Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Blaðsíða 46
62
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988.
Ferðalög
Farbókunarkerfið Galileo:
Nákvæmari upplýsing-
ar og betri þjónusta
Nýtt farbókunar- og upplýsingakerfi
nokkurra helstu flugfélaga í Evrópu
verður tekiö í notkun í ágúst á næsta
ári. Kerfi þetta heitir Galileo og verð-
ur með höfuðstöðvar sínar í Swindon
á Englandi. Arnarflug verður um-
boðsaðili Galileos á islandi en meðal
eigenda kerfisins eru KLM. Swissair.
British Airways. Alitalia og Aer
Lingus. Galileo kemur til með að
keppa við annað sams konar kerfi,
Amadeus, sem er í eigu flugfélaga á
borð við SAS. Lufthansa og Air Fran-
ce. Flugleiðir hafa ákveðið að tengj-
ast Amadeus.
Stóru flugfélögin í Evrópu hafa
hingað til flest verið með eigin far-
bókunarkerfi. Þau sjá sig hins vegar
knúin til meiri samvinnu nú vegna
aukinnar samkeppni sem mun fylgja
í kjölfar meira frjálsræðis í flugmál-
um eftir stofnun eins innri markaðar
í löndum Evrópubandalagsins árið
1992.
N>ju farbókunarkerfm eiga að
vera algjörlega hlutlaus, þ.e. þau
draga ekki taum þeirra flugfélaga
sem eiga þau, á kostnað annarra.
Þannig á viðskiptavinurinn að geta
treyst þvi að fá upplýsingar um þann
ferðamáta sem honum hentar best,
óháð því hvar hann bókar ferð sína,
hvort sem það er hjá flugfélagi eða
ferðaskrifstofu. Að sögn aðstand-
enda Galileos munu allar pantanir
einnig ganga miklu hraðar fyrir sig
í þessu nýja kerfi til hagsbóta bæði
fyrir ferðasalann og viöskiptavininn.
Galileo kerfið er ekki eingöngu til
að panta flugferðir heldur verður
hægt að panta í gegnum þaö alla þá
þjónustu sem ferðamaður kann að
þarfnast, svo sem hótel, bílaleigubfia
og margt fleira.
Strax i næsta mánuði tengist Am-
arflug Mnu frá Galileo, og þá mun
koma í ljós hvaða möguleika kerfið
býður upp á. Ekki verður þó hægt
að panta ferðir fyrr en einhvern tíma
snemma á næsta ári þegar Arnarflug
tengist Galileo gegnum farbókunar-
kerfi hollenska flugfélagsins KLM.
Þegar Galileo verður svo endanlega
fullbúið í ágúst á næsta ári verður
ferðamönnum boðið upp á bestu
ferðapakkana sem aðstandendur
þess hafa boðið hver í sínu lagi fram
til þessa.
„Þetta verður stórt stökk fram á
við fyrir hinn almenna viðskipta-
vin,“ segir Halldór Sigurðsson, for-
stöðumaður þjónustusviðs Amar-
flugs. -gb
Jim Kutas, sölustjóri Galileo, og Halldór Sigurðsson, forstöðumaður þjón-
ustusviðs Arnarflugs, stinga saman nefjum. DV-mynd KAE
Union Station í Washington D.C.,
einhver glæsilegasta og sögufræg-
asta járnbrautarstöð Bandaríkjanna,
er nú að vakna aftur til lífsins eftir
margra ára vanhirðu. Gagngerar
endurbætur, sem kostuðu hátt í tvö
hundmð milljónir dollara, hafa fariö
fram á stöðinni og hún var tekin í
notkun á ný í síðustu viku.
Hún mun ekki aðeins þjóna sem
farþegastöð heldur einnig sem íburð-
armikil verslanahöll með meira en
eitt hundrað sölubúðum og veitinga-
stöðum og níu kvikmyndahúsum.
Union brautarstöðin var byggð
1907 en hefur verið lokuð síðan
1981. Aðalsalur hennar er með hvolf-
þaki og súlum, fagurlega útskorinn
að hætti mannvirkja í Róm hinni
fomu.
„Hún er alveg stórkostleg. Hún
verður ein fallegasta jámbrautar-
stöðin í landinu," segir John Jacob-
son, talsmaður bandaríska jám-
brautarfélagsins Amtrak.
