Frjáls verslun - 01.10.1967, Blaðsíða 36
36
FRJÁLS VERZLUN
1963 1698 —
1964 2034 —
1965 2592 —
1966 3564 —
Þessar tölur eru þó ekki ná-
kvæmar, eins og ég gat um áðan,
en þær sýna þó, hver þróunin hef-
ur orðið hér á undanförnum ár-
um. Fjöldi víxilmála í Reykjavík
hefur sem sagt meira en tvöfald-
azt frá árinu 1963, og þessi þróun
virðist halda áfram, miðað viðþað
sem af er þessu ári.
Það ber að hafa í huga, þegar
þessar tölur eru virtar, að í einu
máli er oft stefnt vegna margra
víxla, þannig að samanburður á
fjölda afsagna og þingfestra víxil-
mála er ekki sambærilegur. Því
miður er erfitt að fá upplýsingar
um fjölda afsagðra víxla langt
aftur í tímann, þar sem eigi hefur
verið um það hugsað að halda
slíkar skýrslur, en hjá borgarfó-
getaembættinu í Reykjavík voru
afsagðir á árinu 1966 28.138 víxl-
ar og samkvæmt athugunum og
áætlunum upplýsingaskrifstofu
Verzlunarráðs er áætlað, að sú
tala fari yfir 40.000 á þessu ári.
Víxilmálum fyrir dómi lýkur á
ýmsan veg að sjálfsögðu. Úrslit
flestra er væntanlega dómur á
víxilskuldarana, sem skyldaður er
þá til greiðslu, en allmiklum
fjölda víxilmála iýkur með svo-
nefndri dómsátt, þar sem víxil-
skuldararnir lofa með undirskrift
í dómabók að inna greiðslur af
hendi innan ákveðins tíma. Það
er allmikil ásókn af hálfu víxil-
skuldara í að fá að ljúka máli á
þennan hátt, því að með því losna
þeir við að fá dóminn birtan í
kaupsýslutíðindum. Þá er alltaf
töluverður fjöidi víxilmála, sem
lýkur með frávísun eða sýknu,
t. d. vegna þess að ekki hafi verið
gætt hinna ströngu formskilyrða
víxilsins.“
GANGUR
VÍXILMÁLS.
„Við skulum nú fylgja eftir,
hvernig eitt víxilmál gengur, eins
og nú er háttað í dag, eftir að
ákvörðun hefur verið tekin um
að innheimta víxil með dómi. Við
skulum sérstaklega athuga, hversu
langan tíma hin einstöku stig
þurfa að taka.
Fyrsta skrefið er að birta skuld-
urum víxilsins stefnu, og ef hann
eða þeir búa innan lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur, nægir eins
sólarhrings stefnufrestur. Málið er
síðan þingfest fyrir bæjarþingi og
algengast er, að víxilmál sé dóm-
tekið strax sama daginn og það
er þingfest. Hér njótum við góðs
af þeim sérstöku forréttindum,
sem víxilmál hafa fyrir dómstól-
um. Dómarinn þarf síðan aðkveða
upp sinn dóm. Síðan er tekið end-
urrit af dómnum, og þetta endur-
rit er afhent kröfueigandanum og
hann hefur þá fengið dóminn í
hendurnar. Frá því málið er þing-
fest og þar til endurritið er feng-
ið, líða að jafnaði u. þ. b. 10 dagar.
Frá þessu getur þó vikið í báðar
áttir, og í heild má segja, að borg-
ardómaraembættið hafi á síðustu
árum lagt sig sérstaklega fram um
að flýta fyrir sitt leyti afgreiðslu
á víxilmálum.
Þegar komið er í gegnum þetta
stig, má segja, að því réttarfars-
hagræði sé lokið, sem víxilmál
njóta fyrir dómstólum, og er þá
eftir æði löng ganga. Næst er að
birta skuldaranum dóminn. Eins
og þið vitið, sem slíka dóma hafið
séð, stendur í dómsorðunum, að
dómþoli skuli greiða þar tilgreind-
ar upphæðir — og svo segir orð-
rétt: „Allt innan 15 daga frá lög-
birtingu dóms þessa, að viðlagðri
aðför að lögum.“
Þetta þýðir í raun að bíða verð-
ur í 15 daga, frá því dómurinn
var birtur skuldaranum og þar til
unnt er að láta aðför fara fram —
eða fjárnám, eins og það heitir
öðru nafni. Þessi 15 daga frestur,
sem tiltekinn er í dómunum, á
rætur að rekja til Norsku laga
Kristjáns V. frá 1687, en þar seg-
ir í I, bók, 22. kapitula, 19. grein:
„Nú er maður dæmdur til þess að
greiða eitthvað eða þola aðför í
eignum sínum, hvar sem þær eru,
og hann gerir eigi skil innan 15
daga og skal fógeti þá krefja að-
farar eftir dóminum.“ — — —
Þessi 15 daga frestur er að mínu
viti óþarfur í víxilmálum, sem
ekki er tekið til vitna í, og tefur
óþarflega gang þeirra.
Frá því víxilmálið var þingfest
og þar til við getum óskað eftir
fjárnámi, hafa því liðið 25 dagar
samkvæmt því, sem að framan
Hvers vegna ekki
að athuga verð og gæði
OLYMPIA-rafritvélanna
áður en þér takið lokaákvörðun
um ritvélakaup.
OLYMPIA-rafritvélin mælir með sér sjálf, enda fram-
leidd í verksmiðju með yfir 60 ára reynslu í smíði ritvéla.
ÓLAFUR GÍSLAS0N & C0. H.F.
Ingólfsstræti 1 A, sími 18370.