Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1988, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1988, Page 24
24 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988. Veröld vísindanna Nýju geisladiskarnir taka við meira efni en fyrri aðferðir til að geyma efni. Stærðfræði simpansa Simpansar kunna að telja og álykta um fjölda. Símpansar kunna að reikna. Þetta er niðurstaða þriggja banda- rískra vísindamanna sem notuðu gómsætt súkkulaði til að komast að þessum hæfileika apanna. Simp- önsunum var boðið að snæða sælgætið af fjórum diskum og var einn eða fleiri súkkulaðimoli á hverjum. í 90% tílvika völdu simp- ansamir að borða af þeira diski sem flestir bitarnir voru á. Simpansarnir fóru nær alltaf eftir fjöldanum en stærð bitanna skipti ekki máli. Af þessu ályktuðu vís- indamennirnir að simpansarir teldu fyrst bitana og veldu síðan mestan fjölda en gætu ekki áttað sig á magni. Stærðfræði við brúarsmíði I Cambridge á Englandi er forláta brú sem byggð var árið 1759. Hún þótti mikiö furöuverk á sinni tíð því hún var algerlega sjálfberandi. I hana var ekki notaður einn ein- asti nagli. Brúin er kennd við DV Endurbættir geisladiskar upp hjá Tandy fundnir Rafeindafyrirtækið Tandy hefur kynnt nýja gerð af geisladiski sem hefur þann kost fram yfir fyrri gerð- ir að notandinn getur eytt efni af honum og tekið upp nýtt að vild. Á þennan disk má taka upp tónhst, myndir og tölvugögn. Nýi geisladiskurinn kemur þó vart að miklum notum fyrst um sinn því upptökutæki fyrir geisladiska eru ekki enn komin á almennan markað. Þeir geislaspilarar sem nú eru á markaðnum eru aöeins til afspilunar og líklegast er að þeir úreldist á næstu árum vegna hinnar nýju tækni. Nýi deisladiskurinn frá Tandy kall- ast Thor-CD. Af hálfu framleiðand- ans er gert ráð fyrir að hann komi ekki aðeins í stað geisladiska fyrir tónlist, heldur einnig í stað mynd- banda og venjulegra tölvudisklinga. Diskurinn notast að öllu leyti eins og þeir geisladiskar sem nú eru í notkun auk þeirra kosta sem bætast við. Þá tekur hann viö meira efni en fyrri diskar og upptökurnar eiga aö vera betri. Nýja upptökutækið á að kosta sem svarar 20 þúsundum ísenskra króna. Það er um helmingi minna en segul- bönd fyrir tölritaðar upptökur sem þegar eru komin á markaðinn og hafa sambærilega kosti og nýja tæk- ið. Enn er þó reiknað með að tvö ár líði þar til nýi geislaspilarinn kemur á markað og á þeim tíma gætu segul- böndin náð verulegri útbreiðslu. Ekki er heldur vitað hve oft má skipta um upptökur á diskunum áð- ur en þeir láta á sjá. Þetta er vanda- mál sem hrjáir segulböndin því þau þola ekki margar upptökur. Þá má reikna með að útgefendur snúist gegn sölu geisladiskanna af sömu ástæðu og þeir hafa barist gegn seg- ulböndunum. Þeir telja að þessi tæki verði notuð til að brjóta reglur um höfundarétt Hjá Tandy var farið mjög leynt með nýja tækið þar til það var kynnt. Vitað er að önnur fyrirtæki hafa unnið að sömu hugmynd. Einkum eru það japönsk fyrirtæki og er Sony þar fremst í flokki. Það fyrirtæki varð fyrst til að framleiöa segulbönd fyrir tölritaðar upptökur. Þrátt fyrir forskotið hjá Tandy spá margir sérfræðingar því að fyrirtæk- ið haldi forystunni ekki lengi, því risarnir á markaðnum verði fljótir að ná tökum á tækninni. Sæotramir koma á óvart Sæoturinn er með „handsterkustu" dýrum. Dýrafræðingar hafa lengi undrast hvers vegna sæoturinn, sem er að- eins 25 kíló á þyngd, brýtur skeljar mjög auðveldlega meðan mann- skepnan á í mestu erfiðleikum með sama verk nema nota til þess verk- færi. Maðurinn virðist þó vera mun sterkari og miklu þyngri. Bandarísk- ir líffræðingar við John Hopkins háskólann segjast nú hafa leyst þessa gátu og notuðu til þess háþróaða tækni. Við nákvæmar rannsóknir fundu þeir áður óþekkt bein í framloppum sæotursins. Þetta bein á að vera lyk- illinn að ótrúlegum „handstyrk" otursins. Við rannsóknir á beina- grind otursins var notuð sneið- myndavél og sérstök tölvumyndavél af sömu gerð og notuð var til að búa til furðuverk í kvikmyndunum um stjörnustríðin. Með sneiðmyndavél er hægt að fá einvíðar þverskurðar- myndir sem stjörnustríðsmaskínan er