Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 24

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 24
24 stjórn félagsins í 9 ár. Þegar liann tók við formennsku var hagur félagsins mjög þröngur, og í stjórnartíð hans var gerð hin mikilvæga breyting, að félagið hætti að vera búnaðar- samband, og dró þannig saman seglin. Hins vegar er það full- víst að félagið naut í hvívetna góðs af vinsældum lians, lip- urmennsku, áhuga og þekkingu á íslenzkum landbúnaði og persónulegum kynnum af bændum um allt félagssvæðið. Eftir Sigurð tók Jakob Karlsson, kaupmaður og bóndi, við formennskunni og hafði hana á hendi í 9 ár, þar til hann sagði af sér sakir vanheilsu. A þeim árum gætti félagsins lítið út á við. En Jakob var um mörg ár einn helzti ræktunarfröm- uður á Norðurlandi, hafði margháttuð kynni af búnaðarmál- um, og einn þeirra manna, sem hvarvetna naut trausts og fylgis. Var félaginu því góður styrkur að starfi hans. Þessir þrír menn hafa ásamt framkvæmdastjórunum mótað starf- semi félagsins, þótt þeir vitanlega hafi til þess notið stuðn- ings annarra stjórnarnefndarmanna. Núverandi formaður er Steindór Steindórsson, yfirkenn- ari. Hér fer á eftir skrá um formenn og stjórnarnefndarmenn Ræktunarfélagsins. Formenn: Páll Briem, amtmaður, 1903—1904. Stefán Stefánsson, skólameistari, 1904—1921. Sigurður E. Hlíðar, yfirdýralæknir, 1921 — 1943. Jakob Karlsson, kaupmaður, 1943—1952. Steindór Steindórsson, yfirkennari, 1952. Stjórnarnefndarmenn: Sigurður Sigurðsson, búnaðarmálastjóri, 1903—1920. Aðalsteinn Halldórsson, tóvélastjóri, 1904—1907. Jón Norðmann, kaupmaður 1907—1908. Kristján Sigurðsson, kaupmaður, 1908—1909. Sigurður Hjiirleifsson Kvaran, læknir, 1909—1912.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.