Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Síða 30

Frjáls verslun - 01.09.1996, Síða 30
VEITINGAHÚS nReykjavík er ekki starfandi neitt veitingahús sem sérhæf- ir sig í íslenskum mat. Vissu- lega má segja að allur matur, sem í boði er, sé íslenskur en hann er mat- reiddur eftir evrópskum hefðum, að- allega frönskum, dönskum og nú á síðari árum ítölskum. í stuttu máli sagt er ekki neinn meiriháttar munur á þeim mat sem framreiddur er á ís- lenskum veitingahúsum og t.d. sænskum eða dönskum. í raun er það athyglisvert í þeirri hörðu sam- keppni, sem ríkir á reykvíska veit- ingahúsamarkaðnum, að ekkert veit- ingahús í borginni skuli leggja áherslu á íslenska eldhúsið, hefðir og hráefni. HVAR ER ÍSLENSKA MATARGERÐIN? Þetta er athyglisvert þegar það er haft í huga að ferðamannaþjónustan er orðinn ein þýðingarmesta atvinnu- grein þjóðarinnar og ferðamenn vilja gjarnan kynnast matargerð þess lands sem þeir heimsækja. Þjóðir eins og Danir, Frakkar og Italir leggja mikla áherslu á að kynna matargerð sína fyrir erlendum ferðamönnum. Þessar þjóðir selja þúsundir tonna af fuUunninni matvöru til erlendra ferða- manna til að taka með sér heim. Þróun undanfarinna ára hefur verið sú að æ minna selst af hefðbundnum minjagripum en æ meira af þjóðlegum matvælum. Þegar erlenda viðskipta- vini ber að garði þarf að fara með þá út að snæða. Flestir eiga auðvelt með að finna hentuga veitingastaði á kvöldin en öðru máli gegnir um hádegið. Það veitingahús, sem farið er á í hádeg- inu, má ekki vera of formlegt eða stíft og þjónustan þarf að ganga hratt og vel fyrir sig. Veitingahúsið þarf að hafa séreinkenni - og gæði þjónustu og matar þurfa að vera fyrsta flokks. Mestu máli skiptir þó að hádegisverð- urinn verði gestinum minnisstæður og verði einn hlekkurinn í keðjunni sem gerir heimsóknina til íslands ánægjulega og vonandi árangursríka. DANSKA SMURBRAUÐIÐ Danska smurbrauðið er víðfrægt enda afar heppilegur hádegisverður. Akademia smurbrauðsins er veitinga- hús Oskars Davidsen í Kaupmanna- höfn sem stofnað var 1888. Veitinga- Þetta borð er við enda gangsins, fjær götunni. Hinir haganlegu glerveggir opnast út á lítið og skemmtilegt torg sem liggur að bakhlið Hótel Borgar. Gestirnir geta valið um allt að 150 tegundir af smurbrauði, auk hlaðborðs sem á eru meðal annars hangikjöt og graflax. Innlit Sigmars: 30

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.