Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 20

Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 20
líka þjónustað viðskiptavini verslunarinnar með breytingar á fatnaði á mjög skjótan hátt og hefur sú þjónusta verið mikið notuð, ásamt því að við sérsaumum töluvert fyrir fólk og fyrirtæki," segir Svava Johansen. „Upphaflega var Sautján unglingaverslun en í dag teljum við okkur vera verslun fyrir alla aldurshópa þar sem versl- unin er stór og úrvalið mikið. Þetta er meira spuming um hvaða tísku fólk vill fylgja. Gaman er að sjá hve stór hópurinn er sem hefur haldið tryggð við Sautján gegnum öll árin, fólk, sem byrjaði að versla hjá okkur sem ungling- ar og er núorðið 25-35 ára og enn að versla við okkur. Þess vegna er svo nauðsynlegt fyrir okkur að hafa úrvalið sem mest,“ segir hún. SAMKEPPNIVIÐ ÚTLÖND Svava telur að mikil samkeppni sé hérlendis og hún hafi farið harðnandi undanfarin ár en segist telja að samkeppni haldi kaupmönnum vakandi. Hún segir að samkeppni sé ekki bara innanlands heldur líka við útlönd og tekur þar undir með Mörtu í Gallerí-Evu. „Ég heyri þó alltaf minna talað um ágæti þessara versl- unarferða. Ýmsar vörur eru ódýrar erlendis en ég held að fólk átti sig á því að verðlag á fatnaði er sambærilegt hér og í borgum Evrópu. Það getur reynst ansi dýrt þegar heim er komið að uppgötva mistök eða galla í fatnaði og stund- um hefur komið fyrir að vitlaus stærð hafi verið keypt fyrir einhvem nákommn. Það er ekki hægt að skipta vöm þegar heim er komið, hvað þá að kvarta yfir galla í flíkinni. Þetta er hins vegar hægt að gera hér heima,“ segir hún. „Mér finnst fólk líka hafa áttað sig á að með þessum innkaupaferðum eykur það atvinnuleysið hér á landi og skattar hækka. Mér firmst núorðið áberandi meira vera farið til útlanda til að skipta um umhverfi og slappa af heldur en að fara eingöngu í verslunarferð eins og áður tíðkaðist," bætir hún við. Svava heldur að innkaupaferð- imar eigi ekki eftir að aukast úr þessi heldur fari þeim fækkandi. Hún bendir á að ísland sé bóluþjóðfélag og að utanlandsferðimar hafi verið nýjung, lítil bóla sem sé að hjaðna. BETRITÍÐ í VÆNDUM „Mér finnst sjálfsagt að fólk geti valið um hvort það fari í verslanir til að kaupa ódýran fatnað eða borgi örh'tið meira fyrir flíkina og því tel ég verslanir eins og Dressmann eigi rétt á sér. Við í Sautján emm bæði með fatnað í sama verðflokki og Dressmann og fatnað á milliverði. Ég tel að Dressmann sé f mestri samkeppni við verslanir eins og Hagkaup-herradeild og að sjálfsögðu í bullandi samkeppni við utanlandsferðimar. Það er bara af hinu góða, pening- amir haldast þó allavega í landinu að hluta til,“ svarar Svava. Efnahagslægð hefur verið í landinu undanfarin ár og þess vegna hefur verðlag á fatnaði skipt miklu máli. Svava segist finna að nú sé betri tíð fram undan og þá sé fólk tilbúið að borga örlítið meira fyrir flíkumar. Fólk hefur áttað sig á því að ekki er alltaf hagstæðast að kaupa ódýrustu flíkurnar. Lilja í Cosmo: SAMKEPPNISFÆRAR VIÐ ERLENDAR VERSLANIR Oilja Hrönn Hauksdóttir hefur rekið tískuverslun í tíu ár þó að hún hafi verið fyrir innan afgreiðslu- borðið frá unga aldri og hjálpað móður sinni. Hún hóf rekstur tískuverslunar í júní 1986, þá 21 árs gömul, er hún leigði rekstur Lilju á Laugavegi af móður sinni til tveggja ára. Hún segir að sölumennskan hafi átt vel við sig. Rekstur Lilju hafi undið fljótt upp á sig og í ágúst 1987 hafi hún opnað Cosmo í Kringlunni. Sá tími hafi verið skemmtilegur og mikill taugatitringur milli verslunareig- enda: Skyldi Kringlan verða vinsæl? Árið 1988 opnaði hún svo aðra Cosmo verslun að Laugavegi 44. Lilja Hrönn þakkar móður sinni og uppeldi velgengni í verslunar- rekstrinum. „Mamma er mikið hörkutól. Ég má að miklu leyti þakka henni fyrir hvemig fór því að verslunarrekstur er ekkert glamúrlíf eins og fólk heldur. Það er mikil vinna á bak við reksturinn," segir hún. Tískuverslunin Cosmo er meðal annars þekkt fyrir að vera með gott úrval af drögtum á boðstólum. Lilja Hrönn segist ekki vera að stfla inn á „fríkaða unglingatísku“, eins og hún orðar það, heldur blandaða vöm fyrir breiðan aldurshóp þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Lilja Hrönn segist einnig vera með íslenska framleiðslu, mikið af yfirhöfiium og buxum. BREYTT HUGARFAR „Fyrir tíu ámm þótti flflc ekki nógu smart ef hún var saumuð héma heima. Þetta hugarfar hefur breyst mjög mikið og maður er stoltur af því að kynna íslenska fram- leiðslu. Fólk er mjög jákvætt gagnvart því. Við erum farin að gera betri hluti hér heima og erum vel samkeppnisfær miðað við erlendan markað. Efnisvalið var af skomum skammti á árum áður en það hefur lagast mikið,“ segir hún. Lilja Hrönn telur að samkeppnin í tískuversluninni hafi aukist mikið síðustu tíu árin. Verslanir hafi sprottið upp og fataúrvalið sé mun meira og vöruverð almennt lágt því að samkeppni erlendis hafi lækkað verðið þar sem komi kaupmönnum til góða við innkaupin. Fyrir tíu ámm hafi verðmunur á fatnaði hér og erlendis verið mun meiri en í dag. Það hafi líka sýnt sig að merkjavara er dýrari í London og París en hér. „Við emm vel samkeppnisfær við önnur lönd í Evrópu. Ég held að þeir, sem lifðu af þegar harðnaði í ári, séu komnir til að vera þó að maður viti aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir hún og telur að fataverð lækki tæpast frekar en orðið er. 20

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.