Frjáls verslun - 01.06.1978, Qupperneq 61
Frakkar hafa áhuga á
olíuleit við ísland
Jean Moreau, fulltrúl f viðsklptadelld
franska utanríkisráðuneytislns.
„Það er greinilegt, að viðskipti
Frakklands og islands eru mjög
lítil og ráða því fjarlægðir og
slæmar samgöngur milli land-
anna. f augum franskra kaup-
sýslumanna eru íslendingar smá-
þjóð og ekki miklir kaupendur.
Verðbólgan á íslandi gerír það
líka að verkum, að franskir útflytj-
endur hafa átt í erfiðleikum með
að hugsa um ísland sem mark-
að“.
Þetta voru orð Jean Moreau, full-
trúa í viðskiptadeild franska utan-
ríkisráðuneytisins í París, þegar
við ræddum stuttlega við hann
meðan á Frakklandsheimsókn
okkar stóð. Þessu til sönnunar
benti hann á að (slandsviðskipti
Frakka heföu numið 0,009% af
miliiríkjaverzlun þeirra árið 1975,
en 0,017% í fyrra. (sland er því
mjög neöariega á lista yfir lönd,
sem eiga viðskipti við Frakka.
Frakkland hefur verið í 10,—20.
sæti af þeim löndum, sem kaupa
vörur frá (slandi en af heildarút-
flutningi okkar (slendinga kaupa
Frakkar aðeins 0,7%. Hins vegar
eru franskar vörur 3,2% af inn-
flutningi islendinga. Þetta er þó
mjög breytilegt hlutfall milli ára
eins og gefur aö skilja, þegar
magnið er svo lítið. Þá getur sér-
hver viðbótarsala eða samdráttur
haft veruleg áhrif á hlutfallstölur.
Það er þó mjög einkennandi
fyrir þessi viöskipti, aö Frakkar
selja alltaf meira til Islands en þeir
kaupa héðan. Það eru einkanlega
fiskafurðir og ál, sem flutt hefur
verið út til Frakklands en að sögn
Moreau virðist ganga treglega að
auka sölu íslenzkra sjávarafurða í
Frakklandi.
Bílar eru mjög áberandi á listum
yfir franskar vörur, sem seldar eru
til íslands en í fyrra voru þó skip í
efsta sæti. Síðan kom stál, vélar og
tæki, rafmagnsáhöld, vín og
áfengi. Miðað við sölu á íslenzkum
afurðum til Frakklands hefur inn-
flutningur franskrar vöru til íslands
oftast verið 200— 350%.
Árið 1975 voru þessi viðskipti
hagstæð Frökkum um 7 milljónir
franka en óhagstæð um 36 mili-
jónir 1976 og svo aftur hagstæð
um 32 milljónir í fyrra.
Moreau sagði, að Frakkar hefðu
mikinn áhuga á að taka þátt í at-
hugunum vegna hugsanlegrar
olíuleitar við (sland. Þá hefðu
frönsk fyrirtæki fylgzt náið með
framkvæmdum við byggingu nýrra
orkuvera á íslandi, þó að þau
hefðu ekki reynzt samkeppnisfær i
verði I þeim útboðum, sem fram
hafa farið undanfarið eins og
vegna Sigöldu og Hrauneyjarfoss.
61