Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1961, Blaðsíða 96
Aðalfundur 1961
Ár 1961, miðvikudaginn 18. október, var aðalfundur
Ræktunarfélags Norðurlands haldinn í fundarsal Hótel K.
E. A. Akureyri.
Fundurinn hófst kl. 10 árdegis.
Formaður stj()rnar Ræktunarfélagsins, Steindór Stein-
dórsson, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Áður en gengið var til dagskrár, minntist formaður nýlát-
ins félaga, Hafsteins Péturssonar, bónda og búnaðarþings-
manns á Gunnsteinsstöðum, sem verið hafði virkur þátttak-
andi á fundum Ræktunarfélags Norðurlands mörg undan-
farin ár og komið mjög við sögu bændasamtakanna í land-
inu.
Fundarmenn vottuðu hinum látna virðingu sína og þökk
með því að rísa úr sætum. — Þá var gengið til dagskrár
þannig:
1. Fundarstjóri var kjörinn Steindór Steindórsson, en
hann nefndi til þess að rita gerðir fundarins þá: Gísla Magn-
ússon og Baldur Baldvinsson.
2. Athuguð kjörbréf fulltrúa. Þessir voru mættir á fundi:
Stjórnarnefnd félagsins, þeir Steindór Steindórsson, form.,
Ólafur Jónsson, gjaldkeri, og Jónas Kristjánsson, ritari.
Frá ævifélagadeild R. N. Akureyri:
Árni Jónsson,
Karl Arngrímsson,
Ármann Dalmannsson,
Brynjólfur Sveinsson.