Frjáls verslun - 01.12.1989, Blaðsíða 26
meiri en nemur hlut Ríkissjónvarps-
ins.
TILFÆRSLURNAR Á MARKAÐINUM
Það er ekki nóg með að almennur
samdráttur hafi orðið á auglýsinga-
markaði á undanfömum árum heldur
hafa orðið talsverðar tilfærslur milli
einstakra miðla. Það sem vekur
mesta athygli er mikil aukning sjón-
varpsauglýsinga og sömuleiðis tím-
aritaauglýsinga. Dagblöðin hafa öll
mátt sjá af nokkm magni auglýsinga
og sömu sögu er að segja af útvarpi.
Stórir auglýsingaaðilar hafa í vaxandi
mæli fært sig úr prentmiðlum yfir í
sjónvarp, bæði hjá Stöðvar 2 og Rík-
issjónvarpsins. Þar kemur tvennt til.
Auglýsingagerð fyrir sjónvarp er
verulega ódýrari í dag en fyrir nokkr-
um árum. Sömu sögu er að segja af
verðlagningu auglýsinga. Sú þróun
sem átt hefur sér stað t.d. í Banda-
ríkjunum þar sem sjónvarp er lang-
mikilvægasti auglýsingamiðillinn og
tímarit fara vaxandi, hefur einfaldlega
haldið innreið sína hér á landi. Þá hafa
breyttir viðskiptahættir á markaðin-
um átt sinn þátt í þessum breytingum
eins og áður sagði. Morgunblaðið og
Ríkisútvarpið í skjóli nánast einokun-
ar sinnar um áratuga skeið, hafa alla
tíð verið mjög ósveigjanleg í viðskipt-
um. Lögmál framboðs og eftirspumar
hafa þar engu ráðið. Vinnubrögð
breyttust almennt með tilkomu nýju
ljósvakamiðlanna, en Morgunblaðið
og Ríkisútvarpið sátu eftir og töpuðu
viðskiptum fyrir bragðið.
STÓRIR AUGLÝSENDUR
YFIR TIL SJÓNVARPS
Athygli hefur vakið að fjölmargir,
mjög stórir auglýsendur hafa breytt
áherslum sínum verulega í seinni tíð á
þann vega að fara frá prentmiðlum
yfir til sjónvarps. Nægir þar að benda
á heila grein eins og bflgreinina. Fyrir
1987 má segja að bílaauglýsingar í
sjónvarpi hafi verið nær óþekkt fyrir-
brigði hér á landi. Á þessu hefur orðið
gjörbylting á liðnum missemm þegar
stærstu bílaumboðin hafa fært sig
verulega yfir í sjónvarp. Þar nægir að
nefna umboðsmenn söluhæstu bíl-
anna eins og Heklu, Toyota og Ingvar
Helgason svo einhverjir séu nefndir.
Þessi sveifla hefur einnig orðið í
ferðaiðnaðinum, þar sem flugfélögin
Flugleiðir, Amarílug og SAS hafa í
vaxandi mæli fært sig yfir til sjón-
varps. Sömu sögu er að segja af
stærstu ferðaskrifstofunum, sem all-
ar hafa aukið hlut sinn í sjónvarpi
verulega. Nægir þar að nefna Utsýn
sem hefur verið einn stærsti við-
skiptavinur Morgunblaðsins í gegn-
um tíðina, Samvinnuferðir-Landsýn,
Úrval, Atlantik, Sögu, Pólaris og í
seinni tíð Veröld.
MIKILL MUNUR Á AUGLÝSINGASTOFUM
Ennfremur vekur það athygli að
mikill munur er á áherslum hjá ein-
stökum auglýsingastofum. Sumar
hverjar halda sig áfram að langstærst-
um hluta við prentmiðlana og þá
Morgunblaðið sérstaklega. Þar nægir
að nefa stærstu auglýsingastofu
landsins, GBB/Auglýsingaþjónust-
una, sem er með 70-80% allra sinna
viðskipta í prentmiðlum og þar af
langmest í Morgunblaðinu. Á hinum
vængnum eru síðan aðilar eins og ís-
lenska auglýsingastofan, sem er
þriðja stærsta stofa landsins. Hún er
með mikla dreifingu milli prentmiðla,
sjónvarps og útvarps. Reyndar er
hún stærst í sjónvarpi. Aðrar stofur
eins og AUK, Ydda, Gott fólk og Arg-
us hafa í auknum mæli verið að auka
breidd sína í allra seinustu tíð eftir að
hafa haldið sig mikið við prentmiðl-
ana.
Það vekur reyndar athygli að fram-
an af voru það að stærstum hluta
fyrirtæki, sem ekki skiptu við auglýs-
ingastofur, sem fóru með auglýsingar
sínar til ljósvakamiðlanna og hlutur
stofana var hlutfallslega ótrúlega
smár. Þau fyrirtæki sem riðu á vaðið
með stóraukinni þátttöku í ljósvaka-
miðlunum voru helst Þýzk-íslenska,
Radíóbúðin, Nói & Síríus, Rolf Johan-
sen, Útsýn, Hekla, Ingvar Helgason
og Arnarflug svo einhver séu nefnd.
Þá auglýstu fyrirtæki eins og Vífilfell,
Sanitas og Sól mjög myndarlega í ljós-
vakamiðlunum og þá kannski alveg
sérstaklega hjá Stöð 2 og í nýju út-
varpsstöðvunum.
Ennfremur kemur í ljós þegar
markaðurinn er skoðaður að hlutur
auglýsingastofa í tímaritum er mjög
smár. Auglýsingastofur hafa jafnan
haft talsvert hom í síðu tímaritanna,
svo furðulegt sem það nú er. Reyndar
hefur það alla tíð vakið furðu hjá und-
irrituðum hversu margar auglýsinga-
stofur og reyndar auglýsendur hafa
litla tilfinningu fyrir markaðinum og
ákveða auglýsingabirtingar sínar á
vafasömum forsendum. Fordómar í
garð ákveðinna miðla hafa verið ótrú-
lega miklir.
Tilkoma Stöðvar 2 og annarra nýrra ljósvakamiðla olli miklum breytingum á
auglýsingamarkaðinum.
26