætast gamli og nýi
tíminn í dag á einstakan hátt. Þarna
mætast menn af ólíkum uppruna.
Og þarna er „vagga“ helstu trúar-
bragða heimsins. Fyrir feröamann
er ákaflega athyglivert aö skoða sam-
býli einstaklinga af ólíkum uppruna
sem játa ólík trúarbrögö og byggja
saman landið. Hver hópur heldur
sínum sérkennum og siðum. Á föstu-
dögum er hvíldardagur múslíma og
þeir loka sínum fyrirtækjum. Á laug-
ardögum er sabbat, hvíldardagur
gyðinga, og þeir loka sínum verslun-
um. A sunnudögum hvíla kristnir
menn lúin bein og ganga til guðs-
þjónustu í sínum kirkjum. Þetta er
sýnishorn af daglegum lifnaðarhátt-
um. Víst þætti okkur þetta einkenni-
legt fyrirbæri í Reykjavík.
Jerúsalem
Jerúsalem er talin ein fallegasta
borg heims. Það er sagt að við úthlut-
un á fegurðarskammti við sköpun
heimsins hafi svæöið, þar sem nú er
Jerúsalem, fengið níu skammta af tíu
mögulegum. Margur hefur því spurt
sig í hveiju þessi fegurð liggi en því
er vandsvarað. Þeir sem koma til
borgarinnar í dag verða fyrir tilfmn-
ingaáhrifum og það er umhverfið,
sagan, trúarhitinn og margt fleira
sem engan lætur ósnortinn. Við
hvert fótmál upplifir ferðamaðurinn
andblæ sögunnar um leiö og við hon-
um blasir nútímaþjóðfélag.
Grafarkirkjan, Klettamoskan,
Grátmúrinn, Via Dolorosa, Davíðs-
borg, Getsemanegarðurinn og
Golgata eru nöfn sem viö þekkjum.
Það hrærir hug og hjarta að standa
á þessum stööum.
íslensk messa
Fyrir íslendinga á ferð um þessar
söguslóðir nú um jólin verður það
sjálfsagt mikil upplifun ásamt öllu
öðru að hlýða á íslenska messu á
jóladag. Séra Tómas Guðmundsson,
prestur í Hveragerði, mun predika í
einu lútersku kirkjunni í Jerúsalem
og þar mun íslenski kórinn einnig
syngja. Á jóladag mun kórinn einnig
syngja í Þjóðleikhúsinu ásamt öllum
hinum kórunum sem boðið er um
hátíðarnar til ísrael.
Á annan dag jóla er píslarganga
farin um Via Dolorosa. Það éru hinar
ýmsu kirkjudeildir heims er gæta
helgra staða í Jerúsalem sem standa
fyrir píslargöngunni og fyrir henni
Við Grafarkirkjuna i Jerúsalem.
Ungir og reifir íbúar Jerúsalem á leið frá útimarkaðnum i elsta hlutanum.
Loksins tímarit fyrir okkur
KARLMENN
Meðal efnis: Albert Guðmundsson: „Ég er stríðsmaður í mér“ • Finnur Ingólfsson, „arftaki Steingríms?“
Olafur Laufdal: „Ég er bestur!“ • Hvað raunverulega skeði í aldingarðinum!
Að vera flottur um fimmtugt • „Ekkert mál fyrir Jón Pál“
Viltu læra að fljúga? • Karlmenn og snyrting • Hárlos og skalli - er lausnin fundin?
Bridge, golf, sport o.fl.
Náðu þér í blað f tíma á næsta útsölustað. .