notuð til að tengja saman í eina þrívíða. Líffræðingarnir Stoskopf og Fish- man voru að velta myndinni af beinagrind otursins fyrir sér í heilt ár áður en þeir fundu nokkuð nýtt. Þá ráku þeir einn daginn augun í beinið góða í framloppunum. Þeir komust líka að því að beinið er ekki í loppunum á ungum otursins en verður til þegar þeir vaxa upp. Þeir félagar eru sammála um að öll tæknin við að finna beinið var ekki nauðsynleg en samt hafa engir líffræðingar komið auga á það áður. Við rannsóknirnar komu einnig í ljós skýringar á því að otrar, sem orðnir eru nokkuð við aldur, deyja oft vegna truflana á starfsemi hjartans. Skýringin er sú að þeir synda á bakinu þegar þeir brjóta skeljar sér til matar og nota brjóstkassann sem viðhögg. Við þetta aflagast brjóst- kassinn og það veldur hjartaáfalli hjá þeim sem eru veilir fyrir hjarta. Leitin að fjarlægasta hlutnum 1 veröldinni - frá jöröu séð - er að verða að hálfgerðu vandræðamáli. Með nokkurra mánaða millibili til- kynna stjörnuathugunarstöðvar um að nú hafi fundist fyrirbæri sem er örlítið lengra í burtu en það sem síð- ast sást. Þessar niðurstöður þykja ekkert mjög merkilegar því allir vita að þær úreldast á skömmum tíma. Þaö kann þó að verða breyting á því og að senn finnist endimörk alheims- ins. Þeir sem halda því fram eru þó ekki tilbúnir til að svara spurningum um hvaö er þar fyrir utan. Það eru stjarnfræðingar við há- skólann í Arizona sem hafa komið auga á nokkur sólkerfi 117 milljarða ljósára fjarlægð frá jörðu. Þessi sól- kerfi eru utar en nokkurt fyrirbæri sem áður hefur sést. Vegna þess að þaö hefur tekið ljósið 17 milljarða ára aö fara frá þessum sólkerfum og til jarðar þá koma þau okkur fyrir sjón- ir eins og þær voru skömmu áður en alheimurinn varð til í stóru sprengingunni - ef það er þá eitthvað vit í þeirri kenningu um upphaf al- heimsins. Það sem er lengra í burtu hlýtur þvi aö vera það sem var til fyrir og í stóru sprengingunni. Hvað það er veit enginn. Stjarnfræðingar hafa sett fram kenningu um sólkerfi sem eru aðeins utar en þau sem nú hafa sést. Nefnast þau frumkerfi og ef kenningin er rétt þá eru þessi frum- kerfi rétt á mörkum alheimsins. Kenningin um stóru sprenginguna gerir ráð fyrir að alheimurinn sé að þenjast út. Þá er gert ráð fyrir aö mörk alheimsins færist út miðað við jörðu með nálægt því sama hraða og ljósið fer. Þetta gerir það að verkum að ljósbylgjumar frá frumkerfunum togna mjög mikið og við það verður ljósið sem við sjáum rautt. Nú standa mál þannig að verið er að leita að rauðum bjarma frá mörkum al- heimsins. stærðfræði vegna þess að hún þótti mikiö verkfræðilegt afrek. Hún var gerð upp fyrir nokkru og þá kom í ljós að ef hún átti aö standa áfram þá varð að grípa til naglanna til að halda henni saman. Brúin er þvi ekki eins stærðfræði- leg og hún var. Læknislyf úr kræklingum Bæði franskir og bandarískir læknar hafa komist að því að efhi unnið úr kræklingum hefur ekki síðri áhrif til að lækna liðagigt en þau lyf sem nú eru notuð. Efniö hefur hka þann kost að það er án aukaverkana. Við tilraunir hefur komið fram að 60% sjúklinganna fá nokkurn bata við að taka inn efnið. Enn er ekki vitað hvað veldur þvi að þetta efni hefur áhrif. Þó er vitað að það hefur áhrif á hormónastarfsemi líkamans en eftir er að skýra af hveiju það linar liðagigt. Ef tölvukefi Japana reynist vel verða umferðaröngþveiti úr sögunni. Tölvukerfi til að stýra umferð Japanir segjast hafa fundið ráð til aö koma í veg fyrir umferðaröng- þveiti. Þeir segja að áður en þetta ár er úti, þurfi íbúar Tókýó ekki aö óttast að lenda i vandræðum vegna umferðarinnar þar í borg. Umferð bíla er óvíða í heiminum jafnþung og þar. Yfir 50 japönsk fyrirtæki hafa lagst á eitt um að búa til tölvukerfi þar sem hver ökumaöur getur séð á augabragði hvar hann er staddur í borg- inni og hvaða leið er greiðust til ákvöröunarstaöar. Meö þessu móti er hægt að ráðleggja ökumönnum aö forðast þær götur þar sem umferð er þyngst Bæði bandarísk og evrópsk fyrirtæki eru byrjuð aö vinna viö hliðstæð tölvukerfi en Japanir hafa þegar búið til tilraunaútgáfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.