Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Page 4
DEREK C. MUNDELE:
MELTANLEIKAÁKVÖRÐUN
í GLERMAGA (IN VITRO)
OG HAGNÝTING HENNAR
VIÐ FÓÐRUN Á GRÓFFÓÐRI
I. HLUTI.
MELTANLEIKI GRASFÓÐURS OG FÓÐURGJÖF
A. Mikilvœgi fóðurorku.
Skipulögð fóðrun húsdýra byggist á ákvörðun á næringar-
þörf þeirra og á fóðurvali til að uppfylla þessar kröfur.
Þessi jöfnun á gjöf og þörf er ákveðin sérstaklega fyrir hvert
næringarefni, en yfirleitt er áherzla lögð á, að í fóðrinu sé
nægð orkuríkra efna.
Næringarefnin, sem veita orku, hljóta þennan forgang,
því að þau eru mest að vöxtum í fóðrinu. Fóðri, sem ætlað
er að fullnægja þörfum fyrir prótein- eða steinefni, en reyn-
ist síðan ófullnægjandi orkugjafi, þarfnast venjulega grund-
vallarbreytinga í samsetningu. Á hinn bóginn er oftast hægt
að bæta úr vöntun á einhverju steinefni eða vítamíni með
viðbót lítils magns af fóðurbæti, sem er auðugur af réttu
efni.
Annað sérkenni orkuríkra næringarefna er það, að magn
afurða fer náið eftir magni þessara efna í fóðrinu. Aukin
fóðurorka veldur því, að þyngd skepnunnar eykst hraðar
og nyt m]ólkurkúa hækkar.
í rauninni ræður fóðurorka því mestu um framleiðsluna,
en hafa verður í huga, að aukning afurða eykur trúlega
6