Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Page 7
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988. Fréttir Alþýðusambandsþingið 1 nóvember: Leikfléttusmiðirnir eru teknir til starfa Ásmundur Stefánsson stend- pé,ur Sigurðsson, torseti Al- Grétar Þorsteinsson, formað- Björn Grétar Sveinsson gæti Þóra Hjaltadóttir er orðuð við ur höllum fæti innan ASÍ um þýðusambands Vestfjarða. ur Trésmiðafélags Reykja- orðið næsti formaður Verka- varaforsetaembætti hjá ASÍ. þessar mundir víkur. mannasambandsins Nú er ekki nema rúmur einn og hálfur mánuður þar til þing Al- þýðusambands íslands hefst, en það er haldið á fjögurra ára fresti. Meðan verkalýðshreyfingin var og hét, og lét til sín taka í þjóðfélaginu, þóttu þing ASÍ með merkustu atburðum. Ekki eru nema 30 ár síðan Alþýðu- sambandsþing hafnaði tillögum rik- isstjórnar Hermanns Jónassonar og þar með baðst Hermann lausnar fyr- ir sig og ráðuneyti sitt. Slíkt var vald ASÍ á þeim árum. Nú er öldin önnur og minna hlustað á það sem forystu- menn ASÍ hafa fram að færa en áður. Samt er það nú svo að stjómmála- flokkunum þykir allnokkurs virði að ráða yfirstjóm Alþýöusambandsins. Síðustu átta árin hefur verið eins konar þjóðstjómarform á miðstjórn Alþýðusambandsins og hefur friður og ró ríkt innan hennar, þar til í haust. Út á við hefur Alþýðusam- bandið einnig sýnt mikla friðsemd í verki. Ásmundur Stefánsson hefur verið forseti sambandsins þennan tíma. Hann naut mikils trausts í byrj- un en það hefur farið minnkandi með ámnum. Ástæðan fyrir því er fyrst fremst sú hve erfitt Ásmundur á með að vinna með fólki og einnig hitt hversu sambandslaus hann er við hinn almenna félaga í verkalýðs- hreyfingunni. Það sem veikt hefur stöðu Ásmundar sem forseta ASÍ hvað mest síðustu misserin er sú fullyrðing fiskvinnslufólks í landinu að það hafi verið skilið eftir í samn- ingunum 1986 og ekki borið sitt barr síðan. Það hefur ekki fyrirgefið Ás- mundi þetta enn og það var einmitt ástæðan fyrir því að forysta ASÍ var ekki látin sjá um gerð kjarasamninga fyrr á þessu ári. Allt síðan Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn fonnaður Alþýðubanda- lagsins hefur Ásmundur Stefánsson verið í ákafri andstöðu við hann inn- an flokksins. Ásmundur beitti sér manna harðast gegn því að Alþýðu- bandalagið tæki þátt í stjórnarmynd- un á dögunum en þar hafði Ólafur Ragnar betur. Þaö að Svavar Gests- son skyldi standa með Ólafi Ragnafi í því máli og tekið ráðherradóm hef- ur orðið til þess að Ásmundur telur Svavar hafa snúist gegn sér. Þeirra samband hafði lagast mjög fyrir síð- asta landsfund flokksins eftir margra ára rimmu innan flokksins. Sú rimma hófst frá hendi Asmundar þegar ákveðið var 1978 að Svavar Gestsson fengi 1. sæti á lista flokks- ins í Reykjavík en ekki Ásmundur en slagurinn stóð á milli þeirra tveggja. Staða Ásmundar innan Alþýðu- bandalagsins var ekki mjög sterk fyrir ríkisstjórnarmyndunina á dög- unum en eftir hana hefur hún versn- að til muna. Segja má að hann hafi einangrast enn frekar en áður var vegna afstöðu sinnar til stjórnar- myndunarinnar. Niðurstaða skoð- anakönnunar DV á dögunum sýndi að allir sem sögðust myndu kjósa Alþýðubandalagið sögðust líka styðja ríkisstjórnina. Sú útkoma hef- ur án efa komið Ásmundi og öðrum þeim Alþýðubandalagsmönnum, sem andvígir voru stjórnarmyndun- inni, verulega á óvart. Ef Ásmundur ákveður að gefa kost á sér áfram sem forseti ASI, en það hefur hann ekki gert enn, er bakland hans í Alþýðubandalaginu ekki s'terkt og það er það ekki heldur inn- an verkalýðshreyfmgarinnar. Það er því allt eins víst að boðið verði fram á móti honum og raunar er leit að nýjum forseta ASÍ hafin. Baktjalda- makkið er byrjaö og samkvæmt heimildum DV hafa ríkisstjórnar- flokkarnir þegar hafið samstarf. Og ekki bara það, heldur er verið að leggja línur að langri leikfléttu hvað varðar völd innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Forsetakandidatar Því hefur verið haldið fram að þeir séu ekki margir innan verkalýðs- hreyfingarinnar sem geti sest í stól forseta ASÍ svo vel sé. Þeir sem þessu halda fram segja að það sé ekki fyrir nema hálærða menn að stýra sam- bandinu i gegnum brim flókinna kjarasamninga. Þeir