Frjáls verslun - 01.10.1967, Page 12
12
FRJÁLS VERZLUN
ÞJÓÐMÁL
Semjum einir
Farsœlast íyrir íslendinga að semja sjálíir við markaðs-
bandalögin í Evrópu, — segir Eysteinn Jónsson í viðtali
við F.V.
F.V. Hver eru aS ySar dómi
helztu vandamálin. sem nú blasa
viS í íslenzku efnahagslífi?
E. J.: Eigi að svara þessu í ör-
stuttu máli, mundi ég segja það
helzt, að áður en verðfallið skall
á, var atvinnurekstur landsmanna
í þýðingarmiklum greinum kom-
inn á uppbætur í ýmsu formi, en
endurgjald fyrir algenga dag-
vinnu samt þannig, að óhugsandi
var að komast af með það, miðað
við húsnæðiskostnaðinn. Ofan á
þetta bættist, að verðlagi var
haldið niðri á þessu ári á mörg-
um vörum og er enn til bráða-
birgða með aukningu niður-
greiðslna, sem Seðlabankinn er
nú látinn leggja til, því að þaðan
eru teknir peningar í halla ríkis-
sjóðs.
Framlag ríkissjóðs til þjónustu-
framkvæmda er mjög skorið nið-
ur og vanskilahald á nálega hverj-
um framkvæmdalið fjárlaganna.
Þetta lá fyrir strax í fyrravetur
og raunar miklu fyrr. Síðan kom
svo verðfall afurða á þessu ári og
minnkandi síldarafli, svo að á-
standið er vægast sagt geigvæn-
legt, enda riða heilar atvinnu-
greinar til falls, svo að ekki sé
talað um mýmörg heilbrigð, ein-
stök fyrirtæki, sem alls ekki mega
missa sig.
F. V.: Hverjar teljið þér megin-
orsakir þessara vandamála?
E. J.: Alveg röng stjórnarstefna
og rangar hagstjórnaraðferðir,
sem eru svo fjarri því að stöðva
verðbólguna og skapa heilbrigð-
an grundvöll í atvinnulífinu, að
verðbólgan hefur vaxið miklu
hraðar en fyrr, og atvinnuvegirnir
komust á uppbætur eða í stór-
vanda, þrátt fyrir síhækkandi
verðlag og aflamok.
Reynt hefur verið að lækna öll
mein með ráðstöfunum í peninga-,
lána- og vaxtamálum, sem hafa
haft í för með sér lamandi rekst-
ursfjárskort og hækkandi kostnað
fyrir íslenzk fyrirtæki og hefur
eðlilegum og heilbrigðum rekstri
raunar ekki verið komið við útaf
þessu árum saman. Reynslan
sýndi, hvernig komið var í fyrra-
vetur, áður en verðfallið hófst á
útflutningsvörunum, en auðvitað
keyrir um þverbak, þegar það
kemur til ofan á hitt. En hefði
skynsamlega og farsællega verið
á haldið, hefði atvinnulífið átt að
vera vel undir það búið að þola
mótgang eins og þann, sem við
eigum nú að mæta. En það er nú
öðru nær.
F.V.: Hvemig teljið þér bezt,
að þing og stjóm snúist við þess-
um vandamálum?
E. J.: Ég tel ástandið svo alvar-
legt, að endurskoða verður þjóð-
arbúskapinn frá rótum. Endur-
reisn íslenzks atvinnulífs er þar
aðalatriðið. Ríkisvaldið verður að
taka upp miklu nánara samstarf
við einkaframtak og félagsfram-
tak en nokkru sinni hefur áður
þekkzt hér á landi. Endurskoða
verður í slíku samstarfi hverja
atvinnugrein fyrir sig og kryfja
til mergjar, hvað gera þarf til
þess, að hún njóti sín sem bezt.
Finna hvers þarf með. Vantar
rekstursfé, vélar eða tæki, er
skipulagi áfátt o. s. frv.? Beita
síðan ríkisvaldi, einstaklings- og
félagsframtaki til þess að bæta
úr. Reisa skynsamlegan áætlunar-
búskap á þessum grundvelli. Miða
stefnuna í peninga- og lánamál-
unum við þarfir atvinnulífsins og
þeirra heilbrigðu fyrirtækja, sem
þjóðarbúskapurinn verður að
Eysteinn Jónsson,
form. Framsóknarflokksins:
V
„Ég tel ástandið svo alvarlegt, að
endurskoða verði þjóðarbúskap-
inn frá rótum.“
„Erfiðleikana í gjaldeyrismálum
verður fyrst og fremst að yfir-
vinna með eflingu atvinnulífs-
ins . . .“
„ . . . stefna flokksins á fylgi að
fagna langt út fyrir raðir þeirra,
sem fylgt hafa flokknum fram að
þessu.“
>> • • • verðlag hér er orðið í miklu
ósamræmi við verðlag í viðskipta-
löndum okkar og liggur þetta eins
og mara á iðnaði, útflutningsfram-
leiðslu, siglingum ...“