Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1961, Blaðsíða 92
92
Frú Búnaðarsambandi NorðurÞingeyinga: Grímur Jóns-
son, ráðunautur.
Auk þessara manna voru mættir á fundinum ráðunaut-
arnir Egill Bjamason og Skafti Benediktsson, og ennfremur,
sem áður getur, hinn erlendi boðsgestur, H. Land Jensen, til-
raunastjóri.
3. Olafur Jónsson ,gjaldkeri, las upp endurskoðaða árs-
reikninga félagsins fyrir árið 1959. Skýrði hann reikningana
nokkuð. Enginn tók til máls. Reikningarnir voru samþykktir
í einu hljóði.
4. Gjaldkeri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir Ræktunar-
félagið árið 1961. Ræddi hann áætlunina nokkuð. Gat hann
þess, að um nokkra tekjuaukning væri að ræða á þessu ári
vegna vaxtahækkana. Ennfremur væri áætluð nokkur út-
gjaldahækkun vegna heimboðs H. Land Jensen, tilrauna-
stjóra, en honum hefði verið boðið hingað, m. a. vegna starfs
hans við tilraunir í sambandi við ræktun rauðsmára, sem
hann hefur framkvæmt að beiðni Ræktunarfélagsins. Enn-
fremur væri hann kunnur maður fyrir tilraunir með votheys-
gerð og heyverkun yfirleitt, og þekktur fyrir áhuga á íslenzk-
um málefnum.
5. Samkvæmt venju voru 5 menn kjörnir til þess að athuga
fjárhagsáætlunina. Þessir voru kjörnir:
Jón Sigurðsson, Kristján Karlsson, Garðar Halldórsson,
Tryggvi Sigtryggsson og Þorsteinn Davíðsson.
6. Fundarstjóri gaf orðið laust um „önnur mál“, en eng-
inn tók til máls.
Var þá fundi frestað um stund,.eða.fram yfir hádegisverð,
sem neyta átti kl. 12-15.
7. Að afloknum hádegisverði var fundi fram haldið. Tók
þá til máls H. Land Jensen og flutti erindi um votheysgerð,
er hann nefndi: „Ræktun og geymsla fóðurjurta“. Var erindi
hans mjög ítarlegt og byggðist á nokkurra ára tilraunum, er
hann hafði unnið að sjálfur í Danmörku, og gefið höfðu þær
niðurstöður, er hann lýsti fyrir fundinum. Ennfremur skýrði