sem eru þessu andvígir benda á að til séu margir hæfir menn innan hreyfingarinnar til að gegna.embætti forseta og hver sem þann stól vermi geti ráðið sér Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson sérfræðinga til aðstoðar, rétt eins og ráðherrar geri. Þessi sjónarmið virð- ast hafa orðið ofan á nú og menn hafa verið aö fara yfir sviöið í leit að forsetaefni. Alþýðuflokksmenn hafa verið með kenningar um að tími sé kominn til að maður úr þeirra hópi verði forseti ASÍ. Um tíma var Karl Steinar orðaður við forseta- framboð en hann mun hafa hætt við enda önnum kafinn maður fyrir. Nú hafa menn aftur á móti stöðvast við Pétur Sigurðsson, forseta Alþýðu- sambands Vestíjarða, einn reyndasta og hæfasta mann sem verkalýðs- hreyfingin á til. Framsóknarmenn eru ekki sterkir innan verkalýðshreyfmgarinnar en samt eiga þeir nokkra sterka og hæfa einstaklinga sem þeir vilja efla til mannaforráða innan Alþýðusam- bandsins. Alþýðubandalagið hefur til þessa talið sig sterkasta flokkinn inn- an hreyfingarinnar, þótt margir dragi það í efa. Ekki síst minnkuðu ítök þess eftir að Guðmundur J. sagði sig úr flokknum. Hann hefur í ára- raðir verið sterkastur Alþýðubanda- lagsmanna innan Alþýðusambands- ins, sem formaður Verkamannasam- bandsins og Dagsbrúnar. Eftir að Guðmundur gekk úr flokknum og Ásmundur er kominn á þröskuldinn, eftir ræðuna frægu sem hann hélt á þingi Sjómannasambandsins á dög- unum, hafa áhrif Alþýðubandalags- ins innan verkalýðshreyfmgarinnar minnkað til muna. Þess vegna er flokkurinn nú tilbúinn að taka þátt í fyrmefndri leikfléttu með Fram- sóknar- og Alþýðuflokki. Leikfléttan Samkvæmt heimildum DV felst þessi leikflétta, sem nú er unnið að, í því að Pétur Sigurðsson úr Al- þýðuflokki verði næsti forseti Al- þýðusambandsins. Fyrsti varaforseti verði Þóra Hjaltadóttir úr Fram- sóknarflokki en annar varaforseti verði Grétar Þorsteinsson úr Al- þýðubandalagi. Þá nær fléttan einnig til miðstjómarkjörs en vitaö er að allmiklar breytingar verða á miö- stjóm ASÍ á þinginu. Gamalreyndir verkalýðsforingjar hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér viö miðstjórnar- kjörið. En fléttan nær lengra. Guð- mundur J. Guðmundsson hefur lýst því yfir aö hann ætli að hætta sem formaður Verkamannasambandsins á þingi þess eftir eitt ár. Alþýðu- bandalagsmenn hafa átt formann Verkamannasamhandsins alveg frá stofnun þess. Og í fléttunni nú er gert ráð fyrir að Björn Grétar Sveins- son, formaður Jökuls á Höfn, verði næsti formaður Verkamannasam- bandsins en hann á sæti í fram- kvæmdastjóm þess. Bjöm er án efa efnilegasta foringjaefnið innan verkalýðshreyfingarinnar sem Al- þýðubandalagið á til. Þrátt fyrir að ríkisstjórnarflokk- amir standi að þessari fléttu er ekki þar með sagt að hún gangi að öllu leyti upp. Jafnvel þótt margir séu á því að Pétur Sigurðsson myndi sigra Ásmund Stefánsson í forsetakjöri á ASÍ-þinginu er of snemmt að afskrifa Ásmund ef hann gefur kost á sér áfram. Eins er alls óvíst að Pétur eða einhver annar fáist til að bjóða sig fram gegn Ásmundi. Þá er enn eitt sem er að gerast þótt hljótt fari. Fjórðungssamböndin eru nú í óða- önn að styrkja sig, ekki bara fyrir þing ASÍ heldur til frambúðar. Til að mynda er Alþýðusamband Aust- urlands að verða mjög öflugt og alls óvíst aö fulltrúar þess samþykki að taka þátt í leikfléttu stjórnarflokk- anna. Einn af reyndustu verkalýðs- leiðtogum landsins sagði í samtali við DV að alls óvíst væri að flokkarn- ir hefðu sömu tök á fulltrúum á ASÍ- þingi nú og þeir hafa haft til þessa. Margt hefði breyst á síðustu misser- um og því væri nú erfiðara aö spá í spilin en nokkru sinni fyrr. Það eina sem telja mætti víst í þessum efnum væri aö til mikilla átaka mundi koma á þinginu í nóvember vegna minnk- andi kaupmáttar og veikrar stöðu verkalýðshreyfingarinnar. -S.dór STÖDIN SEM HLUSTtXD ER 'H I ...4 TOPPNUMÍ Bjarni Ólafur Guðmundsson ER BEST ÞEKKTUR SEM NÆTURVAKTMAÐUR BYLGJUNNAR. Hann hefur starfað á Bylgjunni frá upphafi og hefur ótrúlega reynslu af tónlistarvali sem kemur hlustendum til góða eftir kl. 22 á virkum dögum. Allir fá eitthvað við sitt hæfi fyrir svefninn hjá Bjarna! BYLGJAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.