Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Side 55

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Side 55
ÓLAFUR JÓNSSON: Búnaðarfræðsla. Bókvitið verður ekki látið í askana! Ekki mun vitað hvar eða hvenær þetta slagorð hefur orðið til, en það hefur reynzt furðu lífseigt og enn þann dag í dag eru til menn, sem halda að þetta sé djúpvitur speki. Það hvarflar ekki að þeim, að hér er aðeins um slagorð að ræða, og eins og öll önnur slag- orð er það harla haldlítið þegar á reynir og það er krufið til mergjar og ætti fyrir löngu að hafa gengið sér til húðar. Eðli- leg afleiðing af slagorðinu er sú spurning: Hvað er það, sem látið verður í askana? „Reynsla og verkkunnátta,“ segja spek- ingarnir, sem trúa á slagorðið. Hér er nú mjótt á munum. Reppst er við að bókfæra alla reynslu og sama má segja um verkkunnáttuna, því að þannig verður þetta bezt varðveitt og auðveldast að dreifa því sem víðast. Bókfræði, reynsla og verkkunnátta er því eitt og hið sama, aðeins mismunandi form, og er auðvelt að breyta reynslu og verkleikni í bókvit og bókviti í reynslu og verk- leikni, ef rétt er á haldið. Bókvit er því í raun og veru jafn- góður askamatur eins og annað vit. Vera má að trúin á slagorðið hafi átt einhvern þátt í því vanmati, sem lengi var hér á búnaðarfræðslu og mjög miklu reyki á tilhiigun hennar, einkum skiptingunni milli bók- náms og verknáms. Nú er það eðlilegt, að búnaðarfræðslan taki breytingum með breyttum tímum og þörfum. Þessu valda ekki aðeins breytingar í búnaðarháttum, heldur einnig ýmiss konar þjóðfélagslegar breytingar og breyttur hugsunarháttur — tízka. Með hliðsjón af þessu öllu er nauðsynlegt að gagnrýna

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.