Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990.
Fréttir ___________________________________________________________________________^
Líklegt að Mikligarður hf. og verslunardeildin sameinist:
Stórkaupmenn verða ekki
hluthafar í Miklagarði
- Sambandið neitar KRON algerlega um tugmilljóna viðskiptavild
Fyrirtæki og einstaklingar innan
raöa Félags íslenskra stórkaup-
manna og iönrekenda veröa ekki
hluthafar í Miklagarði hf. Málið var
skoðað af stórkaupmönnum að
beiðni Þrastar Ólafssonar, forstjóra
Miklagarðs hf. og KRON. Áhugi
reyndist lítill sem enginn. Framtíð
Miklagarðs er því enn óráöin. Lang-
líklegast er að Sambandið yflrtaki
fyrirtækið og sameini þaö verslunar-
deild Sambandsins, samkvæmt
heimildum DV.
Föstudaginn 8. júní síðastliðinn, á
seinni degi aöalfundar Sambandsins,
var haldinn íjölmennur fundur stór-
kaupmanna um málefni Miklagarðs.
Fundurinn var ekki síst haldinn
vegna þess að margir stórkaupmenn
eiga inni hjá Miklagarði.
Á þennan fund mætti Þröstur Ól-
afsson og geröi hann grein fyrir stöðu
Miklagarðs hf. Hann mun jafnframt
hafa sagt frá þeirri hlutaijársöfnun
sem staðið hefur yfir hjá fyrirtækinu.
Þröstur bað menn að hugsa vel um
það hvernig ástand mála yrði ef Hag-
kaup fengi enn meiri oddaaðstöðu á
matvælamarkaönum og óskaöi jafn-
framt eftir að stórkaupmenn íhug-
Mikligarður: verður liklega sameinaður verslunardeild Sambandsins.
uðu að gerast hluthafar í fyrirtæk-
inu.
Stórkaupmenn ákváðu
að skoða málið
Stórkaupmenn ákváðu á fundinum
að láta skoða málið og var það af-
greitt þannig að ákveðinn starfsmað-
ur á Skrifstofu viðskiptalífsins, sem
Félag stórkaupmanna á aðild að á
móti Verslunarráði, yrði látinn
kanna hug hvers og eins til málsins
í algerum trúnaði við hvern og einn.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Gengið var út frá því að til að málið
gæti áfram veriö á dagskrá yrði mið-
að við að stórkaupmenn kæmu með
að minnsta kosti 100 milljónir króna
hlutafé. Það tókst ekki.
Niðurstaða könnunarinnar var sú
að langflestir sýndu engan áhuga á
að leggja fram hlutafé í Miklagarð
hf. Einhveijir munu samt hafa veriö
tilbúnir með nokkrar milljónir. Mál-
ið hefur því verið tekiö út af dagskrá
hjá stórkaupmönnum.
Skuldum breytt í hlutafé
Að sögn heimildarmanna DV stóö
aldrei til að stórkaupmenn legöu
fram fé til greiðslu hlutafjárins held-
ur aö hluta þess sem þeir eiga inni
hjá fyrirtækinu yrði breytt í hlutafé.
Á löngum stjórnarfundi hjá Mikla-
garði hf. fyrr í þessari viku var farið
yfir stöðuna í hlutaíjársöfnuninni og
kom fram hve KRÖN gekk illa að
safna 100 milljóna króna hlutafé á
móti þeim 100 milljónum sem Sam-
bandið var búið að ákveða að leggja
fram. Munu aðeins hafa safnast um
10 milljónir króna.
KRON-fulltrúar óskuðu eftir um
eins mánaðar fresti til frekari hluta-
fjársöfnunar. Ekki fékkst svar við
því. Áöur hefur stjórn Miklagarðs
hf. gefið KRON frést til að safna
hlutafé. Fyrst átti söfnuninni að vera
lokið í maílok. Frestur var síðan gef-
inn til loka apríl. Þá loka maí. Og
loks var síðasti fresturinn til 15. júní.
Hann er liðinn - og gott betur.
Bráðabirgðastjóm Miklagarðs hf.
skipa þeir Atli Gíslason, Ásgeir Jó-
hannesson, Ólafur Sverrisson, Guð-
jón B. Ólafsson og Ólafur Friðriksson.
Sambandið neitar KRON
um tugmilljóna viðskiptavild
Fleira en hlutafiársöfnun KRON
hefur borið á góma varðandi Mikla-
garð hf. Þannig hefur DV heimildir
fyrir því að KRON hafi óskað eftir
því viö Sambandið að viðskiptavild,
good-will, KRON yrði metin á um 70
milljónir króna inn í Miklagarð hf.,
eða þá upphæð sem eigiö fé KRON
er neikvætt um. Ætlunin með þessu
var að gera KRON upp á sléttu, ann-
ars liggur fyrir að það verði gert upp
sem gjaldþrota fyrirtæki. Sambandið
hefur algerlega neitaö að verða við
þessari ósk.
