Frjáls verslun - 01.10.1967, Blaðsíða 47
íFRJÁLS VERZLUN
að tómum kofanum. Þarna hefði
mátt gera miklu betur. Gísli áleit
núverandi auglýsingaverð sann-
gjarnt, .en sagði, að sjónvarpið
hefði átt að bjóða auglýsendum
sérstök kjör, þ. e. mun lægra aug-
lýsingaverð á tíma tilraunasjón-
varpsins og gefa þeim þannig kost
á að kynnast þessari auglýsinga-
leið. Einnig sagði Gísli, að hyggi-
legast hefði verið fyrir sjónvarp-
ið að fá til landsins mann, sér-
menntaðan í sjónvarpsauglýsing-
um. Síðan hefði mátt bjóða kaup-
sýslumönnum á einhvers konar
námskeið, þar sem fjallað hefði
verið um gildi sjónvarpsauglýs-
inga. Þetta hefði átt að gera þegar
í upphafi sjónvarpsrekstursins, en
raunar væri það ekki of seint enn
þá. Gísli sagðist álíta, að einungis
stærri aðilar gætu auglýst í sjón-
varpi. Hann sagðist sjá um aug-
lýsingar fyrir fjölmarga aðila, og
gæti hann raunar ráðlagt þeim, að
reyna auglýsingar í sjónvarpi, en
aðstaðan væri enn svo bágborin
til gerðar slíkra auglýsinga, að
það drægi iðulega kjarkinn úr
mönnum. Gísli áleit, að kyrrmynd-
ir hefðu lítil sem engin áhrif á
sjónvarpsáhorfendur. „Hvað kvik-
myndir snertir verður að sýna
þær þó nokkrum sinnum, eigi
árangur að nást. í fyrsta skipti
sjá menn myndina. í annað skipti
skynja menn hana. í þriðja skipti
fer hún að festast í þeim og þá
þarf að auka áhrifin með nokkr-
um sýningum í viðbót. Aðalatriðið
er þó eftir sem áður, að auglýsing-
in sé vel gerð. Talið hefur mjög
mikið að segja, og þá ekki síður
textinn sjálfur.“
Gísli tjáði F.V., að það hefði
komið fyrir, að skipt hefði verið
um þul með auglýsingakvikmynd
vegna þess, að talið hefði ekki
þótt nógu sannfærandi. Að lokum
sagði Gísli B. Björnsson, að með-
< an máttur einstaklingsframtaks-
ins væri ekki nógur til að efla
sjónvarpsauglýsingar, ætti sjón-
varpið sjálft að sjá sér hag í að
ljá húsnæði sitt og starfsfólk til
auglýsingagerðar.
AUGLÝSENDUR ERFIÐIR.
F.V. hafði einnig tal af Leifi
Þorsteinssyni lijá Myndi'ðn s.f.
Hann sagði, að upphaflega hefðu
tæki ekki verið fyrir hendi hjá
sjónvarpinu til sýningar kyrr-
Allir eru þeir vandlátir.
Allir velja þeir KÓRÓlVA-föt.