Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 36

Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 36
VALDABARÁTTA ÍS OG SH? Átök risanna, SH og ÍS, koma upp í huga flestra við ráðningu Guðbrands. Hann kemur úr innsta hring ÍS en Útgerðarfélag Akureyringa er hins vegar stærsti einstaki framleiðandinn innan SH. A KÆJANUM Öllum, sem þekkja hann, ber saman um að hann sé skarpgreindur og snöggur að átta sig á hlutunum. Segja má að krókurinn hafi snemma beygst til þess sem verða vildi hjá Guðbrandi en skólafélagar hans frá menntaskólaárum muna eftir honum sem ungum pilti sem þá þegar hafði brennandi áhuga á fiskvinnslu, fullvinnslu sjávarafurða og útflutningi. Þetta voru ekki hefðbundin áhugamál menntskælings á diskótímanum en þetta réð vali hans á framhaldsnámi, að mati félaganna. Hann tók virkan þátt í félagslífmu á menntaskólaárun- um og var umsjónarmaður skólasels MS í Ólafsdal í tvö ár, rak bóksölu skólans og var framkvæmdastjóri mötuneytisins á lokaárinu. I Tirnu, myndabók menntskælinga í MS, er mynd af Guðbrandi uppáklæddum sem dæmigerðum forstjóra. Af því má ráða að framtíð hans hefur þótt ráðin. BESTUR í STARFIÐ Mörgum þótti það nokkuð djörf ákvörðun stjórnar UA að bjóða þess- um unga manni starf framkvæmda- stjóra. Átök risanna á fisksölumark- aðnum, SH og ÍS, voru nefnd í þessu sambandi en Guðbrandur kemur úr innsta hring IS en Utgerðarfélagið er hins vegar stærsti einstaki framleið- andi innan vébanda Sölumiðstöðvar- innar. Einnig heyrðust þær raddir að Guðbrandur nyti föður síns og þeirra tengsla sem hann hefur innan at- vinnugreinarinnar. Stjórnarmaður í ÚA, sem ræddi þetta út í hörgul við þann, sem þetta ritar, sagði að Guð- brandur hefði einfaldlega verið besti kosturinn. Hann var sá sem stjóm ÚA vildi fá hvað sem öllum ættar- tengslum eða pólitískum tengslum leið. Menntun hans, reynsla og bak- grunnur hefðu gert það að verkum að enginn annar kom til greina. BREYTTIMÖRGU HJAIS Hjá íslenskum sjávarafurðum þótti Guðbrandur góður starfsmaður og fyrirtaks stjórnandi. Hann fékkst við ýmislegt þar innan veggja, starfaði í erlendum verkefnum og söludeild áður en hann tók við Þróunarsviðinu. Hann átti gott með að laða að sér hæfa starfsmenn og fá þá til að leggja sig fram. Hann var almennt álitinn vinnuþjarkur sem væri fljótur að vinna og ætti gott með að setja sig inn í hlutina. Yfirmenn hans hefðu helst ekki viljað að hann færi norður en sáu að sjálfsögðu hið góða tækifæri sem honum bauðst og spornuðu ekki gegn því að hann gripi það. Kunnugir fullyrða að Guðbrandur hafi séð ÍS og starfsemi þess í öðru ljósi þegar hann kom heim frá Edin- borg og þá sótti hann það nokkuð fast að breyta ýmsu innan fyrirtækisins til nútímalegri hátta. Hann var mikil driffjöður í erlend- um verkefnum fyrir Islenskar sjávar- afurðir og telja má víst að það hafi vegið þungt þegar honum var boðin vinnan fyrir norðan. Framrás á er- lendum vettvangi er um þessar mundir einn af vaxtarbroddum í ís- lenskum sjávarútvegi og eflaust á Guðbrandur eftir að láta til sín taka á þeim vettvangi fyrir Útgerðarfélag Akureyringa ekki síður en ÍS. SJÁLFSÖRUGGUR OG GAMANSAMUR Kunnugir segja að stjómunarstíll Guðbrands teljist fremur lýðræðis- legur. Honum lætur betur að fá menn til þess að starfa sjálfstætt undir sinni stjórn fremur en að beygja þá undir sinn vilja. Ef hann treystir mönnum þá fá þeir að móta sín störf. Hann er þægilegur í daglegri umgengni og gerir oft að gamni sínu. Sumir telja að hann hafi ekki nægilega reynslu af andstreymi í stjómun enn sem komið er því hann hafi eingöngu unnið með stuðningsmönnum sínum hjá ÍS. Ekki sé vitað hvernig hann brygðist við því mikla álagi, sem fylgir stjómun stórra fyrirtækja, þegar unnið sé gegn stjórnandanum leynt og ljóst. Guðbrandur er sjálfsöruggur á ytra borði og er ófeiminn við að láta yfir- burði sína í ljós þegar honum fmnst það henta. Þetta fmnst samstarfs- mönnum hans stundum fara yfir strik- ið og virka eins og sjálfhælni eða mont. Aðrir segja að þegar Guð- brandur finni hjá sér hvöt til að lýsa framúrskarandi hæfileikum sínum þá bendi það fyrst og fremst til þess að meint sjálfsöryggi hans standi ekki eins traustum fótum og það sýnist gera. TÓNLIST OG BÓKMENNTIR FREKAR EN BOLTINN Guðbrandur fæddist úti í Edinborg og sleit hinum eiginlegu bamsskóm á hellulögðum strætum erlendra borga fremur en malargötum Reykjavíkur. Foreldrar hans fluttu heim til íslands SKORTIR REYNSLU í STJÓRNUN Sumir telja honum það til frádráttar að hann skorti reynslu í stjórnun og segja að hann hafi eingöngu unnið með „stuðningsmönnum“ sínum hjá ÍS. Þess vegna sé ekki vitað hvernig hann bregðist við hinu mikla álagi sem fylgir stjórnun ÚA ef á móti blæs. 36

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.