Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990.
59 r
Afmæli
Haraldur Ágústsson
Haraldur Ágústsson, skipstjóri og
útgeröarmaöur, Háaleitisbraut 143,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Haraidur fæddist að Hvalsá í
Steingrímsfiröi og ólst þar upp en
eftir gagnfræöaskólanám fór hann
íjórtán ára að stunda sjómennsku á
síldarbát frá Akranesi. Hann var
síðan á ýmsum bátum þar til hann
varö formaður áriö 1950 fyrir
tengdafoður sinn á m.b. Frigg á
Skagaströnd. Þaö ár hófu Haraldur
og kona hans sinn búskap á Skaga-
strönd en þau fluttu til Reykjavíkur
1953 og hafa búið þar síðan.
Haraldur lauk vélstjóranámskeiði
1948 og lauk námi við Sdtýrimanna-
skólann í Reykjavík 1955. Hann var
síðan skipstjóri á ýmsum bátum og
má þar nefna Heiðrúnu frá Bolung-
arvík 1955-58 og Guðmundj Ólafs-
son RE1958-64 en þá eignaðist hann
Reykjaborg RE-25. Síðustu árin á sjó
var Haraldur annar tveggja skip-
stjóra á Sigurði RE-4 en það var árin
1975-88.
Nú gerir Haraldur út þrjátíu tonna
bát úr Reykjavík, Reykjaborg RE-25.
Haraldur var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík 1970-74. Hann sat í hafn-
arstjórn Reykjavíkur og í útgerðar-
ráði BÚR á sama tíma. Haraldur sat
í stjórn Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagsins Öldunnar um árabil. Árið
1979 var hann sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf að sjávarútvegsmálum.
Haraldur kvæntist 17.6.1950 Guð-
björgu Gunnarsdóttur, f. 27.3.1930,
húsmóður, dóttur Gunnars Guð-
mundssonar, f. 12.7.1907, d. 21.6.
1976, skipstjóra og útgerðarmanns á
Drangsnesi á Skagaströnd, og Jak-
obínu Guðmundsdóttur, f. 7.4.1902,
d. 31.1.1982, húsmóður.
Börn Haralds og Guðbjargar eru:
Guðrún Júlía, f. 13.10.1949, skrif-
stofumaður, gift Bergi Hjaltasyni, f.
20.2.1948, framkvæmdastjóra hjá
K. Auðunsson lif., og eru börn
þeirra: Guðbjörg María, f. 8.11.1968:
Ásta Björk, f. 29.9.1972: og Harald-
ur, f. 7.12.1980.
Gunnar Jakob, f. 13.5.1953, rekur
fyrirtækið Búbót í Kópavogi,
kvæntur Soffíu S. Egilsdóttur, f. 7.3.
1953, húsmóður, og eru börn þeirra:
Hrafnkell, f. 22.9.1977: Haraldur
Óli, f. 8.2.1980: og Hildur Björk, f.
10.7.1986.
Rafn, f. 25.7.1957, skrifstofustjóri
hjá Seifi, kvæntur Elsu Maríu
Björnsdóttur, f. 24.12.1957, lyfja-
tækni, og eru börn þeirra: Björn
Gunnar, f. 31.5.1977: Áslaug María,
f. 17.5.1982: og Elín Margrét, f. 17.3.
1989.
Haraldur, f. 1.1.1960, skrifstofu-
maður hjá Seifi hf., kvæntur Krist-
rúnu Ingvarsdóttur, f. 11.7.1958,
húsmóöur, ogeru börnþeirra: Inga
Jóna Heiðarsdóttir, f. 6.8.1976: og
Bylgja Björk, f. 31.1.1989.
Foreldrar Haralds eignuðust sjö
syni og er Haraldur þeirra elstur.
Hinir eru: Benedikt, f. 16.7.1931,
skipstjóri og útgerðarmaður,
kvæntur Jónu Guðlaugsdóttur og
eiga þau fjögur börn; Júlíus, f. 17.12.
