Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 67

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 67
67 og dauða. Aðeins nokkur furu- eða grenifræ hefðu getað ráð- ið örlögum, gæfu eða ógæfu heillar þjóðar um aldir. Ætti þetta ekki að beina huga vorum að skógrækt? Skógarnir á Norðurlöndum voru ein af mörgum undir- stöðuatriðum víkingaaldarinnar í fornöld. ()g þeir eru und- irstaða einliverrar arðbærustu stóriðju þessara landa nú. Ber fjöll Vestur-Noregs voru, er sögur vorar hófust, þakin skógum, og trjáviður úr barrskógum Vestur-Noregs þá og lengi síðan mikil útflutningsvara. Eftir að skógurinn hvarf, hefur jarðveginum víða skolað alveg burtu, svo að eftir stendur nú aðeins nakin klöpp í fjallshlíðunum. Hver er nú kominn til að segja, hvern þátt eyðing skóga Vesturlandsins hafi átt í hnignun Noregs á fyrri öldum? Hví græða Norðmenn, Grikkir og ítalir ekki aftur skóga í fjöllum sínum? Það er fljótlegra að eyða en endurbæta, fljótlegra að særa en græða. Annars munu Norðmenn vinna af kappi að því að græða skóga, og vel má vera, að svo sé einn- ig í báðum hinum löndunum, því að nauðsyn skóggræðslu er nú viðurkennd í öllum löndum. En þar sem stormar og regn eru hreint og beint búin að feykja og skola öllum jarðvegi burtu, svo að ekkert er eftir nema bert og skafið grunnfjall- ið, ber og skafin klöpp, þar er um alla yfirsjáanlega tíð ómögulegt að græða skóg eða hafa nokkra nytjarækt. En svo er of víða komið og lífsmöguleikarnir að engu orðnir. Er ísland byggðist, var það viði vaxið milli fjalls og fjöru. Með þeim orðum mun vera átt við það, að landið hafi verið þakið birki- og víðiskógi eða viðarkjarri frá fjöru og upp í kletta í hæstu fjöllum. Skógar uxu norður á Kili og fyrir sunnan Eiríksjökul. Og enn er hægt að færa sterkar líkur fyrir Jwí, að kjarr hafi vaxið upp í eða upp undir 600 m. hæð yfir sjávarflöt inni á hálendinu. Það, sem setur takmörk fyrir trjágróðri á norðurslóðum, er ef klaki þiðnar ekki, eða ekki svo mikið í jörðu, að hann fyrirmuni viðarrótum að vinna starf sitt. Slíkur klaki mun svo til hvergi vera í jörð á hálendi

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.