Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1916, Page 78
84 Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands.
in, klifjar festast á henni eða jafnvel getur hún spirnt
hestinum út af veginum í ræsi eða torfærur. Hefi eg einu
sinni séð ljótt af þessu. Kvennmaður var með 2 hesta
á ferð, var annar með reyðing og tjöslum á; kom hún
að hliði, en grindin gekk aðeins á einn veg og á móti
henni, fór hún að opna, en hestarnir voru komnir full-
nærri, svo hún þurfti að víkja þeim til baka. Pegar hún
hafði náð grindinni til hálfs opinni sótti klárinn að kom-
ast um hliðið, rak klyfina í grindina, féll hún þá til baka
aftur og spyrnti klárnum um leið útaf veginum, en þar
tók við brú á læk, sem féll í gili; lenti klárinn ofaní
lækinn á hrygginn og skorðaðist þar. Vegna þess að
stutt var til bæjar og karlmenn iar heima, gat stúlkan
náð í hjálp áður en hesturinn var dauður, bar mig að í
þessu og varð þeim til hjálpar.
Pó eg hafi ekki séð eins ljótt oftar, hefi eg þó séð
eitt og annað óþægilegt leiða af því, að grindur ekki
geta gengið á báða vegu úr hliðunum. Til að bæta úr
þessu er ekki annað en að jafnhár sé jarðvegurinn beggja
megin víð hliðið þar sem grindin gengur yfir, og læs-
ing og hjarir hennar sé innaná hliðstólpunum, en ekki
á annari hliðinni, eins og tíðast er.
Pá vil eg lýsa með nokkrum orðum hjörum og læs-
ingu á nefndu hliði, hefir Ræktunarfélag Norðurlands
látið gjöra uppdrátt eftir minni fyrirsögn af þessu, svo
hægra væri fyrir menn að átta sig á, hvernig það er í
raun og veru. Geta menn því athugað mynd þessa jafn-
framt og þeir lesa þessa lýsingu:
Hjarirnar. Efri grindarkrókur er á miðjum hliðstólpa
með vanalegri gerð (staflakrókur), dragi maður svo línu
frá honum niður stólpann þangað sem neðri krókur er
vanalega, koma þar 2 krókar eins og að ofan, en standa
1 — 1'/2 þuml. til hliðar, sinn hvoru megin við lóðréttu
línuna frá efri króknum, verður þá millibil þessara tveggja
neðri króka í stólpanum 2 — 3 þuml., eftir því hvað grind-
urnar eru stórar og járnin þeim tilsvarandi. Efri löm