Frjáls verslun - 01.12.1989, Síða 40
AÆTLANIR
fyrir þessari út-
komu að mati Rík-
isendurskoðunar?
í fyrsta lagi
brugðust áætlanir
fjárlaga um framlag
úr rekstri til fjár-
festinga og
greiðslu afborgana
af lánum. í öðru
lagi voru dráttar-
vextir af ýmsum
vanskilum aldrei
teknir með í áætl-
anir, en þess má
geta að uppsafnað-
ir dráttarvextir við
Ríkisábyrgðarsjóð
námu 151.8 milljón-
um króna í árslok 1987. í þriðja lagi
varð heildarkostnaður vegna fjárfest-
inga hærri en áætlanir gerðu ráð
fyrir. I fjórða lagi voru tekin hærri lán
en ætlunin var. I fimmta lagi voru
hækkunarforsendur fjárlaga van-
metnar á árunum 1981,1982,1983 og
1985 og aukafjárveitingar dugðu ekki
til að jafna muninn.
Loks má nefna í
sjötta lagi að flutn-
ingamagn Skipaút-
gerðarinnar varð í
raun minna en áætl-
að hafði verið.
í almennum at-
hugasemdum Ríkis-
endurskoðunar er
felldur áfellisdómur
yfir stjómendum
fyrirtækisins og
m.a. gagnrýnt að
þrátt fyrir slæma af-
komu hafi ekki
verið gerð tilraun til
að fá rekstrarhall-
ann bættan á fjár-
lögum heldur stofnað til vanskila og
aukinna skulda. Ráðist var í miklar
ijárfestingar á þessu tímabili og segir í
skýrslunni að með óbreyttum rekstri
Skipaútgerðarinnar muni fyrirtækið
aldrei geta staðið undir skuldunum
sem þær og óarðbær rekstur hafa
leitt af sér.
Það skal tekið fram að forráða-
menn Ríkisskips sendu frá sér grein-
argerð um málið og töldu ýmislegt
misreiknað í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar og að þeir hafi gert sitt besta til
að benda á vandann. Það breytir þó
ekki þeirri staðreynd að í þessu tilviki
stóðust áætlanir engan veginn, hverj-
um sem það svo var að kenna.
Annað og öllu verra dæmi um mis-
tök í áætlunargerð er Sjóefnavinnslan
á Reykjanesi. Arið 1976 voru sett lög
um byggingu og rekstur 250.000
tonna saltverksmiðju en árið 1981
ákvað Alþingi að stefna á byggingu
40.000 tonna verksmiðju. Loks var
ráðist í byggingu 8.000 tonna verk-
smiðju sem árið 1986 framleiddi að-
eins 728 tonn af salti! Þannig urðu
250.000 tonna draumar að 728 tonna
martröð á 10 árum þrátt fyrir ítarlegar
áætlanir um verulegan hagnað af
rekstri slíks fyrirtækis. A endanum
hefur svo almenningur þurft að taka
upp veskið og borga áætlunarmistök-
in - í þessu tilfelli talsvert yfir hálfan
milljarð króna.
Agi virðist lítill í stjórnkerfi
ríkisins og forstöðumenn
stofnana eyða fjármunum án
heimilda.
Aprentaðar auglýsingavörur
s.s. pennar, kveikjarar
ogfl. ogfl.
Einnig límmiðar fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Allar stærðir.
í sjálfgefandi öskjum, 1000 stk.
Jón Gildi Jónsson \
| Bugflustræti 14.
200 Kópavogur
l Island
V Sfmi 91-641101_y
Hvít, gull, silfur, rautt og glært.
TEXTIOG VÖRUMERKINGAR
HAMRABORG 1 4h. © 641101