Frjáls verslun - 01.10.1967, Blaðsíða 64
m
^Sm'œr
Gerið íbúðina að hlýlegu heimili
Það getur reynzt vandasamt að búa heimilið,
hvort sem það er nýtt eða stendur á gömlum
merg og þarfnast endurnýjunar. En ef þér þurfið
að fá yður gólfteppi, er valið vandalaust. Það
er reynsla þúsunda um land allt, að ullarteppin
frá Axminster eru heimilisprýði. Þau ráða úr-
slitum um það, hvort íbúð verður bara íbúð
eða hlýlegt heimili. Á íslandi ætti að vera ó-
þarfi að minna á kosti íslenzkrar ullar, enda
hefur hún reynzt bezta fáanlega hráefnið til
gólfteppagerðar. EJm aldir hefur ullin verið
unnin á íslandi með hinum ófullkomnu verk-
færum fortíðarinnar, en hér eru það Axminster-
vefstólarnir, sem gera úr henni teppi, sem gæða
hvert heimili í senn hlýju og fegurð, þeim tveim
kostum, sem eru frumskilyrði þess, að íbúðin
verði ekki aðeins íbúð, heldur einnig heimili,
sem íbúarnir geta verið stoltir af. Munið, að
á góifunum eiga að vera alullarteppin frá
Axminster.annað ekki.
Axminster
GÓLFTliPPAVERKSMIÐJA GRENSÁSVEGI 8 SlMI 30676