Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Page 110
að er að efnagreina sýni úr tilraununum nú snemma á þessu
hausti og niðurstöður geta því legið fyrir um áramót.
Fundir og ráðstefnur.
Ég sat ráðstefnu BÍ og Rala í febrúar sl. Var þar fjallað
um fóðrun búpenings. Þá sat ég ráðstefnu NJF í byrjun júlí
í sumar. Fátt varð um fundi hjá búnaðarsamböndum hér
norðanlands, eins og þó áformað var að koma á fót á síðasta
aðalfundi Rf. Nl. Kom þar til bæði að tíð var mjög slæm
um miðjan vetur og færi lítt til fundahalda og þegar líða
tók að vori mikið um allskonar aðra fundi og annir þannig
að lítið varð úr námskeiðshaldi. Fundir voru þó haldnir á
Blönduósi á vegum BS. A-Hún. dagana 7., 8. og 9. apríl og
héldum við Þórarinn þar erindi. Fleiri urðu fræðslufundir
svo ekki, en við Þórarinn sátum aðalfund BS. A-Hún, og
fluttum skýrslur um starfsemi Rf. Nl.
Ú tgáfustarfsemi.
Ársritið fyrir 1974 kom út milli jóla og nýárs, var það með
stærra móti, 7 greinar fyrir utan skýrslur og fundargerðir,
samtals 136 síður. Ekki eru líkur á, að rit fyrir 1975 komi
út fyrr en um næstu áramót, en efni er þó fengið að mestu.
Á síðastliðnum vetri, 23. mars, varð Ólafur Jónsson fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Rf. Nl. og sá sem fyrir þetta fé-
lag hefur mest og lengst unnið, áttræður. í tilefni af því
afmæli gerði stjórn Rf. Nl. eftirfarandi samþykkt á stjórn-
arfundi 22. mars 1975:
„í tilefni af áttræðisafmæli Ólafs Jónssonar fyrrverandi
framkvæmdastjóra félagsins hinn 23. marz n. k., samþykk-
ir fundurinn að Ræktunarfélag Norðurlands gefi út rit-
verk það um berghlaup á íslandi er Ólafur Jónsson hef-
ur safnað efni til og skráð. Leitað verði eftir samvinnu
við Menntamálaráð um útgáfu þessa, og stefnt að því að
ritverkið komi út eigi síðar en á árinu 1976“.
114