Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Qupperneq 72
72
hugsjónamál hafa mannbætandi áhrif á alla, sem nærri þeim
koma og að þeim vinna.
Er hugsjónamennirnir Páll Briem og Sigurður frá Drafla-
stöðum hófu trjáræktina norðanlands síðast ánæstliðinniöld,
var reynsla í þessum efnum engin hér á landi, og þekking á
skógrækt í öðrum löndum einnig stórum skemmra á veg
komin en nú er. Þessi fyrsta, sigursæla skógræktarviðleitni
hér á landi hlaut því að verða nokkuð fálmkennd, svo sem
oft vill verða við fyrstu framkvæmdir hugsjóna. En það hefur
verið margra alda draumsjón allrar íslenzku þjóðarinnar að
sjá land sitt aftur skógi klætt milli fjalls og fjöru.
Það var og er enn hverjum manni sjálfsögð saga, að þar
sem skógur eða kjarr óx í fornöld, þar getur það vaxið enn,
ef svo nægilegt er eftir af gróðurmold, að kjarr eða tré geti
fest rætur. En síðan Skógræktarfélag íslands var stofnað
1930, skógræktarþekkingu og skógræktartilraunum hefur
fleygt fram undir forustu hins ötula skógræktarstjóra, Há-
konar Bjarnasonar, hefur það komið í ljós og er nú óyggj-
andi staðreynd, að barrviðir og lauftré úr öðrum löndum
með svipuðu loftslagi og veðurfari og hér er, þrífast eins vel
hér og í heimkynnum sínum, og á þetta sér í lagi við um
plöntur af fræi og græðlingum frá Alaska. Hæpið sýnist mér
þó að byggja of liáar vonir um trjáviðarframleiðslu af barr-
viðum frá norðanverðum Noregi. Þar eru að vísu allháir
skógar, því að trén eru þar fullorðin. En hin árlega viðar-
aukning í slíkum skógum í Norður-Noregi er ekki mikil,
svo að þeir þola aðeins lítið árlegt viðarhögg, án þess að
ganga til þurrðar. En trén í Alaska eru mjög há og gild í
skógum þar, og árlegur viðarvöxtur þeirra skóga mikill.
Allar, eða svo til allar, trjátegundir af fræi eða græðlingum
frá Alaska hafa þrifizt með sérstökum ágætum hér á landi.
Vanhöld á plöntuuppeldi þeirra hafa verið sáralítil og árs-
vöxtur þessara nýju vina vorra svo geysimikill.að árssprotará