Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Page 45

Frjáls verslun - 01.09.1996, Page 45
að taka að mér hótelið í Bejing. Þetta er náttúrlega draumaverkefni að fá að byggja upp hótel á svona stað frá byrjun. A þessum íjórum árum, sem liðin eru síðan ég kom, hafa orðið gífurlegar breytingar hér. Landið er að færast úr fomöld inn í nútímann þótt margt sé enn ótrúlega langt á eftir.“ TEXTIOG MYNDIR: Benedikt Jóhannesson VESTRÆN VIN Þótt ferðamenn leggi land undir fót til Austurlanda til þess að kynnast öðrum menningarheimi þá em menn samt fljótir að reka sig á hvað það getur verið ótrúlega þreyt- andi. Stöðug áreiti dynja á; hávaði, óþefur, mannmergð, sérkennilegur matur, óþrifalegir veitingastaðir, hörðrúm, mál sem menn skilja bókstaflega ekki stafkrók í. Eftir skamma hríð hafa skilingarvitin ekki við að taka á móti nýjungum. Þá er mikils virði að geta hvílst á glæsilegu hóteli þar sem hægt er að ganga að góðu rúmi og gómsæt- um mat vísum. En Hilton í Bejing lætur ekki mikið yfir sér utan frá séð. Húsið gæti allt eins verið íbúðarblokk ef maður sæi ekki skiltið. En inn- ----------------------- andyra tekur við fimm stjömu lúxushótel, með fjórum veit- ingastöðum. Einn er að sjálf- sögðu kínverskur, annar jap- -------------------------- anskur, sá þriðji vestrænn og síðast enn ekki síst kaffitería með alls kyns mat. „Þegar ég kom varð maður að panta mest af hráefninu í matinn frá Hong Kong en nú getum við keypt allt hér á staðnum. Það er mikill munur, ekkert vesen með tolla lengur og skriffmnsku sem því fylgir. Það kemur mönnum kannski á óvart en ég hef aldrei kynnst öðrum eins heil- brigðisreglum og gilda hér í Kína og hef þó farið víða. Þær eru 10 sinnum meiri en í Bandaríkjunum. Kokkamir verða að skipta um föt milli svæða í eldhúsinu og á öllum húnum verða að vera léreftsklútar. Þetta er hálf broslegt þegar maður sér að nánast hinum megin við götuna er matsölu- staður þar sem fólk þvær sér ekki einu sinni um hendumar áður en það býr til matinn en á fimm stjörnu hótelunum er öllum reglugerðum fylgt til hins ýtrasta.“ Halldór þarf hins vegar greinilega ekki að óttast því hótelið hans var nýlega valið hreinasta hótelið í Bejing. „Við höfum farið af stað með ýmislegt sem menn hafa ekki átt að venjast hér um slóðir. í þemavikum fáum við erlenda skemmtikrafta og bjóðum upp á mat frá framandi löndum. “ Þegar Frjálsa verslun bar að garði var verið að undirbúa spænska viku og næsta vor er Halldór með íslenska daga á prjónunum. Það þótti djarft nýnæmi þegar boðið var upp á djasspíanista til að leika undir borðhaldi því djass hafði verið bannaður á dögum menningarbyltingarinnar og þeir, sem vildu leika þessa úrkynjuðu tónlist, fengu að kenna á sleggjum Rauðu varðliðanna á handarbökunum. Nú er boðið upp á djass út um alla Bejing. „Hótelreksturinn er í sjálfu sér líkur því sem annars staðar er en þó eru sérstök vandamál. Við rekum ensku- skóla hér á hótelinu og kennum starfsfólkinu jafnframt svolítið í japönsku. Vinnuafl er fremur ódýrt en launin hækka á hverjum degi. Þeir sem eru að byrja rekstur með Halldór Briem hefur starfað hjá Hil- ton hótelkeðjunni í sautján ár, þar af í fjögur ár sem hótelstjóri í Bejing. sem varð stúdent frá Versló fyrir rúm- lega 25 árum og hélt þá út í heim til þess að mennta sig í hótelfræðum. Síðan hefur leiðin legið vítt og breitt um heim- inn: AhótelskólaíSviss, til Grikklands, Kýpur, Mið-Austurlanda, eyjarinnar Guam í Kyrrahafi, Hawai og nú síðast til höfuðborgar Kína. „Meginástæðan fyrir því að ég sett- ist að úti í heimi er að ég er giftur grískri konu, við hittumst reyndar á hótelskól- anum í Sviss. Ég sótti um vinnu hjá Hilton eftir að ég lauk námi, en það gekk ekki upp í fyrstu lotu. Löngu síðar höfðu þeir uppi á mér í Aþenu þar sem þá vantaði mann. Ég sló til og er búinn að vera hjá Hilton síðan, heil 17 ár. Ég var kominn til Asíu þegar mér bauðst 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.