Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 38

Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 38
3B FKJAL5 VERZLUN til að auka aðhald í þessum efn- um, að hraða mun meir en nú tíðkast víxilmálum — og reyndar öðrum einfaldari skuldamálum. Ég sagði áðan, að embætti borgar- dómara gerði allt, sem í þess valdi stæði, til að hraða meðferð víxilmála, enda tekur ekki meir en ca. 10 daga að fá dóm, eins og fyrr segir.“----------—------ „Hitt þarfnast rækilegrar endur- skoðunar, hvernig stytta megitím- ann eftir að komið er á fógeta- stigið. Ég held t. d. að 15 daga aðfarar- fresturinn, sem ég nefndi áðan, sé alveg óþarfur í víxilmálum og einfaldari skuldamálum."-------- „Þá er nauðsynlegt að búa svo að embætti borgarfógeta, að því er mannahald, húsnæði og starfs- aðstöðu alla snertir, að fjárnám geti verið framkvæmd án nokk- urra tafa að ráði. Þá þarfnast það rækilegrar athugunar, hvort ekki sé unnt að stytta þann langa tíma, sem líður, þar til uppboðsbeiðni er send og þar til uppboðsmálið sé fyrst tekið fyrir í uppboðsrétti, t. d. hvort 6 vikna fresturinn frá fyrstu auglýsingu í Lögbirtinga- blaði til fyrstu fyrirtektar sé nauð- synlegur. Ég held það myndi hvetja til aukinnar skilvísi, ef menn gætu reiknað með því, að mál til fulln- ustu víxilkröfum, allt frá þing- festingu málsins í bæjarþingi, þar til uppboð er mögulegt, gætu gengið greiðlega fyrir sig. Ég ætla nú að lokum í þessu spjalli að drepa á nokkur önnur atriði, sem hugsanlega gætu stuðl- að að úrbótum í þessum efnum — allt þarfnast það bó nánari athug- unar, en ég skýt þeim fram til umhugsunar fyrir þá, sem um þessi mál vilja nánar fjalla. Því er þó sleppt að ræða það, sem hér á hvað drýgstan þátt, en það er hinn mikli rekstursfjárskortur, sem þjáir viðskiptalífið. OFNOTKUN VÍXLA. Víxlar eru mjög ofnotaðir hér á landi. Ég ætla að gera það nokk- uð að umtalsefni, hversu mjög víxlar eru notaðir, þegar keypt er með afborgunum, en þau viðskipti hafa mjög aukist á undanförnum árum, bæði við kaup á alls kyns nvjum tækjum, svo og í viðskipt- um með notaða bíla. Þessi við- skipti fara oft þannig fram, að samþykktur er víxill fyrir hverja afborgun og er enginn vafi á því. að þeir víxlar, sem þannig kom- ast í umferð, skipta þúsundum á ári hverju. Ég hef í rauninni aldrei skilið, hvers vegna seljend- ur hafa ekki fundið þessum við- skiptum sínum annað form en víxilformið. Hugsanleg er sú skýr- ing, að bankar kaupi ekki önnur viðskiptabréf en víxla til stutts tíma. En þótt víxilformið sé nú að mörgu leyti handhægt form, hefur það þó vissa annmarka, sem koma glöggt fram í þessari teg- und viðskipta. Það er mjög al- gengt, þegar vara er seld með af- borgunum, að gerður er skrifleg- ur kaupsamningur, auk þess sem kaupandinn samþykkir víxla. Tvö ákvæði eru oft í þessum kaup- samningi, sem vafasamt er að haldi, þegar seljandinn fær um leið í hendur víxla sem greiðslu fyrir vöruna. I fyrsta lagi er oft sett ákvæði um það, að ef ein greiðsla falli í gjalddaga án þess að staðið sé í skilum, þá falli jafn- framt í gjalddaga allar eftirstöðv- ar kaupverðsins. Þetta ákvæði er nánast þýðingarlaust, þegar sam- þykktir hafa verið víxlar, sem hafa ákveðna gjalddaga, sem skráðir eru á víxilinn. Seljandinn verður því að bíða, þar til síðasti víxillinn er fallinn, ef hann vill fá dóm fyrir allri kröfunni í einu. Þá er enn fremur oft ákvæði í slíkum kaupsamningum þess efnis, að varan sé eign seljanda, þar til síðasta afborgun hafi farið fram og hann geti sótt hana, ef vanskil verði. Slíkur eignarréttarfyrirvari er mjög vafasamur, þegar greitt hefur verið með víxlum. Allavega kemur það oft fyrir í slíkum við- skiptum, að víxlarnir og kaup- samningurinn skiljast að —- kom- ast hver í sína hendi og geta þá risið upp ýmsar æði flóknar lög- fræðilegar spurningar, sem ekki er unnt að fara út í hér. Miklu einfaldara og þægilegra form á slíkum afborgunargreiðsl- um er að gefa út eitt skuldabréf, sem felur í sér alla gjalddagana. Það bréf er auðveldlega unnt að útbúa þannig, að það njóti þeirra réttarfarshagræða, sem víxlar njóta. Það þarf ekki endilega að CITROÉN 1968 Umboð SÓLFELL h/f, Skúlagötu 63, sími 17966 MEIRA STRAUMLÍNULAGAÐUR TVÖFÖLD LJDS IDDE-LJÖS, SEM LÝSA FYRIR HDRN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.