Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1967, Side 6

Frjáls verslun - 01.10.1967, Side 6
6 FRJÁLS VERZLUM Tekið í faumana Aðeins ríkisstjórnin hefur lagt fram einhverjar tillögur til að mœta efna- hagsvandanum Tillögur ríkisstjórnarinnar til efnahagsaðgerða hafa nú verið lagðar fram. Meginatriði þeirra er að tryggja ríkissjóði nægilegt fé til þeirrar starfsemi, sem hann stendur undir. Fylgt er í meginat- riðum þeirri stefnu, sem ríkis- stjórnin hefur fylgt, síðan hún kom til valda. Leitazt er við að forðast almennar vöruverðshækk- anir og aukinn framleiðslukostnað atvinnuveganna. Og í samræmi við þá tollalækkunarstefnu, sem hefur verið ríkjandi, er fjárskorti ríkissjóðs ekki mætt með tolla- hækkunum. Tillögur ríkisstjórnarinnar eru, eins og kunnugt er, fólgnar í lækkun niðurgreiðslna á vöru- verði, niður í það, sem þær voru í ágústmánuði 1966. Þá er gert ráð fyrir sérstöku gjaldi á far- miða með flugvélum og skipum í ferðum til útlanda. Mat fasteigna við álagningu tekjuskatts skal hækka. Lagður verði söluskattur á þjónustu pósts og síma, svo og afnotagjöld hljóðvarps og sjón- varps. Iðgjöld almannatrygginga og sjúkrasamlaga skulu hækka, svo og hitaveitugjöld. VÍSITALAN. Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir því, að hækkanir, sem verða á vísitölu framfærslukostnaðar, leiði ekki ósjálfrátt til launahækkana, eins og samningar gera ráð fyrir. Sam- kvæmt núgildandi vísitölu hækk- ar framfærslukostnaðurinn um 7.53% við þær ráðstafanir, sem ríkisstjórnin vill, að gerðar verði. Þá hefur verið reiknuð út ný vísi- tala framfærslukostnaðar, sem ætlazt er til að taki gildi, og er hækkun framfærslukostnaðar samkvæmt henni 4.38%. Er í frumvarpinu lagt til, að kaup- greiðsluvísitalan, sem gildir fyrir tímabilið 1. september 1967 til 30. nóvember 1967, verði látin gilda óbreytt í þrjá mánuði áfram, eða til 29. febrúar 1968. Þann 1. marz 1968 gangi hins vegar í gildi ný kaupgreiðsluvísitala, byggð á hin- um nýja vísitölugrundvelli og með grunni í janúar 19G8. Á kaupupp- bót framvegis að greiðast eftir henni með sama hætti og á und- anförnum árum. Kaupuppbótþessi á að greiðast ofan á grunnkaup og kaupuppbót samkvæmt núgild- andi greiðslu vísitölu, sem frá og með 1. marz n. k. á að bætast við grunnlaun og framvegis teljast hluti þeirra. ENGAR SKATTA- OG TOLLA- HÆKKANIR. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru lagðar fyrir Alþingi í þingbyrjun. Farið hafði verið mjög leynt með þær innan stjórnarflokkanna. Höfðu tillögurnar verið í fræðileg- um undirbúningi hjá Efnahags- stofnuninni og til meðferðar inn- an ríkisstjórnarinnar. Ýmsar aðrar leiðir voru taldar koma til álita. Almenn söluskattshækkun var lengi til umræðu. Hins vegar var talinn á henni sá annmarki, að henni mundi fylgja almenn vöru- verðshækkun og meiri hætta á víxlverkunum kaupgjalds ogverð- lags en fylgdi þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin hefur nú lagt til. Al- menn söluskattshækkun hefði heldur ekki gefið ríkisstjórninni minnsta svigrúm til samninga við launþegahreyfinguna, ef þeirra yrði óskað. Þá hefði almenn sölu- skattshækkun haft í för með sér meiri aukningu á framleiðslu- kostnaði atvinnuveganna en áður- nefndar ráðstafanir. Tollahækk- anir á ýmsum ,,lúxusvarningi“ voru taldar brjóta í bága við tolla- lækkunarstefnu ríkisstjórnarinn- ar. Ákvörðunin um lækkun niður- greiðslna byggðist svo á því sjón- armiði, að launþegar hefðu á und- anförnum árum fengið svo stóran skerf aukinna þjóðartekna, að þeim mundi unnt að taka á sig nokkrar byrðar vegna ráðstafana, sem óhjákvæmilegar eru. Ríkisstjórnin hefur ekki enn lagt fram tillögur um aðstoð við sjávarútveginn eða einstaka þætti hans, umfram það, að haldið verð- ur áfram þeirri aðstoð, sem samið var um á s. 1. ári. Hefur ríkis- stjórnin ekki talið rétt að gera ákve'ðnar tillögur að svo stöddu um frekari ráðstafanir vegna sjá- varútvegsins, enda eftir að sjá, hvernig fyrrgreindum tillögum hennar reiðir af og hvaða áhrif þær kunna að hafa á gerðir laun- þegahreyfingarinnar. Þá er það augljóst, að ríkisstjórnin telur, að aðstaða sjávarútvegsins muni á næstu mánuðum fara batnandi á mörkuðum erlendis, en auðvitað er óvíst, hvernig aflabrögðin verða á komandi ári. VIÐBRÖGÐ. í umræðum á Alþingi hefur stjórnarandstaðan snúizt öndverð gegn tillögum ríkisstjórnarinn- ar. Framsóknarflokkurinn hef- ur ekki enn lagt fram gagn- tillögur í smáatriðum og ekkert frumvarp látið frá sér fara um efnahagsmálin. Tillögur þær, sem komið hafa fram í ræðum þing- manna Framsóknarflokksins, eru allar mjög almennt orðaðar og erf- itt er að átta sig á því, hvað flokk- urinn raunverulega vill, að gert

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.