Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Qupperneq 53

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Qupperneq 53
þarf enginn, hvorki einstaklingur né félagsskapur, að sýna merki hrörnunar og afturfarar. I cindverðu var það markmið félagsins, að leiða vísindin inn í íslenzkan landbúnað. Enginn efast nú um, að þar var rétt stefnt. Engin starfsstétt þjóðfélagsins kemst lengur af án þekkingar á viðfangsefnum sínum og verkefnum. Og e. t. v. er engri stétt meiri þörf þekkingar hverju sinni en bændun- um. En tíminn stendur ekki kyrr. Hvert árið færir nýja þekkingu, opnar nýjar leiðir, og það, sem vér vitum bezt nú, er ef til vill orðið úrelt, og annað betra komið í staðinn eftir furðu skamman tíma. Starf bcmdans er að gera sér jörðina undirgefna, ekki sem þræl, heldur sem starfsfélaga. En til þess þarf þekkingu á lögmálum hennar. Bóndinn verður að geta hagnýtt sér þau gæði, sem landið á til, en hann verður samtímis að gæta þess, að krefjast ekki meira, en það fær í té látið. Þá er hann tekinn að stunda rányrkju, og liún hefnir sín grimmilega. Old vor hefur breytt íslenzkum landbúnaði frá rányrkju til ræktunar, og til þess hefur Ræktunarfélagið lagt drjúgan skerf. Mikið skortir þó enn á, að markinu sé náð. Oft heyrum vér deilt um málefni íslenzks landbúnaðar og hlutverk hans í þjóðfélaginu, og margt er þar sagt af furðu litlum skilningi. En um eitt verður ekki deilt, að bæði hér á landi og annars staðar er þjóðarskútunni stefnt að strandi, þar sem landbúnaður fer í handaskolum. Og sú hætta er því meiri, sem landið er harðbýlla, og meiri lagni þarf að leita til þess að láta það bera ríkulegan ávöxt. Vel rekinn verður landbúnaðurinn aldrei án ræktunar, en ræktun landsins fylgir einnig ræktun lýðsins. Jarðyrkjan er flestum, ef ekki öllum, störfum fremur menningarstarf. Hún er samstarf við móður vora, náttúruna, hún eykur skilning á lífinu, hún þroskar þann, sem að henni vinnur, andlega og líkamlega, jafnframt því, sem hún malar gull í heildarbú þjóðarinnar. Um nær hálfrar aldar skeið hefur Ræktunarfélag Norður- lands unnið á virkan hátt að því að skapa þekkingargrund-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.