Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 37

Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 37
IFRJÁLS VERZLUN 37 greinir, og enn eigum við alllanga leið eftir. Við skrifum borgarfógetaem- bættinu og óskum eftir, að fjár- nám sé gert í eignum skuldarans til tryggingar þeim greiðslum, sem dómurinn hljóðar upp á. Fjár- námsbeiðnin gengur inn í röðina, og hjá borgarfógeta er enginn greinarmunur gerður á því, hvort um víxilkröfu er að ræða eða ekki. Venjulegur biðtími eftir því að fá fjárnám framkvæmt er a. m. k. 15 dagar, og síðan tekur u. þ. b. eina viku eða 7 daga að fá endurrit fjárnámsins í hendur; við erum því hér samtals komin upp í 47 daga frá því málinu var stefnt inn. Ef fjárnám er gert í fasteign skuldarans, sem er al- gengast, ef hann á fasteign á ann- að borð, sem ekki hvílir allt of mikið á, þá þarf að þinglýsa fjár- náminu og senda beiðni um upp- boð. Ef engin önnur uppboðs- beiðni hefur borizt um sömu eign áður, hefur borgarfógetaembættið haft þann hátt á að gefa mönnum skriflega kost á að gera kröfuna upp á skrifstofum borgarfógeta, áður en auglýsing sé send til birt- ingar í Lögbirtingablað. Reikna má með, að þar líði fjórtán dag- ar, bar til uppboðsbeiðni er send og þar til auglýsing er send í Lög- birtingablað. Samkvæmt lögum um nauðungaruppboð, frá 1949, skal síðan auglýsa uppboðið þris- var sinnum í Lögbirtingablaði, og má ekki líða minna en 6 vikur milli fyrstu birtingar og uppboðs. Fyrsta fyrirtekt á uppboðinu fer fram samkvæmt auglýstum tíma á skrifstofum borgarfógeta, og ef engir frestir eru veittir, fer upp- boðið sjálft fram u. þ. b. viku seinna. Heildartíminn frá því víx- ilmálinu var stefnt inn og þar til uppboð fer fram, er því samkvæmt því, sem ég hef að framan sagt, 103 dagar — eða meira en þrír mánuðir. Oft vill þetta þó drag- ast lengur af ýmsum ástæðum* t. d. koma réttarfrí hér inn í, þ. e. tveir mánuðir yfir sumartímann og hálfur mánuður um jólin. En meiri dráttur er oft sjálfum kröfu- hafanum eða umboðsmönnum hans að kenna, t. d. er það al- gengt, að kröfuhafinn veiti frest, þegar mál er komið á uppboðs- stig, og geta þar að sjálfsögðu ráðið mannúðarsjónarmið, en svo er það oft einnig matsatriði, hvort það sé til bóta fyrir kröfuhafann að knýja fram uppboð. KOSTNAÐURINN. En hvað kostar þetta nú? Hvað þarf víxilskuldarinn að greiða mikið í aukakostnað vegna þessa málareksturs? Við skulum athuga það lítið eitt. Kostnaðurinn fer að sjálfsögðu eftir því, hver upphæð kröfunnar er. Við tökum t. d. víx- il að fjárhæð kr. 90.000.00. Kostn- aðurinn við sjálft málið, þ. e. að fá dóm er ca. kr. 12.000.00. Fjár- námskostnaður, þ. m. t. þinglestur fjárnámsins er ca. kr. 3.000.00 og uppboðskostnaður, þ. e. þegar gert er ráð fyrir að skuldari greiði kröfuna, áður en uppboðssala fer fram, en eftir að málið hefur verið tekið einu sinni fyrir í uppboðs- rétti, er ca. kr. 2.300.00. Samtals þarf því skuldarinn að greiða í aukakcstnað vegna þessara van- skila sinna kr. 17.300.00, auk þess, sem skuldarinn þarf að borga van- skilavexti af höfuðstólnum 1% á mánuði. Því er stundum haldið fram, að vegna þess, hversu langan tíma það tekur, að fá fullnustu kröf- unnar, þ. e. að möguleiki sé til þess, að nauðungarsala fari fram, þá geri sumir sér það að leik á þessum tíma fjármagnsskortsins að taka á sig þennan kostnað til að geta verið með fjármagn það í eigin veltu, sem höfuðstóllinn hljóðar upp á, þann tíma, sem það tekur að fá málið á lokastig. Þessar tölur, sem ég nefndi áðan um aukakostnaðinn, draga mjög úr líkum fyrir því, að það sé rétt, því að vissulega þyrftu það að vera arðbær viðskipti, sem þyldu svo gífurlegan fjármagnskostnað. Á hitt ber hins vegar að líta, að meginhluti þessa aukakostnaðar fellur á þegar í upphafi, þ. e. á fyrsta degi málarekstursins. Um leið og mál hefur verið þingfest er málskostnaðurinn, þ. e. talan kr. 12.000.00 í dæminu hér að framan, fallin á. Kostnaðurinn, sem á eftir kemur er hlutfallslega miklu minni, þannig, að eftir að mál hefur verið þingfest á annað borð, kann að vera freisting í því, að bíða með uppgjör kröfunnar, að hafa fjármagn þetta í eigin veltu í þá 3—4 mánuði, sem síðan líða, þar til málið er komið á upp- boðsstig. Ég skal ekkert um það fullyrða, hversu algengur slíkur hugsunarháttur er, en ekki mun hann dæmalaus. AUKIÐ AÐHALD. Ég held það skipti miklu máli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.