1932, f. 1.6.1987, skipstjóri í Reykja-
vík, var kvæntur Lilju Árnadóttur
sem einnig er látin en þau eignuð-
ust fjögur börn; Óskar, f. 10.9.1937,
bifreiðastjóri í Grindavík, kvæntur
Margréti Sigurðardóttur og eiga þau
tvær dætur; Ingi, f. 15.6.1935, skip-
stjóri og útgerðarmaður í Reykja-
vík; Svavar, f. 8.10.1941, skipstjóri
og útgerðarmaður, kvæntur Sumar-
rósu Jónsdóttur og eiga þau tvo syni
auk þess sem Svavar á eina dóttur
fyrir hjónaband, og Gísli, f. 19.12.
1946, málarameistari í Reykjavík,
var kvæntur Sigurlaugu Þórðar-
dóttur og eignuðust þau fjögur börn
en þau slitu samvistum. Sambýlis-
kona Gísla er Hrafnhildur Björg-
vinsdóttir.
Foreldrar Haralds: Ágúst Bene-
diktsson, f. 11.8.1900, lengst af bóndi
á Hvalsá í Steingrímsfirði, og kona
hans, Guðrún Þórey Einarsdóttir,
f. 5.1.1908, húsfreyja. Ágúst og Guö-
rún búa nú á Dalbraut 20 í Reykja-
vík.
Foreldrar Ágústs voru Benedikt
Árnason og Oddhildur Jónsdóttir
frá Steinadal í Kollafirði í Stranda-
Haraldur Agústsson.
sýslu.
Foreldrar Guðrúnar voru Einar
ólafsson og Ingunn Gísladóttir frá
Þórustöðum í Bitrufirði í Stranda-
sýslu.
Haraldur og Guðbjörg verða að
heiman á afmælisdaginn.
IV
Axel Jóhann Júlíusson
Axel Jóhann Júlíusson, bifreiða-
stjóri, Fomósi 12, Sauðárkróki,
verður sextugur á morgun. Axel
Jóhann er fæddur í Koti í Grenivík
og ólst upp í Hrísey í Eyjafirði. Axel
hefur lengst verið bifreiðastjóri.
Axel og Unnur bjuggu í Hrísey í 18
ár en fluttu þá til Sauðárkróks og
hafa búið þar síðan. Axel kvæntist
23. maí 1959 Unni Jóhannesdóttur,
f. 11. maí 1959, verslunarmanni. For-
eldrar Unnar eru: Jóhannes Skúla-
son, b. á Geirmundarhóli í Sléttu-
hhð, og kona hans, Sigurlaug Jóns-
dóttir. Fósturbörn Axels og Unnar
eru: Gunnar, f. 18. janúar 1959, bif-
reiðastjóri á Akureyri, var í sambúð
með Ólöfu Einarsdóttur frá Dúki í
Sæmundarhlíð, börn þeirra eru:
Ingimar Axel, f. 17. maí 1981, og
Kristrún Huld, f. 22. janúar 1984.
Gunnar og Ólöf slitu samvistum, en
Unnur og Axel tóku Ingimar Axel
að sér. Gunnar er nú í sambúð með
Þuríði Jónsdóttur frá Stóruvöllum
í Bárðardal og á eina stjúpdóttur,
Lilju Björk Ágústsdóttur. Þriðja
fósturbarn Axels og Unnar er
Hanna Bryndís Þórisdóttir, f. 2.