Eins og staðan er núna er langlík-
legast að Mikligarður hf. verði yfir-
tekinn af Sambandinu og sameinaöur
verslunardeiidinni þar sem fullreynt
virðist að verkalýðshreyfingin, fé-
lagsmenn í KRON, stórkaupmenn og
aðrir séu ekki tilbúnir að leggja fram
hlutafé sem neinu nemur. -JGH
Casey í Keflavikurhötn i gær. Hann millilenti hér á leið sinni umhverfis jörðina á sjóflugvél sinni. DV-mynd Ægir
Umhverf is jörðina í sjóf lugvél
Flugmaðurinn Tom Casey, sem er
á leið umhverfis jörðina á sjófiugvél,
kom við hér á landi í gær og hélt
áfram héðan til Skotlands.
Flugmaðurinn lagði af stað frá
Bandaríkjunum 20. maí síðastliöinn,
nákvæmlega 63 árum eftir að Char-
les Lindbergh lagði af staö í hið sögu-
fræga flug yfir Atlantshafið. Hann
vonast eftir að verða fyrsti flugmað-
urinn til aö fljúga umhverfis jöröina
með því að millilenda eingöngu á
vatni.
Þetta er önnur tilraun Caseys. í
fyrrasumar varð hann að hætta við
er vél hans hvolfdi og sökk næstum
því í Nauthólsvíkinni.
Hann lenti í Keflavíkurhöfn í fyrri-
nótt en lagði af stað til Skotlands um
þrjúleytið í gærdag. Casey reiknar
með að millilenda í 20 löndum á flugi
sínu umhverfis jörðina.
-PÍ
Eppo til Kulusuk í gær
Hollendingurinn fljúgandi, Eppo
Numan, er kominn af stað á ný. Hann
lagði af stað í gærmorgun frá flug-
veílinum í Reykjavík og stefndi til
Grænlands. Ferðin tók um 7 tíma og
hann lenti heilu og höldnu í Kulusuk
um klukkan 6 í gærkvöldi. Ferðin
gekk að óskum enda veðrið gott.
Hann stefnir síðan á New York.
Skrifræðiskarlar og vont veður
neyddu hann til þess að fresta ferð-
inni hér á landi í fyrra en nú heldur
hann ótrauður áfram. Danir kröfðust
þess að Eppo hefði með sér fylgiflug-
vél sem varð að hringsóla með hon-
um alla leiðina. Þessi krafa Dana
hefur mikinn kostnaðarauka í fór
með sér og hefur Hoilendingurinn
neyðst til að selja matsölustað sinn
í Haag til að fiármagna ævintýrið.
-pj
10,8% verðhækkun botnfiskafurða:
Hækkunin fyrr og
meiri en gert
varráðfyrír
- Frystitogaramir fengu mestu hækkunina
„Þetta er betra en viö áttum von á
og verðið á freðfiski er þar með orðið
4-5% hærra en meðaltal síðustu
fimm ára,“ sagði Árni Benediktsson,
framkvæmdastjóri Félags sam-
bandsfrystihúsa, en nú er ljóst að
botnfiskafurðir íslendinga hafa
hækkað um 10,8% frá janúar til júní.
ísfiskur er ekki með í þessum tölum.
Upplýsingar um þetta koma fram í
nýjasta hefti Fiskifrétta en það er
Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur á
Þjóðhagsstofnun, sem reiknað hefur
þetta út.
„Þessar hækkanir eru komnar
fram úr því sem gert var ráð fyrir í
forsendum kjarasamninga. Þetta er
auðvitað gífurlegur bati en það sem
dregur úr honum er er samdráttur í
veiðunum. Það sem hefur gerst er
aö þær verðhækkanir sem við gerð-
um ráð fyrir á árinu eru komnar
fram núna. Ég á ekki von á því að
það verði mikið meira og í sumum
tilfellum óttumst við verölækkun, til
dæmis á rækju,“ sagði Árni. Hann
sagðist þó eiga von á enn frekari
hækkun nokkura fisktegunda.
Það vekur athygli að verð á afurð-
um frystihúsa hefur hækkað mun
minna en verð hjá frystitogurum, eða
9,6% á móti 18,7%. Saltfiskur hefur
hækkað um 10,8%. Leitað var skýr-.
inga hjá Árna á þessu:
„Sjófrysti fiskurinn er meira á
þeim mörkuðum sem hafa hækkað
meira. Það fer lítiö af sjófrystum fiski
til Bandaríkjanna en þeir hafa verið
býsna tregir í hækkunum. Mun treg-
ari en V-Evrópa og Japan,“ sagð
Árni.
-SMJ
Átök á Litla-Hraum:
Réðst á samf anga
Fangi á Litla-Hrauni réðst á sam- Málið verður rannsakað. Ekki er
fanga sinn með látum. Ekki er vitað
hvers vegna fanginn gerði þetta.
Fanginn, sem ráðist var á, fór sam-
kvæmt læknisráði í myndatöku.
enn vitað hvers vegna fanginn
réðst að hinum. Sá sem varð fyrir
árásinni tók ekki á móti og því uröu
ekkiátökmillimannanna, -sme
Milljón til írans
Stjórn Rauða kross Islands hefur
ákveðiö að leggja fram 1 milljón
króna úr Hjálparsjóði félagsins til
fómarlamba jarðskjálftanna í íran.
Þá hefur hún ákvöið að öll framlög
á gíróreikning Rauða krossins,
90000-1, renni til fórnarlamba skjálft-
ans frá og með gærdeginum. -gse