Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990.
21
i-
Sviðsljós
Jessica Lange og Sam Shepard.
Lauren Bacall og Humphrey Bogart.
Þegar ástin er ekki bara leikur
Leikarar hafa oft lýst því hvernig
þeir fari að því að leika í magn-
þrungnum ástarsenum þar sem á
yfirborðinu lítur ekki út fyrir ann-
að en að alvarlega ástfangin pör séu
að reyna fyrir sér í kossum og ke-
leríi.
„Jú þetta er erfiðara en það lítur
út fyrir,“ segja sumir, „ég hélt þetta
myndi aldrei takast," segja aðrir.
Svo eru það þeir sem finnst þetta
lítið mál og taka því bara rétt eins
og öðrum leik í kvikmynda- eða
sviðsleik sínum. Sem og það á að
vera. En stundum kemur það fyrir
að pörin hafa hreinlega ekki getað
hætt að kyssast eftir að leikstjórinn
hefur kallað „khppa“. Þau hafa
orðið ástfangin í raunveruleikan-
um.
Staðreyndir af þessu tagi eru
gamlar eins og kvikmyndaiðnaður-
inn sjálfur. Þekkt er dæmið af
Gretu Garbo og John Gilbert er þau
léku á móti hvort öðru í þögulii
mynd áriö 1927. Verið var að taka
upp ástríðufulla senu með þeim og
er leikstjórinn tilkynnti að tökum
væri lokið héldu þau áfram að
kyssast eins og ekkert hefði í sko-
rist.
Og síðan hefur ekkert lát orðið á
því að ástin á hvíta tjaldinu nái að
teygja anga sína út fyrir leikinn -
veröi að raunverulegri ást. Stund-
um gerist það að annar leikarinn
verður hrifmn af þeirri persónu
sem mótleikarinn leikur. Eins og
gerðist með Humphrey Bogart og
Lauren Bacall á fimmta áratugnum
er þau léku saman í myndinni „To
Have and Have Not“. Þá varð Bog-
art hrifinn af stúlkunni sem Bacail
lék í myndinni og hún varð að gjöra
svo vel aö leika það hlutverk alla
tíð.
Þótt leikarar hafi orðið ástfangn-
ir af mótleikurum sínum og farið
út í ástarsambönd með þeim, er
æði misjafnt hve löng og stöðug þau
sambönd hafa verið. Sum þeirra
hafa endað í farsælum hjónabönd-
um á meðan önnur hafa rétt náð
að myndast þegar þeim hefur verið
slitið.
Og margar eiginkonur Holly-
woodleikara hafa mátt þola ýmis-
legt vegna of náinna kynna eigin-
manna þeirra við samstarfskon-
urnar. Sumar hafa ekki látið fram-
hjáhaldið eyðileggja hjónaband sitt
en aðrar hafa ekki þolað sam-
keppnina og ótryggðina.
Og yíst eru þau óteljandi stuttu
samböndin af því tagi sem hér er
lýst. En af þekktum og nýlegum
dæmum, þar sem alvara hefur ver-
ið á bak við, má nefna samband
Jessicu Lange og Sam Shepard, en
þau kynntust er þau léku saman í
myndinni „Frances", Geenu Davis
og Jeff Goldblum sem fyrst léku
saman í hrylhngsmyndinni „Tran-
sylvania &-5000" og Goldie Hawn
og Kurt Russell en þau kynntust
fyrir sex árum er þau léku saman
í myndinni „Swing Shift“. Þannig
mætti lengi telja.
Svo eru til þau sambönd af þess-
ari gerðinni sem virst hafa nokkuð
traust þangað til óskarinn kom upp
á milh makanna og eyðilagði sam-
bandið. Jú, sjálf óskarsverðlaunin.
Hollywoodleikari getur átt jafn er-
fitt með að horfa upp á maka sinn
ganga betur í starfi en hann sjálf-
ur, rétt eins og margir sem fást við
annars konar iðju.
Marlee Matlin og Wilham Hurt
urðu ástfangin upp fyrir haus er
þau léku saman í myndinni „Chil-
dren of Lesser God“. Sambandið
stóð í dágóðan tíma, á hohywoo-
díska vísu, en sagan segir að Hurt
hafi ekki getað þolað það er óskars-
verðlaunin féllu í hlut stúlkunnar.
Svipaða sögu má segja af Sally Fi-
eld og Burt Reynolds.
Það er ekki vandalaust að vera
Hollywoodleikari, ekki síst þegar
ástin er annars vegar.
AMSTERDAM
HLIÐIÐ
AÐ EVRÓPU
Raunar má segja að hún sé hliðið að allri heimsbyggðinni. Þaðan er greið leið
með bílaleigubílum (þeim ódýrustu í Evrópu) og/eða lestum, niður um alla
álfuna. Þaðan flýgur líka KLM til yfir 130 borga í 80 löndum. Á mörgum
þessara flugleiða getur Arnarflug boðið sérstaklega hagstæð fargjöld. Hliðið
er opið. Gjörið svo vel og gangið inn.
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími: 84477
Flugstöðinni: 92-50300
Vista er afburöa hreinsiefni
fyrir allar bflainnréttingar,
gúmmf, vfnil, leöur, plast
og króm. Einfalt og þægi-
legt I notkun. Úöið Vista
á þaö sem hreinsa skal,
bföið andartak meöan efniö
leysir upp óhreinindin,
þurrkiö létt yfir og árang-
urinn er - skfnandi.