febrúar 1970. Systkini Axels eru:
Þorsteinn, býr á Húsavík, kvæntur
Sigríði Árnadóttur frá Siglufirði,
sonur þeirra er Ámi. Þorsteinn átti
eina dóttur áður, Guðlaugu; Sigur-
geir, býr í Hrísey, kvæntur Elu
Jónsdóttur, börn þeirra eru: Heimir,
Lovísa María og Guðbjörg. Stjúp-
sonur Sigurgeirs er Stefán Jón
Hreiðarsson; Halldóra, gift Einari
Vilhjálmssyni, tollverði í Garðabæ,
börn þeirra eru: Vilhjálmur, Júlíus,
Guðrún og Halldór; Esther, býr í
Hrísey, gift Tryggva Ingimarssyni,
börn þeirra eru: Alda Lovísa, Ingi-
mar og Linda Júlía; Hafdís, býr í
Hrísey, gift Guðlaugi Jóhannessyni
og eiga þau fjögur börn á lífi, en ein
dóttir þeirra dó í bernsku, börn
þeirra eru: Jóhannes Elvar, Sigur-
björg, Sigríður Lovísa og Arnar Ingi;
Sigrún, gift Gunnari Friðrikssyni,
búa á Dalvík, börn þeirra em:
Axel Jóhann Júliusson.
Rúnar Júlíus, Hanna Dögg og Viðar
Örn; Júlíus Berg, býr í Hrísey.
Foreldrar Axels eru: Júlíus Stef-
ánsson, f. 5. desember 1903, d. 11.
júlí 1970, smiður í Hrísey, og kona
hans, Lovísa Sigurgeirsdóttir, f. 18.
apríl 1905. Axel tekur á móti gestum
á afmælisdaginn í Hótel Varmahlíð
eftirkl. 16.
Gestur Auöunsson
Gestur Auöunsson, Birkiteigi 13,
Keflavík, er sjötíu og fimm ára í
dag. Gestur er fæddur á Þykkvabæj-
arklaustri og ólst upp á Þykkvabæ
í Landbroti. Hann vann við sjó-
mennsku og verkamannastörf í
Vestmannaeyjum til 1940 er hann
fluttist til Keflavíkur og vann þar
við skipasmíði. Gestur var formað-
ur Sjálfsbjargar í Keflavík í þrjú ár,
formaður Bridgefélags Keflavíkur í
fimmtán ár og í stjórn Bridgefélags
íslands í fjögur ár. Hann hefur sam-
ið niðjatal Guðmundar Loftssonar í
Holti, 1983. Sonur Gests fyrir hjóna-
band og Ástu Skæringsdóttur er
Rafn Eyfell, f. 23. maí 1944, ráðsmað-
ur í Þjóðleikhúsinu, kvæntur
Svandísi Ingibjartsdóttur, börn
þeirra eru: Ásta Ragnheiður, f. 1968;
Anna Lilja, f. 1974 og Inga Rós, f.
1976. Gestur kvæntist 26. desember
1953 Friðgerði Rannveigu Kær-
nested Finnbjörnsdóttur, f. 22. júlí
1918, ljósmóður. Foreldrar Friðgerð-
ar voru Finnbjörn Þorbergsson
verslunarstjóri, síðar b. í Miðvík í
Aðalvík, og kona hans, Helga Kristj-
ánsdóttir Kærnested. Börn Gests og
Friðgeröar eru: Auðunn Páll, f. 29.
mars 1952, skipasmiður í Keflavík,
sambýhskona hans er Ester Sumar-
hðadóttir, börn þeirra eru Friðgerð-
ur Rannveig og Gestur, tvíburar, f.
14. september 1988; Steinunn Sigríð-
ur, f. 16. september 1955, skrifstofu-
maður á Keflavíkurflugvelli. Systk-
ini Gests eru: Sigurjón, f. 1917, eftir-
litsmaður með Sambandsfrystihús-
unum; Haraldur, f. 1922, vélstjóri í
Rvík; Kjartan, f. 1923, verkamaður
í Rvík; Bárður, f. 1925, skipasmíða-
meistari í Garðabæ, og Magnea
Erna, f. 1929, hjúkrunarfræðingur í
Hafnarfirði.
