Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1916, Page 85
Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands. 91
hálfskrúfulagaðir og standa á ásum, sem eru færilegir
þvers eða nokkuð á ská undir herfinu. Hefir það mikil
áhrif á rótun jarðvegsins. Er það gjört með vogstöng
þeirri, er sést á myndinni. Ofan yfir spöðunum er pall-
ur eins og á eldra herfinu og svo drög, sem ætlast er
til að herfið sé dregið á í flutningi.
Ræktunarfélagið hefir fengið eitt af nýrri herfunum til
reynslu. Voru bæði herfin sýnd fundarmönnum við vinnu
á síðasta aðalfundi. Gamla herfið er öllu viðfeldnara
meðan strengir eru stórir og flagið óslétt. Rar festir nýja
herfið stundum strengina í sér, einkum þar sem mjög
er mýrkent, en þegar flagið fer að jafnast, rótar og los-
ar það betur og festir þá aldrei í sér, sem hinu eldra
þá hættir frekar við. Að svo komnu virðist mér nota-
gildi herfanna mikið líkt í grasrótarjarðvegi, en hvernig
nýja herfið vinnur sauðatað, hefi eg enga reynslu um.
Samkvæmt byggingu þess, þykir mér sennilegt, að það
muni vera ver fallið til þess en hið eldra. Eldra herfið
kostaði áður en stríðið hófst 120., hið nýrra 130. Mun
nú ef það fæst samkvæmt pöntun minni kosta alt að
200 kr.
Mýraplógur. Hann væri réttnefndur »Ormur Stórólfs-
son«, því hann »slær þúfurnar með«, eins og sagt er
um sláttulag Orms. Hugmyndina um hann fékk eg aust-
ur í Norðurbotnum í Svíþjóð, en Sigurður Sigurðsson,
járnsmiður, hefir ráðið gjörðinni, eins og hún nú er.
Eg hefi áður getið mýraplógsins í Ársritinu og nokkrir
hafa keypt hann og reynt, en alment mun hann enn ó-
þektur. Eg birti hér því mynd af honum, til þess menn
taki frekar eftir því, sem hér er sagt, og eigi betra með
að glöggva sig á, að hvaða gagni hann má verða.
Sérstaklega heti eg ætlað honum að verða brautryðj-
anda sláttuvélarinnar og annara heyvinnuvéla á gisþýfð-
um mýrlendum engjaflákum. Á harðvelli dugar hann
ekki, nema þá smánabbar séu, enda þýfislag þar sjaldn-