Frjáls verslun - 01.12.1989, Qupperneq 58
MENNTUN
IÐNTÆKNISTOFNUN
- ÞURÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, FORSTÖÐUMAÐUR
FRÆÐSLUSVIÐS, TEKIN TALI
Þuríður Magnúsdóttir forstöðumaður
Eitt margra sviða Iðntækni-
stofnunar Islands er svonefht
Fræðslusvið og veitir Þuríður
Magnúsdóttir því forstöðu. Þur-
íður var innt eftir því hvert væri
hlutverk Fræðslusviðs.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐIÐNAÐARINS
„Hlutverk Fræðslusviðs ITÍ er í stuttu
máli að sjá starfsfólki og stjómendum í
atvinnulífinu fyrir menntun sem gerir þeim
Fræðslusviðs Iðntæknistofnunar.
fært að aðlaga sig síbreytilegum aðstæð-
um. Við skipuleggjum námskeið og þróum
námsefni fyrir hópa, fámenna jafnt sem
fjölmenna, svo og sémámskeið fyrir ein-
stök fyrirtæki.
Hægt er að skipta verkefnum Fræðslu-
sviðs í þrennt; Fræðslumiðstöð iðnaðar-
ins sér um að vinna og þróa verkefni fyrir
iðnaðarmenn og aðra starfsmenn í formi
endurmenntunar. Við sjáum um gerð
námsgagna, við finnum réttu aðilana til að
vinna þau, skipuleggjum starfið og færum
gögnin í endanlegan búning. Sem dæmi
má nefna eitt nýlegt verkefni en það em
námsgögn um starfsnám í matvælaiðnaði.
Við fengum ýmsa sérfræðinga til sam-
starfs við okkur og fólum hveijum og ein-
um að útbúa gögn varðandi skrif um sitt
sérsvið t.d. samsetningu matvæla, ör-
verufræði, gæði og vöruvöndun svo eitt-
hvað sé nefnt en auk þess má nefna að
hinu almenna umhverfi og mannlega þætt-
inum er einnig sinnt en í námsgögnunum
er t.d. að finna kafla um mannleg sam-
skipti á vinnustað, rétta líkamsbeitingu,
aðbúnað á vinnustað, hollustuhætti og ör-
yggi. Við höfum nána samvinnu við tækni-
deildir stofnunarinnar, Rannskókna-
stofnun byggingariðnaðarins og aðrar
stofnanir, samtök og sérfræðinga í iðnaði.
T.d. má nefna að það voru um fimmtíu
manns sem unnu við fyrmefnt verkefni.
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
Fræðslusvið sér um að halda réttinda-
námskeið fyrir verðandi vinnuvélastjóra.
Þessi námskeið eru fyrir þá aðila, sem
ætla að vinna á vinnuvélum, en til þess
þarf tilskilið leyfi og sér Vinnueftirlit ríkis-
ins um að því sé framfylgt. Þessi námskeið
eru frekar löng en grunnnámskeiðið er 80
kennslutíma námskeið. Einnig er boðið
upp á 30 kennslustunda framhaldsnám-
skeið. Það var reyndar gert í fyrsta sinn
sl. haust. Þetta eru 15-20 manna nám-
skeið sem haldin eru um allt land. í
Reykjavík fara þau fram hér í húsnæði Iðn-
tæknistofnunar. Við förum ekki af stað
með vinnuvélanámskeið úti á landi fyrr en
nógu margir þátttakendur eru fyrir hendi,
þ.e. 15-20 manns. Þessi námskeið eru
frekar dýr, þ.e.a.s. hvert námskeið kost-
ar 30.000.- krónur og er kennt alla daga
vikunnar nema sunnudaga.
VERKSTJÓRNARFRÆÐSLA
I þriðja lagi sér Fræðslusvið um að
halda verkstjómarfræðslu en þau nám-
skeið eru ætluð verkstjómm. Grunnnám-
viö flytjum-sendum-sækjum
25050
\p SENDIBILASTOÐIN Hf
opið um kvöld og helgar
58