Ein stórkostlegasta járnbrautarstöð Bandaríkjanna, Union Station i höfuðborginni Washington, hefur fengið andlitslyftingu. Þar taka menn nú lestina sina
auk þess sem þeir versla, borða og fara i bió. Símamynd Reuter
Tyrknesk böð og keituspil
Amtrak, sem gerir út 80 lestir til
og frá Washington á degi hverjum,
ætlar aö flytja aðalstöðvar sínar í
skrifstofurými Union-stöðvarinnar á
hæðinni fyrir ofan farþegaafgreiösl-
una. >
Union ér ein stærsta brautarstöð
Bandaríkjanna og þegar hún var upp
á sitt besta í heimsstyijöldinni síöari
fóm um hana 200 lestir og 175 þúsund
farþegar á degi hvetjum. Starfsmenn
voru fimm þúsund og þar var keilu-
braut, tyrknesk böð og sundlaug.
En stöðinni, sem er stærri en nær-
liggjandi þinghús Bandaríkjanna,
tók að hraka á árunum eftir stríð
þegar almenningur ferðaðist í ríkari
mæli með flugvélum og eftir þjóð-
vegakerfi landsins.
Farþegar hafa þurft að nota litla,
óhijálega byggingu á bak við aðal-
stöðvarhúsið síðan 1976, þegar
Bandaríkjaþing breytti aðalsalnum 1
ferðamannamiðstöð í tilefni 200 ára
sjálfstæðisafmælis landsins.
Vonir stóðu til að miðstöðin yrði
varanleg svo hinn gifurlegi ferða-
mannafjöldi til Washington gæti leit-
aö þangaö. Graflö var í gólf aðalsalar-
ins og þar útbúin aðstaöa til
skyggnumyndasýninga frá helstu
ferðamannastöðum borgarinnar. En
gestir létu á sér standa og miðstöð-
inni var lokað 1978.
Sveppir í gólfinu
Stóru byggingunni var lokað 1981
þegar hluti þaksins hrundi eftir
miklar rigningar. Síöan þá hafa far-
þegar orðið að ganga út á brautar-
pallana um subbuleg krossviðargöng
sem liggja hringinn í kringum bygg-
inguna. Á meðan hafa sveppir fengiö
að vaxa upp úr gólfi aðalsalarins.
Bandaríkjaþing stofnaði sérstakan
endurbyggingarsjóð fyrir stöðina,
með það fyrir augum aö breyta henni
aftur í farþegastöð og koma stórbrot-
inni hönnun arkitektsins Daniel
Bumham í fyrra horf. Burnham leit-
aði fyrirmynda að Union-stöð alla
leið til Rómar, í baðhúsum Diocleti-
usar og Konstantínusarboganum.
Framhlið hússins er byggð úr gran-
íti frá Vermont fylki, í nýklassískum
stíl, og á henni eru sex sex metra
háar höggmyndir sem hver vegur 25
tonn og eiga að tákna eldinn, raf-
magnið, frelsið, ímyndunaraflið,
landbúnaðinn og vélfræðina.
Aðalsalurinn er 40 metra hár og 200
metra langur með marmaragólfi.
Utan á svölunum eru gipsmyndir af
36 rómverskum hermönnum og gull-
skreytingar í lofti og á veggjum hafa
verið endurnýjaöar.
Höföingiegar móttökur
Jámbrautarstöðin var snar þáttur
í lífi sérhvers BandaríKjaforseta, allt
frá Theodore Roosevelt til Dwight
Eisenhower, eða þar til forsetar tóku
upp á því að ferðast nær eingöngu
með þyrlum og flugvélum. Sérstök
forsetasvíta var í stöðinni þar sem
tekið var á móti erlendum þjóðhöfð-
ingjum eins og Georg VI Bretakóngi
og Haile Selassie Eþíópíukeisara.
Nýja járnbrautarstöðin verður
með bílastæði fyrir 1300 bíla. Hún
hefur nú þegar verið tengd neðan-
jarðarlestakerfi borgarinnar.
Endurbætumar á Union-stöð fylgja
í kjölfar svipaörar vinnu við Willard
hótelið, Pósthústuminn frá 1899 og
Fréttamannamiðstöðina í miðborg
Washington. Þá hefur járnbrautar-
stöðvum í St. Louis í Missouri og
Indianapolis í Indiana einnig nýlega
verið breytt í verslanamiðstöðvar.
Þeir sem að þessum endurbótum
stóðu vonast til að stöðin og verslan-
ir hennar og veitingastaðir muni laða
að sér 15-20 milljónir gesta og far-
þega á ári.
Union Station í Washington D.C.:
Virðuleg brautarstöð
tekin í notkun á ný