Frjáls verslun - 01.06.1978, Page 56
Dior-vörur seldar í
öllum löndum heims
— nema Kína og Al-
baníu. Hvernig skyldu
þær lykta þar?
Það varð sprenging í franska
tízkuheiminum árið 1947. Nýtt út-
lit. Eftir sjö ára skort heimsstyrj-
aldaráranna þyrsti kvenfólk í nýja
tízku í fatnaði. Óþekktur tízku-
hönnuður, Christian Dior að nafni,
var knúinn áfram af breyttum við-
horfum og lét hendur standa fram
úr ermum. Hann hélt fána Frakk-
lands á lofti á nýjan leik í tízku-
heiminum.
En nafnið Christian Dior er ekki
aðeins tengt fatatízkunni, nafn
sem stöðugt festist við fleiri teg-
undir af lúxusvörum. Christian
Dior er líka ilmvatna- og snyrti-
vörufyrirtæki, sem veltir um 400
milljón frönkum á ári.
Ilmvatnafyrirtækið Parfums
Christian Dior, var líka stofnað árið
1947, þegar það setti fyrstu teg-
undina á markað ,,Miss Dior“.
Þetta ilmvatn olli talsverðum
straumhvörfum og breyttum
smekk hjá kvenþjóðinni. Glasiö
sjálft var bylting frá því, sem fólk
átti áður að venjast, hannað af
Baccarat. Salan var tvö hundruö
glös fyrsta árið. Sannkölluð lúxus-
vara.
24 milljón einingar seldar árlega
Það seldust sem sagt tvö
hundruð glös árið 1947 en 30 ár-
um síðar framleiddi Parfums
Christian Dior 24 milljón einingar.
Nöfn eins og Miss Dior, Eau
Fraiche, Diorissimo, Dioressence,
Diorella, Dior-Dior og Eau
Sauvage fyrir karlmenn eru allt
heimsþekkt nöfn og meö sölu-
hæstu tegundum á sínu sviði. Þar
að auki kemur svo snyrtivörufram-
leiðslan með 530 mismunandi
Skrifstofubygging Parfums Christian Dior í Saint-Jean-de-Braye.
Fagurt umhverfl og glæsileg húsakynni vekja sérstaka athygli. Allt í
Dior-stíl.
tegundum, sem framleidd eru í 120
þús. einingum á dag.
Það eru tvö þúsund útsölustaðir
fyrir þessar vörur í Frakklandi, 10
þús. í heiminum öllum og Dior--
ilmvötn voru með þeim fyrstu, sem
seld voru tollfrjálst í flugvélum.
SAS hóf sölu á þeim árið 1960.
Útflutningstekjurnar eru nú um
240 milljón frankar og þar af koma
20% frá fríhöfnum á flugvöllum
víðs vegar um heim.
Selt fyrir 150 þús. franka tit ís-
lands
Samkvæmt upplýsingum skrif-
stofustjóra Dior í Saint-Jean-de-
Braye, skammt frá Orleans, nam
sala til fslands í fyrra um 150 þús.
frönkum. Hann sagði, aö Dior-vör-
ur væru nú seldar í öllum löndum
heims nema Kína og Albaníu.
Fyrstu Dior-varalitirnir voru
búnir til árið 1955 og fyrsta nagla-
lakkið 1961. Fyrsta snyrtivörulínan
kom á markaðinn 1969.
Sama ár varð Parfums Christian
Dior hluti af Moet-Hennessy-sam-
steypunni. Þannig sameinuðust
þrjú alfrönsk fyrirtæki um að viö-
halda franskri hefð í sölu á mun-
aðarvöru á alþjóðlegum vettvangi.
Góð lykt og gott útlit
- frá Dior