Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Page 61

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Page 61
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988. 77 dv Jon Provost, sjö ára gamall, og bestl vlnur Lassle. Hundurinn fékk hærri laun en stráksi. / Hann lék Timmy i Lassie þáttunum Jon Provost er lítiö þekktur í dag. Hann var hins vegar heims- frægur sem barn. Þá lék hann litla, ógreidda Timmy í sjón- varpsmyndaflokknura um hund- inn Lassie. í sjö ár lék Provost í Lassie-þáttunum en í dag er hann orðinn 38 ára gamall. „Ég varð aldrei ríkur á þáttunum," segir Jon Provost. Hann var annar leikarinn sem lék Timmy og það var á árunum 1957 til 1964. Aðeins eitt vandamál var að fa starfið á sínum tíma. Lassie varð aö líka við strákinn. Provost lék við hann í viku og hundinum féll við hann. Þar meö voru úrslitin ráðin og Jon Prov- ost fekk starflð. Vinnan við þættina var mikil og Jon Provost átti sjaldnast fri. Hann þénaði talsvert en stór hluti fór í skatta. „Lassie þénaði samt miklu meira, enda var hann stór- stjama.“ Eftir aö Provost hafði leikið Timmy í sjö ár langaði hann að hætta. „Eg var orðinn fjórtán ára og mig langaði í skóla með öðrum krökkum. Auðvitað langaði mann líka að hitta stelpur og verða alvöru manneskja,“ seg- ir Provost „Fólk þekkti mig ein- ungis sem Timmy." Provost fór í einkaskóla og lék jafnframt i nokkrum kvikmynd- um. Eftir háskólanám í Kalifom- íu sneri hann sér aö kennslu. Nú er Jon Provost kvæntur maöur. Eiginknnan heitir Sandy og þau eiga tvö böm, Ryan, fjögurra ára, og Katie, tveggja ára. Auk þess hafa þau tvo hunda á heimili sínu í Santa Rosa en hvorugur er þó af Collie-kyni. Ekki segist hann haíá áhuga á sviösljósinu að nýju og ekki horf- ir hann mikið á sjónvarp. „Flest það efni sem bömum er boðið upp á f dag er svo lélegt að ég myndi aldrei bjóða bömum mínum upp á að horfa á þaö. Aðeins einn af fáum þáttum sem þau hafa gam- an af, hefur boðskap, góð áhrif, skemmtilegan söguþráð og góöan endi. Þaö er myndaflokkurinn um Lassie.“ Jon Provost i dag. Honum Ilnn8t efnl það »em börnum er boðlð upp á i dag bæöl ómerkilegt og lélegt. Sviðsljós Ektaparið Karl Bretaprins og Díana kona hans ætla að heimsækja Kína og Hong Kong á næsta ári. Sérstök tilkynning hefúr verið gefln út þess efnis en áður höfðu verið uppi sögur um aö Austurlandaferöin stæði fyrir dymm. Enn hefur ekki verið ákveðið ná- kvæmlega hvenær ferðin verður far- in. Það mál er nú í höndum kín- verskra embættismanna. Þeir hafa ekki enn fundið út hvenær best er að taka á móti þeim hjónum. Þó er talið aö fyrstu mánuðir næsta árs verði valdir til heimsóknarinnar. Yfirvöld í Hong Kong ætla að velja tíma til heimsóknarinnar eftir að Kínverjar hafa komist að niöurstöðu og miða heimsóknina tii borgríkisins við hana. Karl og Díana hafa aldrei áður komið til Kína. Heimsóknir Karls og Díönu vekja alltaf mikla athygli. Fyrir skömmu kom Díana í bílaverksmiöjur Ford á Norðvestur-Englandi. Verkamenn þar tóku upp á því að blístra aö prins- essunni en sagt er að hún hafi roön- að. Ýmsum þótti uppátæki verka- mannanna bíræfið í meira lagi en á blaðamannafundi eftir heimsókina gerði Díana gott úr öllu saman. Hún viðurkenndi þó í samtölum viö verkakonur í verksmiðjunni að sér þættu karlmenn ekki alltaf nægilega kurteisir 1 sinn garð. Hún sagði að karlar í þjónustuliði á heimiii hennar ættu það til aö vera með stríðni þann- ig að hún væri ekki óvön svipuðum Blaðamenn á Englandi gera ráð eru menn þar í landi annálaöir fyrir uppákomum og þeirri í verksmiðj- fyrir að prinsessan mæti meiri kurt- prúðmannlega framkomu. unni. eisi þegar hún kemur til Kina enda Karl Bretaprins og Díana kona hans fara væntanlega til Kina eftir áramótin. Karl og Díana á leið til Kína André Bachmann í kvöld Mímisbar /l/H/IDELS ÞÓRSC/IFÉ Brautarholti 20 Símar: 23333 & 23335 Ari Jónsson skemmtir í kvöld Hljómsveitin í GEGNUM TÍÐINA leikur fyrir dansi frá 22-3 Rúllugjald 500,- Snyrtilegur klæðnaður JXUF^UEIMUM 74. StM!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.