Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1967, Side 11

Frjáls verslun - 01.10.1967, Side 11
FRJÁLB VERZLUN 11 225 ARA AFMÆLI Samtök stórkaupmanna í Kaup- mannahöfn, Grosserer-Societetet og framkvæmdastjórn þess, Gros- serer Societetets Komite, áttu stór- afmæli á dögunum og var það haldið hátíðlegt á glæsilegan og skemmtilegan hátt, þannig að Kaupmannahafnarbúar veittu því almennt athygli. Boðið var fulltrú- um erlendra stéttarbræðra, og var Björgvin Schram, formaður Fé- lags íslenzkra stórkaupmanna full- trúi félags síns og Verzlunarráðs íslands. Var hann báða hátíðisdag- ana, 4. og 5. október, í Kaup- mannahöfn ásamt konu sinni. Grosserer-Societetet er samtök þeirra í Kaupmannahöfn og ná- grenni, eða Stór-Kaupmannahöfn, eins og svæðið er stundum nefnt, sem leggja stund á heildverzlun. Þeir, sem fást við heildverzlun i Kaupmannahöfn, eru skyldugir að lögum til að vera í samtökunum. Árgjald er 500 danskar krónur og heildarársgjöld um 19 milljónir danskra króna. Samtökin eru sterk, vel skipulögð og njóta mik- illar virðingar í Danmörku. Full- trúar þeirra sitja í meira en 90 nefndum, sem fjalla að einhverju leyti um málefni, sem snerta verzlunarstéttina. Samtökin hafa sér til ráðuneytis stóran hóp sér- fræðinga í ýmsum greinum. Þau urðu 225 ára á þessu ári, en fram- kvæmdanefndin eðaframkvæmda- stjórnin átti 150 ára afmæli einn- ig á bessu ári. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Börsen, kauphallarbyggingunni, bvggð 1624, sem var og er ein af sögufrægustu byggingum Kaup- mannahafnar og er hún eign sam- takanna. Hún stendur við síkin og ereinaf þeim byggingum, er setja eftirminnilega svip sinn á borgina og er alþekkt af hinni háu turn- spíru, sem allir koma auga á, er þeir skyggnast um í Kaupmanna- höfn. Og það var í Börsen, sem afmælishátíðahöldin fóru fram. Þó hófust þau að kvöldi 4. október með veizlu í Hótel Mercur. Þar voru samankomnir erlendir gestir, danskir embættismenn og am- bassadorar Norðurlandanna, auk stjórnar samtakanna og fjölda annarra. Var Gunnar Thoroddsen, ambassador íslands í Danmörku og frú hans, meðal gesta. Að morgni 5. október hófust svo aðal- hátíðahöldin. Klukkan 9—10.30 var móttaka í stóra salnum í Börs- en. Þangað kom fjöldi gesta og færðu gjafir og árnaðaróskir. Björgvin Schram afhenti högg- myndina „Fýkur yfir hæðir“, eftir Ásmund Sveinsson frá Félagi ís- lenzkra stórkaupmanna og papp- írshníf úr silfri, unninn af Birni Halldórssyni leturgrafara, frá Verzlunarráði fslands. Klukkan 11 komu dönsku konungshjónin til Börsen og voru viðstödd hátíða- samkomu, sem þá fór fram. Þar flutti sinfóníuhljómsveit Konung- legu óperunnar tónlist, sem hafði verið samin sérstaklega í tilefni afmælisins og auk þess verk eftir Kuhlau og Carl Nielsen, og þrír óperusöngvar frá Konunglegu óperunni sungu og Drengjakór Kaupmannahafnar kom fram. Aðalræðuna hélt Victor B. Strand stórkaupmaður og aðalræðismað- ur, formaður Grosserer-Societetet. Um kvöldið sátu eitt þúsund manns veizlu í stóra salnum í Börsen. Þar var heldur óvenjuleg- ur matseðill. Réttirnir voru fram- leiddir eins og þeir voru gerðir árin 1742, 1&17, 1967 og 2067, en það var „pilla“. Síðan var dansað fram eftir nóttu. Afmælishátíð þessi var Stór- kaupmannafélaginu í Kaupmanna- höfn til mikils sóma, og mun verða ógleymanleg öllum þeim, er þess áttu kost að taka þátt í henni. ÁPRENTAÐAR UMBÚÐIR ÚR PLASTI 0G PAPPÍR Mi'cimilis- plastpokit* wa Eldhús- piastpotiira a Ea taht áiiwa KHwwst- swyawwatawa KHwwst- wlwísiwa Uwwahwwwiww- pwwppár Eáwwahwiawl PLASTPRENT SKIPHOLT 35 SÍMI 38760

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.