Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1967, Síða 22

Frjáls verslun - 01.10.1967, Síða 22
22 FRJÁLS VERZLUN Loftmynd af skrifstofubyggingu og hóteli Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli. II. Sú ákvörðun Kristjáns að nema lögfræði gjörbreytti lífsferli hans. Maðurinn, sem ætlaði sér að verða skáld og fagurkeri, varð fjármála- maður og umsvifamikill fram- kvæmdamaður. Þrátt fyrir, að Kristján Guð- laugsson innritaðist í lögfræði, af því að fárra annarra kosta var völ, kunni hann fljótlega vel við þá námsgrein og við háskólalífið, og hið akademíska frelsi. Kristján er og hefur alltaf verið einarður maður, sjálfráður og kann illa þvingunum. Menntaskólanámið féll honum því illa. En í háskólan- um fær hann nóg svigrúm, hæfi- leikar hans njóta sín. Hann tekur virkan þátt í félagsmálum og stjórnmálaáhugi hans fer vaxandi. Hann gengur fyrst í Frjálslynda flokkinn og síðar í Sjálfstæðis- flokkinn, og er hatrammur and- stæðingur kommúnista. Á háskólaárunum orti hann og skrifaði greinar 1 Stúdentablaðið. Skrifaði hann m. a. kunna háð- grein um þau áhrif, sem styttan Móðurást hlyti að hafa á yfir- stjórn bæjarins, en hún stóð um þær mundir ofan á peningaskáp bæjarfélagsins í skrifstofu þess. Kristján skrifaði lipurt og gott mál og var það því eðlilegt, að hann var beðinn að taka að sér ritstjórn ýmissa blaða. Þannig var hann ritstjóri Vilja, mánaðarrits æskumanna, árið 1928, Heimdall- ar og Stefnis, sem voru málgögn Sjálfstæðismanna, svo og Stúd- entablaðsins. Auk þess fékkst hann við þýðingar. Formaður í Stúdentafélagi Reykjavíkur var hann í tvö ár. Kristján hafði því, þegar hann lauk lagaprófi, öðlazt mikla reynslu í ritstörfum og félagsmál- um, og kom þetta honum að góðu haldi síðar meir. Hann lauk em- bættisprófi í lögfræði frá Háskóla íslands 14. júní 1932 með góðri I. einkunn. Árið 1933 kvæntist hann Berg- þóru Brynjúlfsdóttur, tannlæknis Björnssonar og hefur þeim hjón- um orðið tveggja bama auðið, Önnu, sem gift er Hauki Steins- syni tannlækni og Grétars Bryn- júlfs hdl., sem veitir forstöðu af- greiðslu Loftleiða h.f. á Keflavík- urflugvelli. Er hann kvæntur Sigríði Þorsteinsdóttur frá Vatns- leysu í Biskupstungum. m. Árið 1934 bauð Kristján sig fram til þings í Strandasýslu. Urðu þetta sögulegar kosningar. Tryggvi Þórhallsson féll, og var Kristján að nokkru valdur að því. Hermann Jónasson náði kjöri. í sambandi við þetta framboð gerðist einnig leiðindaatburður, sem átti eftir að valda Kristjáni nokkrum óþægindum á stjórn- málaferli hans. Jón Þorláksson, þáverandi formaður Sjálfstæðis- flokksins, hafði beðið hann að fara í framboð í Strandasýslu. Vissi Kristján ekki betur en Jón talaði fyrir hönd miðstjórnar flokksins. En þegar hann hefur haldið nokkra fundi í Stranda-

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.