Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 12

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 12
12 dreifing kraftanna. Þá var fjárveitingunni svo háttar, að hún var veitt Búnaðarfélaginu, sem síðar galt hana til Ræktunar- félagsins. Hélzt sú skipan síðan. Enda þótt minna fé hefði fengizt en ætlað hafði verið, má þó fullyrða, að enn lakari liefðu úrslitin orðið, ef ekki hefði notið Stefáns Stefánssonar á Alþingi. Því að í þessu máli, eins og svo oft endranær, kom fram alger skilningsskortur þingmanna á sérstöðu landshlut- anna, og yfirleitt, að nokkuð bæri að gera utan Reykjavíkur. Þeir gerðu sér alls ekki ljóst, að Ræktunarfélagið ætlaði að taka upp sérstakt starf, þ. e. ,,að gera vísindalegar tilraunir og útbreiða þekkingu meðal almennings.... og leiða vís- indin inn á heimili hvers einasta jarðyrkjumanns á Norður- landi“ eins og Páll Briem kemst að orði i Arsriti Rf. Nl. 1903. Skylt er þó að geta þess, að Þórhallur Bjarnarson, síðar biskup, sem þá var formaður Búnaðarfélags Islands, mælti eindregið fram með styrknum til Ræktunarfélagsins, og sýndi í hvívetna fullan skilning á sérstöðu þess og nauðsyn á sjálfstæðu tilraunastarfi á Norðurlandi, eins og vænta mátti af þeim vitra og víðsýna manni. III. SKIPULAG OG STJÓRN a. SKIPULAG. í síðasta kafla var rakin stefnuskrá félagsins eins og hún birtist í 2. gr. félagslaganna. Sú grein hefur engum efnis- breytingum tekið fyrr en á síðastliðnu ári, er breyttar að- stæður knúðu fram breytta stefnu. Hins vegar hafa stjcúnar- hættir og skipulag félagsins tekið mörgum og gagngerðum breytingum, svo sem nú skal rakið. Samkvæmt 5. gr. félagslaganna frá 1903 var Ræktunar- félagið félag einstaklinga, sem annað hvort greiddu 2.00 kr.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.