Þjóðviljinn - 24.12.1968, Page 105
I.ucas, ósvífnastur allra falsara,
slapp með tveggja ára tukthús og
300 franka sekt. Þegar hann kom
út tók hann þegar til við fyrri
iðju ....
SÉRKENNILEGAR
FRAMHALDSSÖGUR
Það hefur og verið allalgengt
að menn settu saman áframhald
frægra verka af ærið hæpnum
hvötum. Rússneski höfundurinn
Kúprín skrifaði um aldamótin
skáldsöguna Gryfjan sem var
mjög mikið lesin enda gerðist
hún á bannsvæði — þ.e.a.s. í
hóruhúsi. Amorí nokkur greifi
gaf árið 1913 út framhald af því
verki sér til tekna. Tolstoj varð
fyrir barðinu á slíkum spekúlönt-
um, Gogol líka. En eitt frægast
slíkra dæma er frá Spáni. Af
Servantes og Don Quijote hans.
Haustið 1614 kom út á Spáni bók
sem gerði tilkall til að vera ann-
at hluti þessa stórverks, en Ser-
vantes gat ekki komið sínum á
þrykk fyrr en 1615. Bókin nefnd-
ist:
„Annar hluti sögunnar af hin-
um ráðsnjalla herramanni Don
Quijote de la Mancha innihald-
andi frásögn af þriðju ferð hans
saman skrifaða af Alonso Fern-
andes de Avelianeda frá borginni
Tordecillas. Helguð borgarstjóra
°g göfgum mönnum hinnar á-
gætu borgair Argamesilla í La
Mancha, farsælu ættlandi riddar-
ans Don Quijote, fyrirmyndar
allra farandriddara."
Ekki hefur upplýstst hver var
að verki — sumir segja skrifta-
faðir Filipusar konungs annars,
sem þótti sneitt að klerkum í
fyrsta hlutanum, aðrir nefna til
keppinaut Servantesar í leikrita-
gerð, Tirso de Molina. En svo
mikið er víst að tilgangurinn var
að klekkja á Servantes með því
að nota sér frægð bókar hans.
Um þessi efni mætti fylla heila
Eók, en einhversstaðar verður að
loka ritvélinni, ekki verður jólum
frestað. Hér hefur ekki verið tal-
að um ýmis merkileg brögð sem
róttækir menn og ádeiluskáld
hafa viðhaft til að blekkja lögg-
una, keisarann og kónginn, enda
er það efni með nokkrum hætti
sérstætt og á ekki nógu vel heima
rnnan um rómantfskar brellur eða
sérgóða klæki.
KAUPFÉLAG
BORGfíRÐiNGA
Borgarnesi
óskar öllum viðskipíavinum
sínum
gleðilegra jóla
og þakkar viðskiptin á liðna
árinu.
Starfsstálknafélagið SÓKN
þakk’ar félagsmönnum sínum gott sam-
starf á árinu sem er að líða og óskar þeim,
og öðrum velunnurum
GLEÐILEGRA JOLA!
og árs og friðar á komandi ári.;
JÓLABLAÐ - 105