Frjáls verslun - 01.10.1967, Page 44
44
FRJÁLS VERZLUN
BAÐSKÁPAR
í FJDL-
BREYTTU
ÚRVALI
FALLEGIR
NÝTÍZKULEGIR
VANDAÐIR
LAUGAVEGI 15
SÍMI 1 33 33
ÁVALLT FYRIRLIGGJAND!
nýir, niðursoðnir og þurrkaðir ávextir.
Sig. Þ. Skjaldberg h.f.
lAUGAVEGI 49, SÍMI 11491.
EUMIG kvikmyndatöku-
og sýningavélar
A
§P0RTVAL
| Laugavegi 116
gert fyrir. Á því er þó enginn vafi,
að sjónvarp er á margan hátt bezt
til þess fallið að gera áhrif aug-
lýsinga sem mest.
í grein þeirri, sem hér fer á eft-
ir, verður leitazt við að segja ör-
lítið nánar frá þeim þætti sjón-
varpsrekstursins, sem snýr að aug-
lýsingum og hugur sjónvarpsnot-
enda til þeirra kannaður.
ÍSLENZKA SJÓNVARPIÐ.
Allt frá því er undirbúningur
hófst að starfsemi íslenzka sjón-
varpsins, hefur það verið ljóst, að
Ríkisútvarpið tæki auglýsingar til
flutnings í sjónvarpi, og tekjur
þar af voru ætlaðar drjúgur liður
í rekstrarfé stofnunarinnar. Verð-
ur nánar vikið að því síðar. Eðli-
lega ríkja ýmsar reglur um flutn-
ing auglýsinga í sjónvarpi og
skulu þær nú reifaðar.
Auglýsingar eiga að vera lát-
laust orðaðar, lausar við skrum
og hæpnar fullyrðingar, en segja
það eitt eða sýna, sem er satt og
rétt í öllum greinum. Þær skulu
aðeins fluttar á tilteknum tímum,
sem Útvarpsráð ákveður. Þetta
ákvæði hefur mætt nokkurri and-
stöðu auglýsenda, sem vilja láta
dreifa auglýsingunum meira um
dagskrána. Þannig þætti t. d. ýms-
um hafa hlaupið á snærið hjá sér,
ef þeir fengju leyfi til að skjóta
inn auglýsingu á undan „Dýr-
lingnum“. Þótt ekkert verði full-
yrt á þessu stigi málsins, leikur
lítill vafi á því, að siónvarpið mun
sjá sér aukinn hag í að hliðra til
í þessum efnum, og er því að
vænta meiri dreifingar auglýs-
inga. Vitaskuld ber auglýsandi
fulla og óskerta ábyrgð á efni
sjónvarpsauglýsingar, enda skulu
þeir jafnan nafngreindir í auglýs-
ingunum sjálfum.
KOSTNAÐUR.
Það má ljóst vera, að kostnað-
ur við auglýsingu í sjónvarpi
er meiri en kostnaður við svip-
aða auglýsingu í blaði eða hljóð-
varpi, enda ber auglýsandi all-
an kostnað af efni auglýsingar
og flutningi þess, þar á meðal
greiðslum vegna höfundaréttar
eða flytjendaréttar tóna eða tal-
aðs máls og birtingarréttar kyrr-
eða kvikmynda. Kostnaður við
auglýsingu, sem birtist í sjón-
varpi, er því tvenns konar. Ann-