Foreldrar Gests: Auðunn Jakob
Oddsson, f. 25. september 1893, d. 29.
desember 1969, b. á Þykkvabæjar-
klaustri, ogkona hans, Steinunn
Sigríður Gestsdóttir, f. 24. ágúst
1889, d. 6. október 1965. Auðunn var
sonur Odds, b. á Þykkvabæjar-
klaustri, Brynjólfssonar, b. á
Þykkvabæjarklaustri, Eiríkssonar,
b. í Hraungerði, Guðmundssonar,
b. í Holti í Mýrdal, Loftssonar. Móð-
ir Eiríks var Ástríður Pálsdóttir.
Móðir Ástríðar var Oddrún Bjarna-
dóttir, lögréttumanns á Móeiðar-
hvoli, Þórðarsonar. Móðir Auðuns
var Hallfríður Oddsdóttir, b. á Kvía-
bóli, Árnasonar og konu hans, Sol-
veigar Hannesdóttur.
Steinunn Sigríður var dóttir Gests
b. á Ljótarstöðum í Skaftártungum,
Bárðarsonar, b. í Hemru, Jónsson-
Gestur Auöunsson.
ar. Móðir Gests var Þuríður Vigfús-
dóttir, b. á Borgarfelli, Bótólfssonar,
b. í Hlíð, Jónssonar. Móðir Vigfúsar
var Kristín ísleifsdóttir, prests á
Höfðabrekku, Guðmundssonar,
Vigfússonar, prests á Felli i Mýrdal,
ísleifssonar. Móðir Steinunnar var
Sigríður Ólafsdóttir, b. í Kerlingar-
dal, Gíslasonar og konu hans, Sig-
ríðar Lýðsdóttur, sýslumanns í Vík,
Guðmundssonar. Gestur verður að
heimanídag.
Til hamingju með
afmælið 24. júní
95 ára 50ára
Jóhannes Jónsson, Flóðatanga, Stafholtstungna- hreppi. Hrafnkell Egilsson, Sporðagmnni4, Reykjavík. Eymundur Runólfsson, Stuðlaseli 42, Reykjavík. Guðjón Þórir Þorvaldsson, Breiðvangi 79, Hafnarfirði. GeirHauksson,
85ára
Pálína Betúelsdóttir, Hátúni 10B, Reykjavík. Sævangi 45, Hafnarfirði. Guðrún Árnadóttir, Suðurgötu 59, Sigiufiröi. Sigþór J. Sigurðsson,
80ára Mávahrauni 18, Hafnarfirði. Óli Már Guðmundsson, Hegranesi 33, Garðabæ. Öml.S. Isebarn, Ánalandi 1, Reykjavík.
Áslaug Ásgeirsdóttir, Ásbúð, Mosfellsbæ. Kristborg Sigurðardóttir, BerunesiII, Beruneshreppi.
40ára
70 ára Þórdís Elín Gunnarsdóttir, , Stórholti25, ísafirði. Ólöf María Jónsdóttir, Torfufelh 33, Reykjavík. Ólafur Eðvarð Morthens, Langholtsvegi 108C, Reykjavik. Gylfi Jónsson, Sæbakka, Stokkseyri. Sigurður Guðmundsson, Lyngheiði 15, Selfossi.
Helga Fossberg, Ásvallagötu 7, Reykjavík. MaureenO, Mahony, Frakkastíg 12A, Reykjavík.
60 ára
Axel Júhusson, Fomósi 12, Sauðárkróki. Sigríður Böðvarsdóttir, Kirkjulæk I, Fljótshlíðarhreppi.
Dagmar Guni Dagmar Gunnlaugsdóttir, Reykási 47, Reykjavík, verður sextug á mánudaginn. Hún og maður hennar, Henning Backman, taka á móti gestum í nlaugsdóttir Safnaðarheimiii Bústaðakirkju sunnudaginn 24.6. mihi klukkan 15 og 18:00.
Dagmar Gunnlaugsdóttir.
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
norðan við Kaupstað,
sími 670760
Öll
• r •