Frjáls verslun - 01.06.1978, Blaðsíða 21
nefnda evrópska reikningseining
(European Unit of Account), sem
samsett er úr myntum aðildar-
landa Efnahagsbandalags Evrópu
í ákveðnum hlutföllum. Lánin eru
greidd út og endurgreidd í tiltekn-
um myntum miðað við gengi þeirra
gagnvart einingunum þegar
greiðslur fara fram. Minnkar þetta
gengisáhættuna en vextir eru í
staðinn hærri en ella.
íslenzka ríkið hefur þrisvar tekið
lán með þessum hætti og hefur í
öll skiptin verið gefin út skuldabréf
skráð í evrópskum reikningsein-
ingum til sölu á almennum mark-
aði.
Mikil skjalavinna
Eins og áður sagði fylgir mikil
vinna lántöku erlendis. Bæði er
fylgst vel með lánamörkuöum og
breytingum á þeim, en einnig fer
mikið starf hagfræðilegs og lög-
fræðilegs eðlis, fram við samninga
um lán og undirbúning og frágang
formsatriða varðandi þau. Eitt
þeirra gagna, sem Seðlabankinn,
eða annar lántakandi sendir er-
lendum lánveitendum er lýsing
eða „Prospectus". Þar er skulda-
bréfunum lýst, sagt frá vöxtum,
innlausn og öðrum atriðum, sem
lánveitandann varða. Þá er þar al-
menn lýsing á íslenzka lýöveldinu
og efnahagsstöðu þess, ef um lán
til ríkisins er að ræða, eða fjár-
hagsstöðu annars lántakanda s.s.
Landsvirkjunar eða ríkisfyrirtækis.
Þá er gefirm út fjöldi vottorða,
svo sem um að þeir, sem undirrita
lánssamning eða skuldabréf séu
þeir sem þeir eru og lögfræðingar
staöfesta og skilgreina hugtök og
þær stofnanir, sem nefndar eru í
gögnum, sem snerta lántökuna.
Öll þau gögn, sem snerta eitt slíkt
lán fylla heilar möppur og skiptir
blaðsíðufjöldi þeirra fremur
hundruðum en tugum.
C----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------'t
This announceinent appears as a matter of record only.
t
LANDSVIRKIUN
THE NATIONAL POWER COMPANY
ICELAND
U.S. $60,000,000
Ten Year Floating Rate Loan
managed by
Hambros Bank Limitcd
Canadian Imperial Bank of Commcrcc Mitsui Finance Asia Limited
Banquc Nordeurope S.A.
Nippon Credit Intcrnational (HK) Ltd.
Taiyo Kobc Financc Hongkong Limited
to be provided by
Banque Continentale du Luxembourg S.A. Banque Nordeurope S.A. Canadian Imperial Bank of Commerce
Fuji Kwong On Financial Limitcd Hambros Bank Limited International Energy Bank Limited
Mitsubishi Bank (Europe) S.A. Mitsui Finance Asia Limited Thc Mitsui Trust and Banking Company Limited
Nippon Credit International (HK) Ltd. Taiyo Kobe Finance Hongkong Limited
The Royal Bank of Scotland Limited
Agent Bank
Hambros Bank Limitcd
Junc, 1978
V----------------------------------------------------------------
Þegar gengið hefur verið endanlega frá lánl, er birtur svo nefndur
„legsteinn" yfir lánið. Hér er aðeins um formlega tilkynningu um lánið
að ræða, þar sem tækifærið er notað til að auglýsa bankana, sem þátt
tóku í því og lántakandann, ef kjörin eru góð. Ef um skuldabréfaútgáfu
er að ræða birtist „legsteinninn" eftir að skuldabréfin hafa verið seld
eða sala á þeim tryggð. Hér er „legsteinninn" yfir lán Landsvirkjunar,
sem undirritað var í júní, en hann var birtur í tímaritinu Euromoney.
21