Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 58

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 58
58 þessi starfsemi er að öllu samanlögðu, þótt vafalaust sé þar ýmissa umbóta þörf. Ritað mál er það form búnaðarfræðslu, er hér hefur verið notað mest og ætla mætti að oss hentaði tiltölulega vel. Rit- uðu máli er auðvelt að dreifa, það er gerhugsaðra en annað fræðsluform, það er alltaf við hendina og getur náð til allra, sem einhvern áhuga hafa, og ætti að vera í góðu samræmi við bókhneigð vora. Ákaflega er þó hætt við, að mikið af því, sem ritað er um íslenzkan landbúnað, fari fyrir ofan garð og neðan hjá öllum fjöldanum. Margir sneiða hjá löngum, rök- studdum greinum og óttast tölur og töflur. Þeir vilja fá efn- ið tilreitt í stuttu máli, ákveðið og umbúðalaust. Vænta mætti að framsetningur eins og notaður er í Vasahandbók bcenda hentaði, en þó mun mikið á skorta að bændur hafi lært að notfæra sér hana á réttan liátt. Sumir kunna ekki að leita að þeirri fræðslu, sem þá vanhagar um. Hræðslan við töflurnar er mjög almenn og. er Jrað illa farið, því að á engan hátt er hægt að þrengja saman jafn mikilli fræðslu í lítið rúm eins og í töflu. Töflur eru eins og ljósmyndir eða jafnvel kvikmyndir. Ein tafla getur endurspeglað efni langrar rit- gerðar. Þá hafa víst alltof fáir bændur áttað sig á því megin- atriði, að þeim er ætlað að fullgera Vasahandbókina. Vasa- handbókin er ekki fullgerð fyrr en bóndinn hefur fyllt út, í sambandi við sín daglegu störf, töfluform og minnisdálka bókarinnar. Freyr nær til margra bænda og ætti að vera góð- ur flytjandi ritaðs máls um búnaðarleg efni, en þó virðist eitthvað vanta. Vera má að hér kæmu að beztum notum stuttir Pésar um einstök dagskrármál landbúnaðarins eða dreifimiðar, eitt eða tvö blöð að stærð, með stuttorðunr ábendingum og til- kynningum einmitt þegar þeirra er mest þörf. Þetta yrði að senda öllum bændum þeim að kostnaðarlausu. Dálítið hefur verið gert í þessa átt, einkum í sambandi við tilbúinn áburð og ætla má að það hafi borið nokkurn árangur.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.