Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 6

Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 6
RITSTJORNARGREIN TVEIR KEPPA. ÖÐRUM LEYFIST... Nýlega mátti sjá flennistóra mynd í einu dag- blaðanna af leikmanni hins sigursæla enska liðs Liverpool. Hann var að kljást um knöttinn og þetta var ofureðlileg íþróttamynd. Einn var þó hængur á. Á treyju leikmannsins stóð stórum stöfum; Carlsberg. Þar lágu Danir í því. íþróttamyndin ofureðlilega, sem alþjóðleg frétta- stofa sendi vítt og breitt um heiminn, var þá bjórauglýsing líka. Skýrar reglur banna auglýsingar á bjór á Is- landi. Þær reglur eru úreltar! Flennistóra íþróttamyndin af leik- manni Liverpool að auglýsa Carls- berg sýnir best hve mikils tvískinn- ungs gætir í banni við augiýsingum á áfengi á íslandi. í heimi alþjóðlegrar fjölmiðlunar er einfaldlega ekki hægt að koma í veg fýrir að auglýsingar birtist í einu landi ef þær eru leyfðar í öðrum. Fréttamyndir, blöð, tímarit, bíómyndir og sjónvarpsþættir fljóta á milli landa í beljandi flaumi — og sá flaumur verður ekki ham- inn með boðum og bönnum. Það, að banna íslenskum framleiðendum áfengs bjórs að auglýsa vörur sínar hér á landi, stríðir gegn þeim homsteini réttarríkisins að allir séu jafnir fýrir lögum. Það gengur ekki að leyfa út- lendum framleiðendum bjórs að auglýsa vömr sín- ar hérlendis — að vísu í gegnum erlenda fjölmiðla sem flæða til landsins — en banna á sama tíma íslenskum framleiðendum að auglýsa. Auglýsing- ar em hluti af ferli hverrar vöm. Og fyrst það má framleiða og selja hana hérlendis vaknar sú spurning hvers vegna ekki megi auglýsa hana líka. Raunar virðast ríkja tvenns konar lög hér á landi um auglýsingar á áfengi - eftir því hver á í hlut. Á landsleik íslendinga og Rúmena í knatt- spymu fyrr í haust mátti sjá erlenda bjórauglýs- ingu, ætlaða rúmenskum sjónvarpsáhorfendum heima í stofu, á besta stað fýrir miðju við hliðar- línu Laugardalsvallarins. Þannig virðist KSÍ leyfi- legt að auglýsinga bjór á íslenskri gmnd - en öðmm ekki. Málið snýr einnig að íslenskum fjölmiðlum sem keppa hart við þá er- lendu. I sömu bókahillunni virðast gilda tvenns konar lög - allt eftir þjóðemi. Erlendu dagblöðin og tím- aritin, sneisafull af auglýsingum á áfengi og vindlingum, em seld við hliðina á þeim íslensku sem búa við blátt bann gagnvart slíkum auglýs- ingum. Hlið við hlið eru því tveir keppinautar, öðmm leyfist en hinum ekki! Nú kann einhver að spyrja sig hvort ekki sé óraunhæft að leyfa auglýsingar á áfengi, hvort vímuefnavandi unglinga og fullorðinna sé ekki nægur fyrir. Því er til að svara að sala á áfengi og vindlingum verður aldrei stöðvuð með boði og bönnum, hversu óhollar sem þessar vömr kunna að vera. Eina raunhæfa vörnin gegn vímuefnum er fræðsla. Og þótt það sé kaldhæðið má velta því fyrir sér hvort fræðslan stórykist ekki - og yrði markvissari — ef leyfðar yrðu auglýsingar. Fræðsl- an þyrfti þá að keppa við auglýsingarnar um at- hyglina. Stóra málið er hins vegar að óraunhæft er að hafa lög sem mismuna, leyfa einum en öðmm ekki. Slík lög nefnast ólög. Jón G. Hauksson ISSN 1017-3544 Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 57. árgangur RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir — LJÓSMYNDARI: Bragi Þ. Jósefsson — ÚTGEFANDI: Tainakönnun hf. — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Borgartún 23, 105 Reykjavík, sími 561-7575, fax 561-8646 — RITSTJÓRN: Sími 561-7575. — AUGLÝSINGAR: Sími 561-7575 — ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl., þar af bókin 100 stærstu 995 kr. -10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. — DREIFING í bókaverslanir og sölutuma á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími GSM 89-23334. SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. 6

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.