Þjóðviljinn - 24.12.1968, Qupperneq 114

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Qupperneq 114
Klaustur við Sevan-vatn: Reist á 9. öld — eftir þei rri formúlu Bakkabrœdra að hafa helzt enga glugga .. ■ DOKAÐ VIÐ í ARMENÍU Framhald af bls. 99- og fuglum; fuglar í trjám, fuglar sem áreiðanlega eiga sér enga stoð í náttúrufræðibókum, fuglar sem orðnir voru að bókstöfum eða talnarúnum, blóm með fuglshaus í krónustað .... Metaksa skenkti mér 20 litkort af sýnishornum þessa merkilega handritaskrauts (að launum fyrir kort af Árbæj- arkirkju o. íl.!), og þegar ég fletti þessum kortum virkar skreyting- in eins og táknmál, dulrúnir þar sem enginn dráttur er gerður út í bláinn. En Matenadaran — eins og handritasafn þetta nefnist — er ekki aðeins sýningarsalir eða geymsla. Þarna er að staðaldri unnið að vísindalegri rannsókn H4 — JÓLABLAÐ þessa mentiingararfs, rétt eins og ætlunin er að gera hjá okkur, þeg- ar við höfum axlað okkar fornu skinn í Höfn og flutt þau heim í brekkubæinn neðan við Suður- götu. RÖND HINS BLÁA BIKARS Ákveðið hafði verið að við Sergei færum í einkabíl milli höf- uðborganna Érevan í Armeníu og Tíblísí í Grúsíu. Við lögðum snemma af stað, og þetta reyndist full dagleið með viðkomu á fáum stöðum; en vegurinn lá yfirleitt um fagrar slóðir, alltént rneðan Armeníu naut við. Fagrar slóðir . . . Þessi orð segja ósköp lítið, í rauninni bókstaflega ekki neitt. Einkum og sérílagi eru þau ófull- nægjandi án frekari skilgreining- ar, ef þess er minnzt að þessar fögru slóðir eru nokkuð marg- breytilegar liér uppi í háfjöllum og í dölunum milli þeirra. Fyrst er frá því að segja, að þegar ekið er upp brattann úr Érevan er farið framhjá nýtízku- legu hressingarhæli, og hér ofan við borgina er tiltölulega ný en strjál byggð, sem varir svo lengi sem gróðurs nýtur við, en fyrr en varir tekur síðan við næsta hrjúft og ófrjótt land. Þar efra er lands- lag engu líkara en óbyggðum þeim sem eru meginhluti íslands, og mér fannst þetta skemmtilegt fyrirbæri á reisunni af því ég hafði einhvern veginn ekki búið mig undir það, en hefði þó mátt gera ráð fyrir slíku þegar komið væri upp í þessa hæð. Hér um slóðir ríkir steikjandi sólarhiti sumarlangt, en á haustin og vet- urna gnauðar hér kaldur og snarp- ur háfjallavindur, sem að vísu var enn ekki farið að gæta þegar við fórum þarna um. Loftið var hress- andi og þægilega svalt. Vegurinn sjálfur er í senn nýr og ævaforn. Hann liggur um svo- til sömu slóðir og þjóðbrautin hefur legið öldum saman, jafnvel um árþúsundir. En samt er þetta nýr vegur, breiður og góður yfir- ferðar, og honum svipar ekki á neinn hátt til íslenzkra þjóðvega, þótt hann hlykkist um landslag sem að ýmsu getur minnt á gamla Frón. Þar sem hæst er farið ligg- ur hann í 2140 m. hæð yfir sjáv- armál (og kannski var það ein- mitt hér sem þrír biropennar í fórum mínum „sprungu" svo þeir voru ónothæfir þegar til átti að taka um kvöldið). Eftir það fer að halla niður á við, og fyrr en varir er aftur komið niður í gróð- urbeltið — það er líkt og mörkin séu furðu skýr og umbreytingin snögg — brautin vindur sig og liðast utan í bröttum og skógi- vöxnum f jallahlíðum; það eru sér- kennandi bugður og krókar fyrir landsvæði hárra tinda og þröngra dala, og vissulega er gaman að aka um slík héruð — nota bene: þegar vegurinn er jafn ágætur og þessi. í um 65 kílómetra fjarlægð frá Érevan er helzti áningarstaður oldcar á leiðinni. Það er við Sevan- vatn. Vatn þetta er langstærst allra stöðuvatna landsins, sem reyndar munu ekki vera mörg. Þó er það um Sevan-vatn að segja, að bezt er að tala varlega um stærð þess. Þannig er mál með vexti, að verið er að framkvæma sannkallaða landsvirkjun, sem hafa mun þær afleiðingar að þegar hún hefur komizt í framkvæmd til fulls verður Sevan-vatn vart nema svipur hjá sjón hvað stærðina snertir — og þó gera menn sér vonir um, að allt það rask borgi sig og verði ekki til stórra lýta á landinu ellegar dragi slæma dilka á eftir sér fyrir gróður og dýralíf. Ég ætla hér að bregða út af vana mínum og nefna fáeinar töl- ur. Áður en farið var að hrófla við vatni þessu var ummál þess 260 kílómetrar, yfirborðið þakti 1,413 ferkílómetra, dýpið var u.þ.b. 95 metrar og vatnsmagnið 58 ten- ingskílómetrar. Þegar öllum þeim
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.