Frjáls verslun - 01.10.1967, Blaðsíða 51
FRJALS VERZLUN
51
RANGT MAT.
I þessu sambandi langar mig
að lýsa þeirri persónulegu skoðun
minni, að það er varasamt að
meta vináttu heiliar þjóðar eftir
jafn grófkenndu og einhliða sjón-
armiði og því, hve hagstæð eða
óhagstæð viðskiptin eru hverju
landi, en þessa hefur mátt sjá
dæmi. Eftir því ættu Svíar sem
sé að vera helmingi meiri vinir
íslendinga en Norðmenn og Ní-
geríumenn þrisvar sinnum meiri
vinir en Norðmenn, bar sem þeir
keyptu þrisvar sinnum meira frá
Islandi, áður en borgarastyrjöldin
lamaði viðskipti þeirra. Þetta má
kalla heldur einhliða hlýhug, þar
sem Nígeríumenn hafaekkertflutt
til íslands.
Það skal tekið fram, að útflutn-
ingur íslendinga til Svíþjóðar, líkt
og til annarra landa, er óunnin
hráefni, — síld, sem er soðin nið-
ur í Svíþjóð, hrogn, sem í Sví-
þjcð er breytt í neyzluhorf, t. d.
í kavíar í túbum, og saltaðar gær-
ur, sem Svíar gera úr snotra loð-
pelsa.
ÖNNUR TENGSL.
Önnur tengsl hafa myndazt með
íslendingum og Svíum hin síðari
ár. Á ég þar við hin miklu þró-
unarfyrirtæki, sem nú eru starf
rækt hérlendis, fyrst og fremst
aflstöðin við Búrfell, þar sem
sænska fyrirtækið Sentab tekur
þátt í félagi danskra, íslenzkra og
sænskra verktaka, sem hafa tek-
ið verkið að sér; enn fremui
Sundahöfn, þar sem Skánska
Cementgjuteriet hefur það hlut-
verk að byggja nýtt hafnarsvæði;
og að síðustu Siab, sem annast
byggingarnar í Straumsvík ásamt
hinu verðandi Álfélagi. Það er
allra ósk, að þessar framkvæmd-
ir hafi í för með sér mikinn
hag fyrir íslendinga og muni
styrkja viðskipta- og vináttu-
tengsl þjóðanna. Hjá nokkrum
óþægindum verður vart komizt,
þegar ólíkar þjóðir vinna saman,
önnur á eigin grund en hin í fram-
andi landi og við nýjar aðstæður,
og óhjákvæmilega hlýtur þá að
koma til einhverra smáárekstra
við erlenda vinnuflokka, frá
hvaða landi sem er.
FLUGFÉLAGADEILAN.
Svo vikið sé aftur að ástandinu
eins og það nú er, álít ég per-
sónulega mjög varhugavert, eins
og fyrr segir, að blanda saman
flugferðarmálunum, sem skoða
verður út frá alþjóðlegum sjónar-
hóli, og viðskiptamálum annars
vegar og norrænni samvinnu hins
vegar. Hvernig svo sem loftferða-
málunum, sem ákvarðastogstjórn-
ast af haglegum ástæðum, er nú
háttað, þá verða menn að taka til
greina, að SAS-löndin hafa ekki
látið neinu öðru landi en íslandi
eftir þau. fríðindi, sem Loftleiðir
hafa þar nú þegar.
MENNINGARLEG
SAMSKIPTI.
Svíar og fslendingar hafa á síð-
ari árum haft með sér sérstaklega
góð tengsl á sviði menningarmála
Margir íslendingar hafa haldið því
fram, að íslendingar hafi margt
til frændþjóðanna á Norðurlönd-
um að sækja, þ. á m. til sænskra
frænda sinna, svo sem hinar tíðu
ráðstefnur bera vitni um. E. t. v.
mætti í þessu sambandi minnast
á þá æðri menntun, sem margir
íslendingar hafa hlotið og hljóta
í Svíþjóð. Að þessi andlega og
menningarlega „viðskiptastaða“
er öðrum aðiljanum einnig í vil
sjáum við daglega. Norræna húsið
í Reykjavík er nú að rísa af
grunni. Við skulum vona, að
hvorki hinum menningarlegu né
efnahagslegu viðskiptum verði
haggað í framtíðinni.
A
M
ZTT*
'R f/ÍHUHt
»,♦ #♦ * •••**♦*'**'♦ *
**«»•••«••••»•%•
<*■*•••*•••••#♦••
*••••••••»«••«••
I .:■*»••*•••♦♦■*♦•*«•
| ••»••••«•*•*•«»•
l ■*«**••*•*♦«*•***
5 *•*•*••*•***«**•
' •«•*•*•••»•»•«•*
• »*•«•••••••*.**» ,
«••••••••*•«•••
. *«»*••****■*'.**;»«'„
| >*:♦*«****«•**•*••
! '■*•**•*»»♦«♦*»*'**
' ' ■»* » » * • « »■*♦'♦*♦**•
••••*••««••♦••••
«'•»*•••»♦,«•••»••
»*•*«••♦»»•••»•*
*»••»••«»**•«»••
PHILIPS
84 Automatic
J/l.7t>1>T?irAXA
? ' r - ? 5
í. 5 •
I
1 t 1 l i K
dictation machine
LEITIÐ UPPLYSINGA:
Heímilistæki s.f.
SÆTÚNI 8 — SÍMI 24000