Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 42

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Síða 42
42 sótt námsskeið Ræktunarfélagsins. Er þannig auðsætt, að Rf. hefur átt góðan þátt í að efla kunnáttu landsmanna í garð- rækt og jarðyrkjustörfum. Einkum þegar þess er gætt, að nemendurnir hafa verið hvaðanæva af landinu. A heimsstyrj- aldarárunum síðari, virtist sem áhugi fólks á að sækja náms- skeið þessi dvínaði stórlega. Þannig var tala þátttakenda árin 1940—46 einungis 14 alls, og 1942 sótti enginn um nárns- skeiðið. Athuganir, sem gerðar liafa verið síðan, á möguleika þess, að taka aftur upp garðyrkjunámsskeið í tilraunastöð- inni, hafa leitt í ljós, að sem stendur sé ekki grundvöllur fyrir hendi í þeim efnum. Þá hefur Rf. átt þátt í nokkrum bændanámsskeiðum, stutt matreiðslunámsskeið og fleira í þá átt, að því ógleymdu, að það hefur frá öndverðu haldið uppi fræðslu um búnaðarmál með fyrirlestrum víðs vegar um félagssvæðið, og síðustu árin hefur sú nýbreytni verið tekin upp að flytja fræðsluerindi um landbúnað í norðlenzkum skólum, Menntaskólanum á Akureyri, gagnfræða- og héraðsskólum. Hafa þáu hvarvetna vakið mikla athygli, og eru mikilsverð tilraun til að hefja atvinnufræðslu í skólum og vekja nemendur þeirra til hugs- unar um hagnýt efni. Fyrirlestrastarfsemi þessi hefur nær eingöngu mætt á framkvæmdarstjórum félagsins, og hefur Olafur Jónsson einkum verið athafnasamur í því efni. Hefur hann flutt nokkur hundruð fræðsluerinda á vegum félagsins víðs vegar um Norðurland. 2. Leiðbeiningastarfsemi. Þegar á fyrstu árum félagsins tók það upp víðtæka leiðbeiningastarfsemi meðal bænda um félagssvæðið. Voru til þess fengnir færustu menn, er völ var á hverju sinni, bæði framkvæmdarstjórar félagsins og aðrir. Var þetta því nauðsynlegra, sem ráðunautastarfsemi í ís- lenzkum landbúnaði var þá enn af skornum skammti. Fóru umferðakennendur þessi rum félagssvæðið og leiðbeindu bændum um jarðrækt, áveitur, garðyrkju, girðingar og ann-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.